Fréttablaðið - 02.10.2012, Side 34
2. október 2012 ÞRIÐJUDAGUR30
sport@frettabladid.is
SNORRI STEINN GUÐJÓNSSON hefur skrifað undir samning við danska b-deildarliðið GOG Håndbold til ársins 2015 en
Snorri Steinn hefur verið án félags síðan AG Kaupmannahöfn fór á hausinn í haust. Snorri Steinn lék með GOG frá 2007 til 2009
þegar liðið var í dönsku úrvalsdeildinni. „Þetta er frábær dagur fyrir GOG. Við ætlum okkur að komast aftur í úrvalsdeildina og
höfum tekið mikilvægt skref í rétta átt með því að fá Snorra,” sagði Kasper Jørgensen, íþróttastjóri GOG.
FÓTBOLTI Atli Guðnason skrifaði
sig á spjöld sögunnar í Pepsi-
deildinni í sumar með því að
slá öllum leikmönnum deildar-
innar við í bæði markaskorun
og því að leggja upp mörk fyrir
félaga sína. Atli fór á kostum
með meistaraliði FH og var lyk-
ilmaður í því að Íslandsmeistara-
bikarinn er kominn í Krikann á
nýjan leik. Í gær kom síðan í ljós
að leikmenn deildarinnar höfðu
kosið Atla besta leikmanninn.
Atli skoraði tólf mörk sjálf-
ur og átti að auki þrettán stoð-
sendingar á félaga sína. Hann
kom því með beinum hætti að 25
mörkum FH-liðsins í sumar eða
rétt tæplega helmingi marka
Hafnarfjarðarliðsins. Tveir
aðrir leikmenn komast einnig inn
á báða topplista en það eru Vals-
maðurinn Rúnar Már Sigurjóns-
son (7 mörk og 9 stoðsendingar)
og Fylkismaðurinn Ingimundur
Níels Óskarsson (10 mörk og 6
stoðsendingar).
Atli keppti um gullskóinn við
Framarann Kristinn Inga Hall-
dórsson í lokaumferðinni en
hvorugur náði að skora og því
nægði tólfta mark Atla frá því á
móti ÍA í 20. umferðinni til þess
að tryggja honum markakóng-
stitilinn.
Atli var lengstum í sumar í
baráttu við KR-inginn Óskar
Örn Hauksson um að vinna stoð-
sendingarnar. Óskar Örn gaf
fjórar stoðsendingar í fyrstu
tveimur leikjunum og var með
eina stoðsendingu í forskot á Atla
eftir innbyrðisleik KR og FH 23.
ágúst. Atli jafnaði Óskar Örn í
næsta leik og átti síðan sigurinn
vísan þegar Óskar Örn fór út til
Noregs og spilaði ekki með KR í
síðustu fimm leikjunum. Atli fór
endanlega upp fyrir Óskar Örn
með því að leggja upp tvö mörk í
sigri FH á Keflavík.
Stoðsendingar hafa verið tekn-
ar saman í efstu deild karla frá
og með sumrinu 1992 og Atli
jafnaði einnig stoðsendingamet
Tryggva Guðmundssonar frá
2008 með því að gefa sína þrett-
ándu stoðsendingu í lokaleiknum
á laugardaginn.
Tryggvi var með sömu tölur og
Atli þegar FH vann titilinn fyrir
fjórum árum, gaf þá 13 stoð-
sendingar og skoraði 12 mörk.
Tryggvi náði hins vegar ekki að
vera markakóngur deildarinnar
því bæði Keflvíkingurinn Guð-
mundur Steinarsson (16) og KR-
ingurinn Björgólfur Takefusa
(14) skoruðu fleiri mörk en hann
það sumar.
ooj@frettabladid.is
Einstakt sumar hjá Atla
FH-ingurinn Atli Guðnason varð í sumar fyrsti leikmaðurinn til að vera bæði
markakóngur og sá sem gaf flestar stoðsendingar síðan farið var að taka form-
lega saman stoðsendingar í efstu deild karla fyrir tuttugu árum.
TÓLF MÖRK OG 13 STOÐSENDINGAR Atli Guðnason var frábær með FH-liðinu í sumar.
en hér sést hann í leik á móti íA á Akranesi. FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐMUNDUR BJARKI HALLDÓRSSON
Atli tók bæði toppsætin
Atli Guðnason var bæði sá leikmaður
sem skorað mest og lagði upp flest mörk í
Pepsi-deild karla í sumar.
Flest mörk í Pepsi-deild karla 2012:
Atli Guðnason, FH 12
Kristinn Ingi Halldórsson, Fram 11
Ingimundur Níels Óskarsson, Fylki 10
Björn Daníel Sverrisson, FH 9
Christian Steen Olsen, ÍBV 9
Garðar Bergmann Gunnlaugsson, ÍA 9
Kjartan Henry Finnbogason, KR 8
Garðar Jóhannsson, Stjörnunni 8
Flestar stoðsendingar í Pepsi karla 2012:
Atli Guðnason, FH 13
Óskar Örn Hauksson, KR 10
Rúnar Már Sigurjónsson, Val 9
Alex Freyr Hilmarsson, Grindavík 7
Rafn Andri Haraldsson, Breiðabliki 6
Ingimundur Níels Óskarsson, Fylki 6
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
mun spila með belgíska félaginu
Cercle Brugge út þetta tímabil
en þetta staðfestu Belgarnir á
heimasíðu sinni í gærkvöldi.
Eiður Smári hefur verið án
félags undanfarna mánuði eða
síðan hann samdi um starfslok
við gríska félagið AEK Aþenu.
Cercle Brugge sagði frá því á
heimasíðu sinni að Eiður Smári
hefði staðist læknisskoðun á
Saint-Luc sjúkrahúsinu í gær og
skrifað undir samning til enda
tímabilsins. Eiður Smári verður
kynntur fyrir blaðamönnum í dag
en hjá félaginu hittir hann fyrir
Arnar Þór Viðarsson, fyrrum
félaga sinn í íslenska landsliðinu.
Cercle Brugge er í neðsta sæti
belgísku úrvalsdeildarinnar og
þarf nauðsynlega á hjálp að halda
enda aðeins með 4 stig og 7 mörk
í fyrstu níu leikjunum. - óój
Eiður Smári til Cercle Brugge:
Stóðst skoðun
EIÐUR SMÁRI Belgíska úrvalsdeildin
verður sjöunda landsdeildin sem hann
spilar í á ferlinum. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Gunnar Heiðar
Þorvaldsson átti stórleik með
IFK Norrköping í gær þegar
liðið vann 7-2 sigur á GAIS í
sænsku úrvalsdeildinni. Gunnar
Heiðar skoraði tvö mörk sjálfur
og lagði síðan upp tvö önnur
mörk fyrir félaga sína. Gunnar
Heiðar hefur nú skorað tvennu í
tveimur leikjum í röð og er alls
kominn með 13 mörk í 24 leikjum
í deildinni á þessari leiktíð. - óój
Gunnar Heiðar sjóðheitur:
Aftur með tvö
FÓTBOLTI Almar Guðmundsson,
formaður Knattspyrnudeildar
Stjörnunnar, staðfesti við
Íþróttadeild Stöðvar 2 í gær
að Bjarni Jóhannsson væri
hættur þjálfun liðsins en þetta
var sameiginleg ákvörðun
Bjarna og Knattspyrnudeildar
Stjörnunnar. Stjarnan rétt missti
af Evrópusæti annað tímabilið í
röð og datt niður í fimmta sætið.
Bjarni hefur þjálfað Stjörnuna
frá 2008 þegar hann tók við liðinu
í 1. deild en undir hans stjórn
hefur liðið náð besta árangrinum
í sögu félagsins. - óój
Bjarni Jóhannsson:
Hættur með
Stjörnuliðið
Pepsi-deildirnar gerðar
upp í Hörpunni í gær
Bestu leikmenn:
Atli Guðnason FH
Chantel Jones Þór/KA
Efnilegustu leikmenn:
Jón Daði Böðvarsson Selfossi
Glódís Perla Viggósdóttir Stjarnan
Dómarar ársins í Pepsi-deildum:
Gunnar Jarl Jónsson í Pepsi-deild karla
Ívar Orri Kristjánsson í Pepsi-deild kvenna.
Þjálfarar ársins í Pepsi-deildum:
Heimir Guðjónsson FH
Jóhann Kristinn Gunnarsson Þór/KA
Prúðmennskuverðl. Borgunar og KSÍ:
Grétar Sigfinnur Sigurðarson KR
Anna Þórunn Guðmundsdóttir ÍBV
Prúðmennskuverðlaun liða:
ÍA (karla) og ÍBV (kvenna)
Stuðningsmenn ársins:
Stjarnan (karla) og Breiðablik (kvenna)
Lið ársins í Pepsi karla: Hannes
Þór Halldórsson (KR), Guðjón Árni
Antoníusson (FH), Freyr Bjarnason (FH),
Rasmus Christiansen (ÍBV), Kristinn
Jónsson (Breiðabliki), Alexander Scholz,
(Stjörnunni), Björn Daníel Sverrisson (FH)
Rúnar Már Sigurjónsson (Val), Kristinn Ingi
Halldórsson (Fram), Atli Guðnason (FH)
og Óskar Örn Hauksson (KR).
Lið ársins í Pepsi kvenna: Chantel
Jones (Þór/KA), Anna Björk Kristjánsdóttir,
(Stjörnunni), Guðrún Arnardóttir,
(Breiðabliki), Arna Sif Ásgrímsdóttir,
(Þór/KA), Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir,
(Stjörnunni), Katrín Ásbjörnsdóttir (Þór/
KA), Danka Podovac (ÍBV), Fanndís
Friðriksdóttir (Breiðabliki), Kayle Grimsley
(Þór/KA), Elín Metta Jensen (Val) og
Sandra María Jessen (Þór/KA).