Fréttablaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 102
22. september 2012 LAUGARDAGUR62
Hopsin er mikill hjólabrettakappi og í tónleikaferð-
inni um Bandaríkin býður hann öllum aðdáendum
sínum að skora á hann í hjólabrettabrellum. Allir
geta sent tölvupóst á netfangið skatehopsin@
gmail.com þar sem taka þarf fram nafn, símanúmer
og heimaborgina. Kjósi hann að taka áskoruninni
hringir hann í viðkomandi til að ákveða stað og stund.
Hingað til hefur hann tekið þátt í þrettán keppnum og
tapað tveimur.
„Ef þú vinnur þá skal ég gefa þér áritaðan
dollara. Ef ég vinn verðurðu að kaupa handa mér
Gatorade,“ segir Hopsin í myndbandi á Youtube
þar sem hann auglýsir leikinn. Hann gefur hvergi
upp hvort leikurinn verði í gangi í Evrópuferðinni
líka, en fyrir áhugasama sakar ekki að reyna að
senda kappanum skilaboð.
PERSÓNAN
Þormóður Dagsson og hljóm-
sveit hans Tilbury hafa tekið upp
ábreiðu af lagi Nýdanskrar, Á
sama tíma að ári. Útgáfa Tilbury
hljómar í samnefndri leiksýningu
sem verður frumsýnd á næstunni
í Borgarleikhúsinu.
„Það er verið að setja þetta leik-
rit upp í þriðja sinn. Við vorum
fengnir til að endurútsetja og taka
upp lagið aftur. Þetta var mjög
gaman. Þetta er í fyrsta skipti
sem við fáum að gera eitthvað
svona,“ segir Þormóður. „Ég var
voða auðmjúkur gagnvart verk-
inu. Maður vill ekki fara illa með
það en vill samt leyfa sér að gera
ýmsa hluti.“
Soffía Björg Óðinsdóttir úr
hljómsveitinni Brother Grass
syngur á móti Þormóði í laginu en
í upphaflegu útgáfunni söng höf-
undurinn Björn Jörundur Frið-
björnsson á móti Margréti Vil-
hjálmsdóttur.
Vinsælasta lag Tilbury til
þessa, Tenderloin, var fyrir
skömmu valið lag dagsins á
útvarpsstöðinni KEXP í Seattle,
sem hefur verið í samstarfi við
Airwaves-hátíðina undanfarin ár.
„Þetta kemur laginu í fleiri eyru,
sem við erum óskaplega ánægðir
með. Þetta er voðalega flott stöð
sem vill vera með puttann á púls-
inum.“ - fb
Auðmjúkur gagnvart verkinu
ÞORMÓÐUR DAGSSON Tilbury hefur
gert eigin útgáfu af laginu Á sama
tíma að ári.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Þessi strákur er á barmi þess
að springa út og verða risastór.
Hann á rosalega aðdáendahópa
alls staðar, líka hér á Íslandi,“
segir umboðsmaðurinn Óli Geir
hjá Agent.is um rapparann
Hopsin.
Hopsin er væntanlegur til
Íslands til að taka þátt í hipp-
hopp-hátíðinni YOLO. Hann er
stærsta nafnið á bak við útgáfu-
merkið Funk Volume og hefur
náð miklum vinsældum á You-
tube. Myndband við nýjasta
lag Hopsin, Ill Mind of Hopsin,
hefur til að mynda verið skoð-
að um fimmtán milljón sinnum
á síðunni. Aðrir meðlimir Funk
Volume eru rappararnir SwizZz,
Dizzy Wright, Jarren Benton
og DJ Hoppa. „Þeir eru að túra
um Bandaríkin núna og spila í
nýrri borg á hverjum degi allt
fram til 2. nóvember,“ segir Óli
Geir. Þegar þeirri ferð lýkur taka
rappararnir sér fjögurra daga frí
áður en þeir leggja undir sig Evr-
ópu og hefja leikinn á Íslandi.
Í tilefni af komu Hopsin verð-
ur haldin fjögurra daga hipp-
hopp-hátíð á Þýska barnum 7. til
10. nóvember. Að sögn Óla Geirs
kemur þar fram rjómi hipphopp-
ara Íslands og eru þar meðal ann-
arra Forgotten Lores, Larry Bird
(ný sveit sem er skipuð meðlim-
um úr Skyttunum), Úlfur Úlfur,
MC Gauti, Blaz Roca, Steindi jr.,
Bent, Gísli Pálmi og Friðrik Dór.
„Ég hélt fyrstu YOLO-hátíðina í
sumar til að kanna áhugann. Þá
var ég með tveggja kvölda hátíð
bara með íslenskum listamönnum
og það var stappað bæði kvöldin,
svo eftirspurnin er greinilega til
staðar,“ segir Óli Geir.
Aðeins verða milli 500 og 600
miðar seldir á YOLO-hátíðina
og hefst miðasalan þann 1. októ-
ber. „Það hafa margir spurt mig
hvers vegna ég sé ekki með þetta
á stærri stað en eftir að Nasa lok-
aði er Þýski barinn einfaldlega
ÓLI GEIR: RJÓMI ÍSLENSKRA HIPPHOPPARA KEMUR FRAM Á YOLO
Rapparinn Hopsin mætir
á sveitta hipphopp-hátíð
MANAR FÓLK Í HJÓLABRETTAKEPPNIR
Magnús Trygvason Eliassen
Starf: Þykist
vera trommu-
leikari.
Aldur: 26 ára.
Búseta:
Vesturbærinn í
Reykjavík.
Fjölskylda: Ég
á eitt barn með
kærustunni
minni.
Foreldrar: Steinunn Jóns-
dóttir leikskólastjóri og Trygve Jónas
Eliassen leikmunahönnuður.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Magnús spilar með Damo Suzuki,
söngvara hinnar sögufrægu þýsku hljóm-
sveitar Can, í Gamla bíói 3. október.
„Ég taldi einfaldlega að sagan væri gott efni í kvik-
mynd,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Júlíus Kemp.
Framleiðslufyrirtæki hans og Ingvars Þórðarsonar,
Kvikmyndafélag Íslands, hefur fest kaup á kvikmynda-
réttinum að skáldsögunni Korter eftir Sólveigu Jóns-
dóttur.
Fjögur íslensk kvikmyndafyrirtæki kepptu um rétt-
inn um að gera kvikmynd eftir skáldsögunni og valdi
höfundurinn þá félaga hjá Kvikmyndafélagi Íslands.
„Við vorum á sömu blaðsíðu varðandi útfærslu og
hvernig umgjörðin ætti að vera. Ég treysti mér ekki til
að sleppa hendinni af barninu mínu alveg strax,“ segir
Sólveig, sem mun verða þeim félögum innan handar við
að gefa sögunni nýtt líf á hvíta tjaldinu.
Bókin, sem er frumraun Sólveigar, kom út fyrr á
árinu og vakti nokkra athygli. Hún fléttar saman sögur
fjögurra stúlkna í Reykjavík, ástir þeirra og raunir.
Júlíus staðfestir að þeir Ingvar ætli að halda sig eins
nálægt söguþræði bókarinnar og hægt er. Ferlið er enn
á byrjunarstigi og enn óákveðið hver leikstýrir mynd-
inni og hverjir leika í henni. Sólveig segist ekki sjá
neinar ákveðnar leikkonur fyrir sér í aðalhlutverkun-
um en að helst skipti málið að þær séu á aldur við sögu-
hetjurnar sjálfar.
„Nú fer af stað ferli sem getur tekið óútreiknan-
legan tíma. Handritavinna, fjármögnun og loks að
búa til sjálfa myndina. Ef vel gengur verður hún
komin á hvíta tjaldið á næstu fimm árum,“ segir
Júlíus að lokum. - áp
Júlíus Kemp kveikir líf í Korteri
SAMVINNA Kvikmyndafélag Íslands, framleiðslu-
fyrirtæki þeirra Júlíusar Kemp og Ingvars
Þórðarssonar, keypti réttinn að bókinni
Korter eftir Sólveigu Jónsdóttir.
NÝ
KILJA!
best til þess fallinn að hýsa svona
viðburði,“ segir Óli Geir og bætir
við að klausa í samningi við Funk
Volume kveði á um að staðurinn
megi ekki vera of stór. „Þeir vilja
frekar vera á minni stöðum og
hafa uppselt alls staðar sem þeir
koma. Við ætlum að hafa þetta
sveitt og gott,“ segir hann.
tinnaros@frettabladid.is