Fréttablaðið - 22.09.2012, Side 91

Fréttablaðið - 22.09.2012, Side 91
LAUGARDAGUR 22. september 2012 51 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Laugardagur 22. september ➜ Tónleikar 22.00 Jón Jónsson, Friðrik Dór, Magni Ásgeirsson, Ragnheiður Gröndal, Védís Hervör og Varsjárbandalagið koma fram á tónleikum á Café Rosenberg. Tón- leikarnir eru hluti af átaki frjálsra félaga- samtaka í samstarfi við Þróunarsam- vinnustofnun Íslands um gildi og mikil- vægi þróunarsamvinnu. Aðgangseyrir er kr. 1.000. ➜ Umræður 10.30 Vilhjálmur Birgisson verka- lýðsleiðtogi á Akranesi verður gestur í Laugardagsspjalli Framsóknarfélags Reykjavíkur. Umræðuefnið er Hvað vill Vilhjálmur Brigisson? og fundurinn verður haldinn í Framsóknarhúsinu Hverfisgötu 33. 16.00 Hafþór Yngvason, safn- og sýn- ingarstjóri, og bandaríski heimspeking- urinn Nickolas Pappas efna til opinna umræðna í tengslum við sýninguna Hreyfing augnabliksins í Hafnarhúsinu. Viðburðurinn fer fram á ensku. ➜ Dansleikir 23.59 Hljómsveitin Gildran verður með stórdansleik á skemmtistaðnum SPOT, Kópavogi. Spiluð verða þeirra eigin lög í bland við þekkta erlenda rokkslagara. Ný lög verða prufukeyrð í upphafi kvöldsins svo það borgar sig að mæta snemma. ➜ Málþing 11.00 Málþing Reykjavíkur Akademí- unnar um iðkun kyns og þjóðar verður haldið í sal þeirra í JL-Húsinu að Hring- braut 121. Almennt skráningargjald er kr. 2.500 og innifalinn er léttur hádegis- verður og kaffiveitingar. ➜ Tónlist 20.00 Kristján Jóhannsson óperu- söngvari og nemendur hans í Söngskóla Sigurðar Demetz koma fram á styrktar- tónleikum fyrir Bergmál, líknar- og vinafélag, í Háteigskirkju. Miðaverð er kr. 3.000. 21.00 Berndsen & The Young Boys verða á Ellefunni og senda áhorf- endur aftur í 80‘s fílinginn. Aðgangur er ókeypis. 21.00 Lame Dudes fagna haustinu með léttri blússveiflu á Café Haiti. Hljómsveitin sem er þekkt fyrir hlýjan flutning laga með blús- og kántrýívafi mun ylja hlustendum með eigin lögum og „ábreiðum” þekktra laga frá síðustu öld. Aðgangseyrir er kr. 1.000. 22.00 Gunnar Þórðarson heldur tónleika á Græna Hattinum, Akureyri. Miðaverð er kr. 2.000. 23.00 Sváfnir Sigurðarson, Karl Pétur Smith og Tómas Tómasson leika á Ob- La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Aðgangs- eyrir er kr. 1.000. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Sunnudagur 23. september ➜ Kvikmyndir 15.00 Sovéska kvikmyndin Gamalt ævintýri (Staraja, staraja skazka) frá 1968 verður sýnd í MÍR-salnum, Hverfisgötu 105. Þetta er ævintýramynd fyrir börn og fullorðna, byggð á gömlum og alþekktum sögum, einkum eftir H.C. Andersen. Myndin er á rússnesku en með enskum texta og aðgangur er ókeypis. ➜ Tónleikar 20.00 Söngkonur stríðsáranna, tónleikar Kristjönu Skúladóttur, verða haldnir í Iðnó. Á tónleikunum syngur Kristjana dægurlög sem voru vinsæl í síðari heimstyrjöldinni og segir frá afrekum nokkurra helstu söngkvenna þess tíma. 20.00 Kristín Jónína Taylor píanóleik- ari flytur úrval prelúdía eftir Debussy, Rachmaninoff, Franck, Gershwin og Hjálmar H. Ragnarsson á síðustu Síðsumartónleikunum í Þjóðmenn- ingarhúsinu í ár. Aðgangseyrir er kr. 2.000 en kr. 1.000 fyrir eldri borgara og nemendur. ➜ Uppákomur 14.00 Félagsvist verður spiluð í Breið- firðingabúð, Faxafeni 14. Allir velkomnir. 19.00 Bridge tvímenningur verður spilaður í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. Allir velkomnir. ➜ Dansleikir 20.00 Danshljómsveitin Klassík leikur létta danstónlist á dansleik Félags eldri borgara í Reykjavík, Stangarhyl 4. Aðgangseyrir er kr. 1.500 fyrir félaga í FEB og 1.800 fyrir aðra gesti. ➜ Tónlist 15.15 Guido Bäumer saxófónleikari og Aladár Rácz píanóleikari leika verk eftir Debussy, Sancan, Caplet, Jolivet, Schmitt og Desenclos á tónleikaröðinni 15:15 í Norræna húsinu. Miðaverð er kr. 2.000 en kr. 1.000 fyrir eldri borgara, öryrkja og námsmenn. 16.00 Andrea Jónsdóttir leikur lög af hljómplötum á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Aðgangur er ókeypis. ➜ Leiðsögn 14.00 Þóra Sigurðardóttir sýningarhöf- undur leiðir gesti um sýninguna Teikn- ing – þvert á tíma og tækni í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands. Leiðsögnin er ókeypis. 15.00 Helgi Gíslason verður með leiðsögn um sýningu sína í húminu í Listasafni Kópavogs – Gerðarsafni. Allir velkomnir. ➜ Fyrirlestrar 15.00 Björn Þorsteinsson heimspek- ingur ræðir um grundvallarstef tilvistar- stefnunnar á Kjarvalsstöðum í tengslum við sýninguna Ljóðheimar sem stendur nú yfir. Frítt er fyrir handhafa Menn- ingarkortsins. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.