Fréttablaðið - 22.09.2012, Side 59

Fréttablaðið - 22.09.2012, Side 59
LAUGARDAGUR 22. september 2012 19 Auglýsing vegna úthlutunar atvinnuleyfa til aksturs leigubifreiða. Vegagerðin auglýsir laus til umsóknar 16 leyfi til leiguaksturs á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Þeir einir geta sótt um leyfi sem hyggjast stunda akstur leigubifreiðar að aðalatvinnu. Til að öðlast leyfi þurfa umsækjendur að uppfylla skilyrði leyfis skv. 5. gr. laga nr. 134/2001 og reglugerðar nr. 397/2003 um leigubifreiðar, með síðari breytingum. Úthlutun leyfa fer fram á grundvelli starfsreynslu við akstur leigubifreiðar, sbr. ákvæði 6. gr. reglugerðar nr. 397/2003. Umsóknareyðublöð má nálgast á vegagerdin.is>umsóknir og leyfi>leigubílar, eða í afgreiðslu Vegagerðarinnar Borgartúni 7 í Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 1. október 2012. Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2012 og skulu umsóknir sendar til Öldrunarráðs Íslands, Hrafnistu við Laugarás, 104 Reykjavík. Frekari upplýsingar veitir Pétur Magnússon, formaður stjórnar Öldrunarráðs. Fyrirspurnir sendist á netfangið petur.magnusson@hrafnista.is Stjórn Öldrunarráðs Íslands Rannsóknarsjóður Öldrunarráðs Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum Úr 5. gr. skipulagsskrár Rannsóknarsjóðsins: Hlutverk sjóðsins er að styrkja rannsóknir í öldrunarmálum á Íslandi svo og þau verkefni sem stjórn sjóðsins ákveður. Leikskólinn Krummakot í Eyjafjarðarsveit óskar eftir að ráða þroskaþjálfa eða starfsmann með aðra uppeldismenntun í 50% starf til að sinna sérkennslu. Krummakot er þriggja deilda leikskóli með rúmlega fimmtíu nemendur og eru deildir aldursskiptar. Verið er að innleiða agastefnuna Jákvæðan aga í skólann og unnið er markvisst með málrækt, dyg(g)ðir, umhverfisstarf, hreyfingu, myndlist og tónlist. Leikskólinn er staðsettur 10 km sunnan við Akureyri og er sam- rekinn með Hrafnagilsskóla. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Leitað er eftir starfsmanni sem: • hefur gaman af vinnu með börnum • er fær og lipur í samskiptum • býr yfir frumkvæði og skipulagsfærni • er sjálfstæður í vinnubrögðum • hefur áhuga á faglegri uppbyggingu leikskólastarfs Umsóknarfrestur er til 29. september n.k. Nánari upplýsingar veitir Hugrún Sigmundsdóttir skólastjórnandi í síma 464-8120/ 892-7461, netfang hugruns@krummi.is Umsóknir skulu sendar til skólastjóra í tölvupósti eða á heimilis- fangið Krummakot Laugartröð 4, 601 Akureyri Heimasíða Krummakots er www.krummi.is Þroskaþjálfi eða önnur uppeldismenntun SKRIFSTOFUSTARF – BÓKARI Lítið endurskoðunarfyrirtæki í austurborginni leitar að vönum bókara til bókhalds og skrifstofustarfa. Starfshlutfall 50-75% eftir árstíma. Vinnan felst aðallega í færslu bókhalds fyrir viðskipta- vini, undirbúningur bókhalds til uppgjörs, símsvörun og ýmis skrifstofustörf. Þarf að geta hafið störf fljótlega. Umsóknir sem tilgreina aldur, menntun og fyrri störf sendist í box@frett.is merkt bókari fyrir 28. septem- ber n.k. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál og öllum svarað. Kópavogsbær ÚTBOÐ Bæjarsjóður Kópavogs óskar eftir tilboðum í vátryggingar fyrir Kópavogsbæ og tengda aðila 2013 – 2015. Um er að ræða eftirfarandi tryggingar: Lög - og samningsbundnar tryggingar: • Brunatrygging fasteigna • Ábyrgðartrygging ökutækja • Slysatryggingar launþega Aðrar tryggingar: • Húseigendatryggingar • Kaskó tryggingar • Slysatryggingar barna til 18 ára aldurs í skóla- og tómstundastarfi • Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Útboðsgögn verða seld í þjónustuveri Kópavogs Fannborg 2, (1. hæð ) frá og með þriðjudeginum 25. september 2012 á kr. 5.000 -. Þegar útboðs- gögn eru keypt skal skrá samskiptaaðila bjóðanda í útboði. Tilboðum skal skila fyrir kl. 11:00 9. október 2012 til þjónustuvers Kópavogsbæjar, Fannborg 2 (1. hæð). Útboð Húsfélagið Smiðjuvegi 1, óskar eftir tilboðum verkið: Klæðningu á húseignina Smiðjuvegi 1. Verklok eru 1 janúar 2013. Útboðsgögn fást á skrifstofu Hegas ehf. Smiðjuvegi 1, frá og með mánudeginum 24 september 2012 kl 14.00 gegn skráningu samskiptaaðila. Einnig er hægt að fá gögn send á tölvupósti. Síðasti skiladagur tilboða er 8 október kl 11.00. Upplýsingar í síma 580 6700 Opnun tilboða verður 8 október. Klæðning: 450 m2 Timburleiðarar: 470 metrar Flasningar á þakkant: 200 metrar Helstu magntölur eru: . Leiðbeinandi í hlutastarf– Frístundafjör Aftureldingar Frístundafjörið er samstarfsverkefni Aftureldingar og bæjaryfirvalda Mosfellsbæjar og er fyrir 1.-2. bekkjar nemendur í grunnskóla. Óskað er eftir starfskrafti sem er með reynslu í starfi með börnum og er æskilegt að þessi aðili sé íþróttamenntaður, í námi á íþróttabraut, sé með reynslu við þjálfun og/eða með brennandi áhuga á íþróttum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Vinnutími frá kl. 14 – 15.30 mán – fim. Umsóknir sendast á umfa@afturelding.is fyrir fimmtudaginn 20. september. Frekari upplýsingar um starfið veitir Halldór Steingrímsson, Íþróttastjóri Aftureldingar í síma 844-1321.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.