Fréttablaðið - 02.10.2012, Síða 14

Fréttablaðið - 02.10.2012, Síða 14
14 2. október 2012 ÞRIÐJUDAGUR Síðustu átta mánuði voru skráðar 1.459 nauðungarsölubeiðnir á fasteignum hjá Sýslumanninum í Reykjavík. Fjórar afborganir af einu láni geta verið næg ástæða fyrir banka til að setja heimili á nauðungaruppboð. Við það þurrkast út milljónir sem fjölskylda hefur borgað bankanum samviskusamlega árum saman. Eign fjölskyldunnar verður í besta falli á núlli og jafnvel kemur fjölskyldan stór- skuldug út úr hremmingunum ofan á það að missa heimili sitt. Það er lítið mál fyrir banka að óska eftir nauðungarsölu á fasteign og í rauninni alveg frábær valkostur og áhættan lítil. Þegar banki óskar eftir nauðungarsölu er lítil hætta á að aðrir bjóði í fasteignina. Þess vegna getur bankinn boðið mjög lágt og dæmi eru um að banki leysi til sín eignir allt niður í 20.000 krónur á m² þegar mark- aðsvirði á íbúðarhúsnæði er í kringum 250.000 krónur á m². Við endursölu getur bankinn bókfært mismuninn á nauðungar- kaupverðinu og söluverðinu sem hagnað. Hagnaður bankanna er m.a. að færa starfs- mönnunum bónusa og jafnvel eignarhlut. Fjölskylda sem verður fyrir nauðungar- sölu er ekki endilega laus við bankann. Ef eitthvað stendur út af af láninu skuldar fjölskyldan bankanum það enn þá. Bankinn getur því haldið áfram að andskotast í fjöl- skyldunni, sem er á götunni, út yfir gröf og dauða. Þetta á m.a. við um fjölskyldur sem hafa fengið 110% leiðréttingu fasteigna- lána og eru beittar nauðungarsölu. Leysi bankinn til sín heimilið á nauðungarupp- boði skuldar fjölskyldan bankanum enn þá a.m.k. 10% af veðsetningunni. Ef banki lendir í fjárhagsvandræðum hleypur ríkið undir bagga. Ef fjölskylda lendir í fjárhagsvandræðum gagnvart þessum sama banka og missir heimili sitt er það hennar einkamál. Allt þykir þetta réttlátt, sanngjarnt og eðlilegt. Nauðungarsala FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS HALLDÓR Fjármál Ólöf Guðný Valdimars- dóttir arkitekt Fjölskylda sem verður fyrir nauðungarsölu er ekki endilega laus við bankann. Ef eitthvað stendur út af, af láninu, skuldar fjölskyldan bankanum það enn þá. Nýtt útspil Hópur fólks sem er áhugasamt um að ljúka samningaviðræðum við ESB undirbýr nú útspil, sem hugsað er til þess að ýta rækilega við umræðum um málið. Hópurinn inniheldur Evrópu- sinnaða sjálfstæðismenn og framsókn- armenn, fólk úr frjálslyndari armi Sam- fylkingarinnar og forkólfa samtaka á vinnumarkaði. Benedikt Jóhannesson, tölfræðingur og útgefandi, mun vera ein aðalsprautan í hópnum en einnig eru Kristrún Heimis- dóttir, til skamms tíma aðstoðarmaður Árna Páls Árnasonar, Jón Sigurðsson, fyrr- verandi formaður Framsóknarflokksins, Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, Vil- mundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi ráðherra, og Þorsteinn Páls- son, fyrrverandi formaður Sjálfstæðis- flokksins, nefnd til sögunnar. Ábyrgðarfull ungmenni Samband ungra sjálfstæðis- manna hélt málþing um helgina. Ekki þarf að koma á óvart að sambandið agnúist út í vinstristjórnina, sem það kallar verstu ríkisstjórn sögunnar, enda susarar lítt hrifnir af vinstri- mönnum. Í stjórnmálaályktun þingsins er síðan mikið gert úr ábyrgð stjórn- málamanna. Ábyrgðarlaus tillaga Því skýtur skökku við að í sömu ályktun leggur SUS til, sem eina af brýnum aðgerðum í efnahagsmálum, að mögu- leikar á upptöku Kanadadollara verði kannaðir. Seðlabankinn gerði það á dögunum og sagði einhliða upp- töku annarrar myntar of áhættusama þar sem með því væri enginn lánveitandi til þrautavara. Ábyrgð og áhættu- sækni fara sjaldnast saman. kolbeinn@frettabladid.isÞ egar verkefnisstjórn rammaáætlunar um verndun og nýt- ingu vatnsafls og jarðvarma skilaði af sér skýrslu í fyrra- sumar var full ástæða til að binda miklar vonir við að hún myndi stuðla að sæmilega víðtækri sátt um málaflokkinn. Með vinnu verkefnisstjórnarinnar var raðað í forgangs- röð 66 virkjunarmöguleikum. Þeir voru metnir út frá gríðarlega miklum gögnum, sem fjórir undirhópar höfðu yfirfarið og rann- sakað. Forgangsröðin var meðal annars unnin út frá sjónarhornum orkunýtingar, náttúruverndar, efnahags- og samfélagsáhrifa, ferðamennsku og verndar forn- leifa og menningarminja. Hugsunin að baki þessari miklu vinnu var frá upphafi að leggja vandaðan grunn að stefnumörkun um hvar ætti að virkja og hvaða svæði ætti að vernda. Með því að vinna málið með þessum hætti mætti stuðla að breiðri sátt um það. Áformað var að rammaáætlun yrði afgreidd sem ályktun frá Alþingi fyrir febrúarbyrjun á þessu ári. Það hefur enn ekki gerzt, aðallega vegna þess að málið varð fljótlega svo umdeilt innan stjórnar flokkanna að þingsályktunartillagan kom ekki fram á þinginu fyrr en seint og um síðir. Þá var, fyrst og fremst að kröfu Vinstri grænna, búið að víkja í veigamiklum atriðum frá þeirri for- gangsröðun sem verkefnisstjórnin hafði lagt til; setja til dæmis virkj- anakostina í neðrihluta Þjórsár, sem verkefnisstjórninni þóttu meðal þeirra vænlegustu, í svokallaðan biðflokk í stað nýtingarflokks. Það varð í raun ljóst strax þegar málið lokaðist inni í karpi stjórnar flokkanna að það var farið í pólitískan farveg, í stað þess að láta vísindaleg gögn og faglegt mat ráða ferðinni. Um leið var búið að kippa grundvellinum undan hinni breiðu sátt. Stjórnarmeirihlutinn heldur samt sínu striki og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur mælt fyrir tillögu um rammaáætlunina óbreyttri. Þetta kann ekki góðri lukku að stýra. Að keyra málið þannig í gegn myndi þýða að búið væri að eyðileggja þá gríðarlegu vinnu sem unnin hefur verið í áratugi til að takast megi að ljúka því í sátt. Um leið væri opnað fyrir þann möguleika að næsta ríkisstjórn, eða þarnæsta, liti sömuleiðis á rammaáætlunina sem tæki til að ná fram ýtrustu pólitísku markmiðum og gerði breytingar eftir sínu höfði. Það væri óþolandi staða, jafnt fyrir þá sem vilja draga línur til verndar verðmætum náttúrusvæðum og fyrir hina, sem vilja ein- hvern fyrirsjáanleika í því hvar má virkja á næstu áratugum. Sjálfstæðismenn á þingi hafa lagt fram frumvarp, þar sem lagt er til að málið verði tekið úr þeim pólitíska farvegi sem það er komið í og verkefnisstjórninni þess í stað fengið það verkefni að gera sjálf til- lögu um hvernig eigi að flokka virkjanakostina í verndar-, nýtingar- og biðflokk. Þetta er skynsamleg tillaga, því að hún getur stuðlað að því að beina málinu aftur í sáttafarveg. Þá verða menn auðvitað líka að meina það sem þeir segja; að þeir séu reiðubúnir að una því sem verkefnisstjórnin leggur til. Stjórnar- meirihlutinn ætti að taka undir þessa tillögu, því að hann er búinn að klúðra málinu þannig að það verður aldrei breið sátt um það í núverandi mynd. Skynsamleg tillaga um rammaáætlun: Sáttafarvegurinn virkjaður á ný Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.