Fréttablaðið - 22.09.2012, Síða 69
S ærsta ráðstefnuhótel landsins, Grand Hótel Reykjavík, hefur hlotið vottun Norræna
umhverfismerkisins samkvæmt viðmiðunarreglum
fyrir hótel. Svanurinn er opinbert umhverfismerki
Norðurlandanna og byggist á óháðri vottun og viðmiðum
Viðburðadagatal 2012
Grand Hótel Reykjvík
OKTÓBER 2012
Villibráðardagar 5.-6. október
Úlfar Finnbjörnsson, villibráðarsérfræðingur matreiðir.
Fashion with Flavor 12.-13. október
Íslensk tíska, matargerð og tónlist.
Grand rómantík
Helgina 26. og 27. október.
Brunch alla sunnudaga í október
Frítt fyrir 12 ára og yngri.
NÓVEMBER 2012
Grand rómantík
Helgarnar 2.- 3. og 9. - 10. nóvember.
Jólahlaðborð hefjast 16. nóvember.
Jólahlaðborðin verða á fimmtudögum, föstudögum,
laugardögum og sunnudögum. Helgi Björnsson
skemmtir föstudags- og laugardagskvöld.
Brunch alla sunnudaga í nóvember
Frítt fyrir 12 ára og yngri.
DESEMBER 2012
Jólahlaðborð með Helga Björns
Jólahlaðborðin verða á fimmtudögum, föstudögum,
laugardögum og sunnudögum. Helgi Björnsson
skemmtir föstudags- og laugardagskvöld.
Skötuveisla á Þorláksmessu, 23. desember
Galadinner á gamlársdagskvöldi
Brunch alla sunnudaga í desember
Frítt fyrir 12 ára og yngri.
Svansvottun og lífrænt
vottuð veitingaþjónusta
„Við viljum vera öðrum
fyrirmynd í starfi okkar að
umhverfismálum og munum
vinna að því eins og kostur er
í framtíðinni.“
sem taka tillit til alls lífsferils vöru og þjónustu. „Við
erum stolt af því að bjóða upp á umhverfisvæna
hótel- og ráðstefnuþjónustu,“ segir Ólafur Torfason,
stjórnarformaður. „Við viljum vera öðrum fyrirmynd í
starfi okkar að umhverfismálum og munum vinna að því
eins og kostur er í framtíðinni.“
Í umhverfisstefnu hótelsins segir að unnið sé markvisst
að því að draga úr orku- og vatnsnotkun. Allt sorp er
flokkað og sent til endurvinnslu, ekki er boðið upp á
einnota- eða sérpakkaðar vörur sé þess kostur og spar-
lega er farið með efni. Flokkun á úrgangi er gerð að-
gengileg fyrir gesti og starfsmenn. Ávallt er leitast við að
kaupa umhverfisvottaðar vörur og þjónustu þegar það
er mögulegt og bjóða upp á lífrænar vörur meðal annars
lífrænt vottaðan morgunverð.
Hótelið er fyrsta íslenska fyrirtækið til að hljóta
vottun á lífrænni veitingaþjónustu. Vottunarstofan Tún
hefur staðfest að Grand Hótel Reykjavík uppfylli reglur
um meðferð slíkra matvæla við framreiðslu á lífrænum
hluta morgunverðar. Með vottun Túns er staðfest, að
sá hluti veitingaþjónustu hótelsins sem kynntur er sem
lífrænn, byggi einvörðungu á vottuðum lífrænum hrá-
efnum sem haldið er aðgreindum frá öðrum matvælum
á öllum stigum, allt frá móttöku til framreiðslu; að
aðferðir við meðhöndlun og geymslu lífrænna matvæla
samræmist reglum um lífræna matreiðslu og að gæða-
stjórnun, skráningar og merkingar uppfylli settar kröfur.
Hluti morgunverðarborðs hótelsins er nú eingöngu með
vottuðum lífrænum matvælum, svo sem korni, brauði,
ávöxtum, mjólkurvörum og áleggi.
Auk þess hefur Grand Hótel Reykjavík ráðist í um-
fangsmiklar ráðstafanir til að lágmarka rafsegulmengun
og er nú eina hótelið hérlendis sem er alveg laust við hana.
Allt burðarvirki hótelsins var tengt við 200 bergfestur sem
ná sex metra inn í bergið undir hótelinu. Með þessu móti
fæst spennujöfnun auk þess sem dregur úr ójöfnu flæði
rafmagns í byggingunni.
Reykjavík Spa er glæsileg heilsulind sem opnaði í kjall-
ara Grand Hótel Reykjavík í haust. Reykjavík Spa er
m.a. með líkamsræktaraðstöðu sem er útbúin nokkrum
æfingartækjum. Hótelgestir geta nýtt aðstöðuna sér að
kostnaðarlausu og ráðstefnugestir gegn vægu gjaldi.
Æfingaraðstaðan er opin frá kl. 6 – 22 alla daga vikunnar.
Í Reykjavík Spa er einnig snyrti- og nuddstofa með
sex fallegum herbergjum þar sem færustu snyrti- og
förðunarfræðingar taka vel á móti öllum gestum. Snyrti-
stofan er með mikið úrval af vörum í hæsta gæðaflokki,
bæði fyrir dömur og herra. Má þar helst nefna: Académie
húðvörurnar,íslensku og lífrænu andlitslínuna Vor,
Alessandro og OPI naglalínuna.
Reykjavík Spa er opið alla virka daga frá kl. 9:00 – 18:00,
laugardaga frá kl. 10:00 – 16:00 en lokað er á sunnudögum,
nema um annað sé sérstaklega samið. Frekari upplýsingar
má nálgast í síma 514-8090 eða í reykjavikspa@reykja-
vikspa.is.
Reykjavík Spa
á Grand Hótel Reykjavík