Fréttablaðið - 22.10.2012, Qupperneq 10
22. október 2012 MÁNUDAGUR
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
www.kia.isÞú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
SJÓNVARPSSTÖÐIN ID: INVESTIGATION DISCOVERY ER EINGÖNGU Í BOÐI Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á WWW.STOD2.IS
LÍBANON, AP Átök brutust út í Beirút
milli lögreglu og mótmælenda í kjöl-
far útfarar herforingjans Wissam al
Hassan, sem myrtur var á föstudag.
Hundruð mótmælenda brutust
í gegnum raðir lögreglunnar og
reyndu að komast inn í byggingu
ríkisstjórnarinnar. Þús-
undir manna biðu að auki
átekta að baki hinum,
sem brutust í gegnum
raðir lögreglunnar.
Lögreglan beitti bæði
skotvopnum og táragasi
til að halda mannfjöldan-
um í skefjum.
Mótmælendurnir
kenna sýrlenskum stjórn-
völdum um morðið á
Hassan, og saka stjórn
Líbanons jafnframt um allt of náin
tengsl við Sýrlandsstjórn. Mótmæl-
endurnir hrópuðu einnig slagorð
gegn Hezbollah, herskáum samtök-
um í landinu sem hafa jafnan notið
mikils stuðnings frá Sýrlandi.
Borgarastyrjöldin í Sýrlandi
hefur mánuðum saman valdið ólgu
í Líbanon, og hefur alloft komið til
minni háttar átaka vegna þessa.
Sýrlandsstjórn og sýrlenski her-
inn hefur undanfarna þrjá áratugi
haft mikil ítök í Líbanon, en herfor-
inginn Hassan, sem myrtur var á
föstudag, fór ekki dult með andstöðu
sína gegn Sýrlandi og sýrlenskum
áhrifum í Líbanon.
„Hann var myrtur við að verja
land sitt,“ sagði Samer al-Hirri, einn
þeirra sem voru viðstaddir útför
Hassans í gær.
Fuad Saniora, forsætisráðherra
Líbanons, hvatti fólk til að sýna
stillingu: „Beiting ofbeldis er ekki
ásættanleg og sýnir ekki þá ímynd
sem við viljum,“ sagði
hann, en tók jafnframt
fram að hann hefði skiln-
ing á tilfinningum fólks.
Hassan stjórnaði í
sumar rannsókn sem
leiddi í ljós að áhrifamenn
í Sýrlandi stóðu að baki
áformum um sprengju-
árás í Beirút. Í framhaldi
af þeirri rannsókn var
Michael Samaha, fyrrver-
andi innanríkisráðherra
Líbanons, handtekinn, en hann hafði
verið einn af helstu bandamönnum
Sýrlands innan ríkisstjórnar Líb-
anons.
Samaha var einn þeirra sem fór-
ust í sprengjuárásinni í Beirút á
föstudag, þar sem Hassan lét einnig
lífið. Alls kostaði sú árás átta manns
lífið.
Laurent Fabius, utanríkisráð-
herra Frakklands, sagði allt benda
til þess að stjórn Basher al Assads
Sýrlandsforseta hafi átt hlut að
sprengjuárásinni á föstudag.
„Allt bendir til þess að þetta sé
framlenging á sýrlenska harmleikn-
um,“ sagði Fabius.
gudsteinn@frettabladid.is
Útför snerist
upp í óeirðir
Borgarastyrjöldin í Sýrlandi er farin að valda æ
meiri ólgu í Líbanon. Í gær brutust þar út átök er
mótmælendur reyndu að ráðast inn í stjórnarhöll.
MÓTMÆLENDUR Í BEIRÚT
Veifa fánum bæði Líbanons og
stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/A
FP
Hann var
myrtur við að
verja land sitt.
SAMER AL-HIRRI
EINN ÞEIRRA SEM
VORU VIÐSTADDIR
ÚTFÖRINA
SPÁNN Andstæðingar spænsku
ríkis stjórnarinnar unnu sigur í hér-
aðsstjórnarkosningum í Baskalandi
í gær, samkvæmt útgönguspám, en
stjórnarflokkurinn vann aftur á
móti sigur í Galisíu.
Mariano Rajoy forsætisráðherra
fær því misvísandi skilaboð, en
stjórn hans hefur staðið í ströngu
við að skera niður í ríkisfjármál-
um og gæti þurft á fjárhagsaðstoð
frá Evrópusambandinu og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum að halda.
Úrslitanna var beðið í von um að
sjá af þeim hvort aðhaldsaðgerðirn-
ar eigi stuðning vísan. - gb
Mikilvægar kosningar í tveimur héruðum Spánar:
Lítt hjálpleg úrslit
KOSIÐ Á SPÁNI Héraðsstjórnir í Galisíu
og Baskalandi voru kosnar í gær.
NORDICPHOTOS/AFP