Fréttablaðið - 22.10.2012, Síða 15
ÍSLENSKAR ULLAR-
MOTTUR Gólfmott-
urnar eftir Sigrúnu
Láru Shanko og Sigríði
Ólafsdóttur eru á leið á
erlendan markað. Hér
heima fást þær í Epal og
Kraum.
MYNDIR/PJETUR
Við hittumst fyrst á textílverkstæð-inu á Korpúlfsstöðum. Sigga gekk með þann draum í maganum að
búa til gólfmottur en hún lærði fínflos-
aðferð í Svíþjóð. Við stofnuðum saman
fyrirtækið fyrir rúmu ári og samhliða
því að standsetja húsnæðið unnum við
hugmyndir og skissur. Við sýndum svo
fyrstu motturnar í Epal á HönnunarMars
2012,“ útskýrir Sigrún Lára Shanko en
hún rekur fyrirtækið Élivogar ásamt Sig-
ríði Ólafsdóttur, textíl- og vöruhönnuði
en þær hanna og framleiða gólfmottur
úr hreinni, íslenskri ull.
Boltinn fór strax að rúlla eftir Hönn-
unarMars og í framhaldinu fengu þær
stöllur umfjöllun í sænska Elle interiour
og boð um þátttöku á hönnunarsýn-
ingu í Helsinki. Þá voru þær meðal topp
tíu hönnuða á HönnunarMars að mati
wgsn.com.
„Motturnar sem fóru til Helsinki eru
þar enn á sýningu á heimili íslenska
sendiherrans þar. Þá erum við að vinna
spennandi verkefni fyrir Hótel Rangá og
fleiri aðilar hafa einnig haft samband. Þá
er markaðssetning í útlöndum handan
við hornið en við erum komnar með um-
boðsaðila í Bretlandi. Það er því margt
spennandi í farvatninu,“ segir Sigrún.
Munstrin á mottunum eru unnin upp
úr loftmyndum og landakortum af Ís-
landi. Þær eru handunnar og því verður
engin þeirra alveg eins. „Við handteikn-
um munstrið á vefinn sem er strengdur
á ramma. Vélknúin nál festir þræðina
en framleiðslan sjálf tekur um það bil 5
daga. Hver motta er númeruð svo hægt
er að rekja sögu hennar, hvernig hún
er unnin, af hverjum og hvaða litir eru
í henni. Þannig getum við lagað mottu
fyrir viðskiptavin með því að fletta upp
númerinu. Eins er hægt að sérpanta
hjá okkur aðra liti í eitthvert munstur
eða koma með eigið munstur sem við
hjálpum til við að þróa í mottu.“
Auk gólfmottanna hafa Sigrún og Sig-
ríður hafið framleiðslu á sessum, sem
þær kalla Piece of Iceland. „Við hugsum
þær eins og þúfur sem hægt er að kippa
með sér og setjast á úti. Við berum nátt-
úrulegt latex undir svo þær taka ekki til
sín raka. Ég veit ekki til þess að íslenska
ullin hafi verið nýtt á þennan hátt áður,“
segir Sigrún.
Nánar á www.elivogar.com og á
facebook.
■ heida@365.is
NÁTTÚRAN Á GÓLF
ÍSLENSK HÖNNUN Sigríður Ólafsdóttir og Sigrún Lára Shanko framleiða gólf-
mottur úr íslenskri ull. Munstrin eru unnin út frá loftmyndum og kortum.
JÓLIN NÁLGAST
Mörgum finnst jólin nálgast þegar jólaórói Georgs Jensen
kemur á markað, enda hefur hann söfnunargildi. Að þessu
sinni er hönnunin sótt til sögunnar um fæðingu Jesú en hún
á að tákna betlehemsstjörnuna. Rebecca Uth á heiðurinn af
hönnuninni að þessu sinni.
Gerðu gæða- og verðsamanburð
FINNDU MUNINN
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00
*3,5% lántökugjald
ÝMIR rúm 153x203 aðeins kr. 124.900
ÝMIR, SAGA, FREYJA,
ÞÓR OG ÓÐINN
Hágæða svæðisskiptar heilsudýnur
Valhöll heilsudýna
5 svæðaskipt gormakerfi
153x203 aðeins kr. 89.900
Tilboðsverð
12 mánaða vaxtalausar greiðslur*