Fréttablaðið - 22.10.2012, Síða 18
KYNNING − AUGLÝSING MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 20122 Hugbúnaður & hugbúnaðargerð
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s.512-5432 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Eitt fjölmargra hugbúnaðarfyr-irtækja sem náð hafa góðum árangri erlendis undanfarin
ár er AGR. Fyrirtækið, sem er fimm-
tán ára gamalt, hefur þróað kerfi
sem nefnist AGR Innkaup og held-
ur utan um innkaup og birgða-
stýringu hjá fyrirtækjum og nýt-
ist þannig við stýringu aðfanga-
keðjunnar. Flest stærstu fyrirtæki
landsins sem selja neytendavörur
eru viðskiptavinir AGR og rúm-
lega tveir þriðju tekna þess koma
erlendis frá. Finnur Tjörvi Braga-
son, markaðsstjóri fyrirtækis-
ins, segir íslenska markaðinn að
mestu mettaðan og fyrirtækið ein-
blíni nú á ráðgjafaþjónustu við inn-
lenda viðskiptavini ásamt áfram-
haldandi útrás á erlenda mark-
aði. „AGR Innkaup á þátt í stýringu
innkaupa á miklum meirihluta
neysluvara Íslendinga, til dæmis
matvöru, áfengis, lyfja, varahluta
og byggingavara svo nokkur dæmi
séu tekin. Við höfum starfað á
þessum markaði hérlendis
í rúmlega áratug með
góðum árangri.“
Áframhaldandi
útrás
Fyrir fimm árum hóf
AGR útrás til Dan-
merkur og Englands
sem hefur gengið
mjög vel að sögn Finns.
Fyrirtækið hefur skrifstofur
í Danmörku og Englandi þar sem
til samans starfa átta starfsmenn.
„Vaxtartækifæri okkar eru á er-
lendum mörkuðum næstu árin.
Við seljum lausnir okkar í dag í
Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu
með góðum árangri.“ Hann nefnir
sem dæmi að dönsku stórfyrirtæk-
in Rosendahl
og BoConcept
noti AGR Inn-
kaup auk fjöl-
margra annarra
fyrirtæja. „Kerf-
ið er notað til
að stýra stórum að-
fangakeðjum, en meðal
viðskiptavina eru fyrirtæki
á borð við Pet Valu í Bandaríkj-
unum. Þeir nota kerfið okkar í níu
vöruhúsum sínum og 450 versl-
unum. Þannig að búnaður okkar
kemur víða við.“ Í sumar tók fyrir-
tækið þátt í spennandi samkeppni
í Singapore þar sem innkaupalausn
þess var valin sú besta í flokki við-
skiptagreindar. Í framhaldinu var
gerður þriggja ára samstarfssamn-
ingur við hugbúnaðarfyrirtæki
þar í landi um endursölu á lausn-
um AGR. „Þetta verkefni er styrkt
af hinu opinbera í Singapore. Fyrir-
tækið ræður fimm manns í vinnu
til að læra á lausnina okkar og
kynnir hana síðan á Asíumarkaði
sem er gríðarlega spennandi tæki-
færi fyrir okkur.“
Ný vara á markað
AGR setti nýlega á markað nýja
lausn sem heitir AGR Áætlanir.
Um er að ræða kerfi sem tvinnar
saman innkaupa- og áætlunarferli
fyrirtækja. „Þetta er næsta skrefið í
stýringu aðfangakeðjunnar þegar
búið er að fullkomna innkaupin.
Við kynntum kerfið fyrir ári síðan
og nokkur fyrirtæki hérlendis eru
nú þegar búin að innleiða það.
Við nutum aðstoðar Tækniþróun-
arsjóðs við að þróa kerfi okkar en
erum einnig í góðu samstarfi við
Háskólann í Reykjavík. Nýja kerfið
opnar mikla möguleika fyrir okkur
bæði hérlendis og erlendis en það
býður upp á áður óþekkta mögu-
leika við áætlanagerð fyrirtækja
og er því góð viðbót við þær lausnir
sem AGR býður.“
Aukin
tækifæri á
erlendum
mörkuðum
AGR selur lausnir á sviði innkaupastjórnunar og
hefur náð góðum árangri hérlendis. Undanfarin ár
hefur fyrirtækið einblínt á erlenda markaði og
mörg spennandi tækifæri eru fram undan.
„Vaxtartækifæri okkar eru á erlendum mörkuðum næstu árin. Við seljum lausnir okkar í dag í Evrópu, Bandaríkjunum
og Asíu með góðum árangri,“ segir Finnur Tjörvi Bragason, markaðsstjóri AGR. MYND/PJETUR
Árið 2009 kom út bókin Markaðssetning á netinu eftir Kristján og Guðmund
Arnar Guðmundsson. Á þessu ári
kom svo út bókin Global Seach
Marketing í Bandaríkjunum eftir
hann og Anne Kennedy. „Bókin er
skrifuð fyrir Ameríkana með það
að leiðarljósi að hjálpa þeim að
ná inn á Evrópumarkað. „Margir
Bandaríkjamenn halda til dæmis
að Evrópa sé eitt land og að þar
tali allir sama tungumál. Eða að
við hér á Norðurlöndunum skilj-
um öll hvert annað og tölum sama
mál. Þetta er bók sem hjálpar þeim
að skilja heiminn aðeins betur og
ná þannig betri árangri í markaðs-
setningu á netinu.”
Atlantis fundin
En hvað er góð markaðssetning?
„Internetið er gríðarlega stórt og
nánast eins og búið sé að finna
hina týndu eyju Atlantis þar sem
2,2 milljarðar búa. Til þess að ná til
fólks í slíkum fjölda þarf að finna
rétta leið til að verða sýnilegur
gagnvart sínum markhópi.“
Verslunarmiðstöðin internetið
„Það mætti líka líkja þessu við
verslunarmiðstöð. Ef þú ert með
hillu með ákveðinni vöru í sem
allir ganga fram hjá getur verið að
hún sé ekki rétt staðsett. Það þarf
ekki að vera að varan sé slæm, hún
er bara ekki sýnileg. Ef þú hins-
vegar færir hilluna örlítið til eða
breytir henni þannig að hún verð-
ur sýnileg getur það skipt sköp-
um. Mitt hlutverk er að aðstoða við
að finna út úr því hvar og hvern-
ig þessari hillu er best komið fyrir
á netinu.“ Kristján nefnir Ingu
Maríu Guðmundsdóttur sem
dæmi um einstakling sem fundið
hafi sína hillu á netinu. „Inga rekur
dúkkulísuvefinn dressupgames.
com. Hún fann sína hillu á netinu
og þar með sinn markhóp. Hún er
einn tekjuhæsti einstaklingurinn
á Ísafirði vegna þess.“
Sýnileiki með réttum orðum
Sýnileiki á leitarvélum fæst til
dæmis með því að nota réttu orðin.
En rétt orð eru ekki það sama og vel
saminn texti á góðri íslensku eða
hvaða tungumáli sem er. „Rétt orð
eru þau orð sem fólk notar í dag-
legu lífi. Sem dæmi mætti taka orð
eins og skeggsnyrti; tæki sem bara
er notað til að snyrta skegg, en það
leitar enginn eftir því. Flestir nota
orðið rakvél. Skeggsnyrtir er hrein-
lega ekki hluti af okkar daglega
máli. Þetta eru svona gryfjur sem
fallið er ofan í og oft eru fyriræki og
fagstéttir með ákveðið málfar sem
tengist þeirra fagi. Almenningur
talar hins vegar allt annað mál.“
Nordic E-marketing
Það er mikið um að vera hjá Krist-
jáni um þessar mundir við rekst-
ur fyrirtækis síns Nordic E-mar-
keting þar sem hann aðstoðar fólk
og fyrir tæki við að ná árangri á
netinu. „Hér starfa á bilinu 15-20
manns og svo erum við með starfs-
stöðvar erlendis. Við sérhæfum
okkur í leitarvélabestun og höfum
unnið fyrir mörg af stærstu fyrir-
tækjum heims eins og Dell, Ice-
landair, Intel og fleiri.“
Heldur ráðstefnur á Íslandi
Kristján ferðast víða um heim og
talar á ráðstefnum um þessi mál
og er nýkomin frá Istanbúl þar sem
hann hélt fyrirlestur á ráðstefnu
um netmarkaðssetningu og held-
ur svo til Slóvakíu í næsta mánuði.
„Svo er Anne Kennedy líka að halda
fyrirlestra í Bandaríkjunum út frá
bókinni okkar. Svo hef ég haldið
ráðstefnur hér á landi á hverju ári
síðastliðin tíu ár um markaðsmál
á netinu. Á þessu ári fæ ég fólk frá
Google, Facebook og Twitter til að
tala ásamt fleirum. Ég hvet áhuga-
sama til að fylgjast með enda ekki
oft sem svona tækifæri bjóðast hér
á landi.“
Kristján segir sýnileika á netinu meðal annars fást með því að nota réttu orðin. MYND/PJETUR
Internetið
er hin týnda
eyja Atlantis
Kristján Már Hauksson flakkar um heiminn og
heldur fyrirlestra um markaðssetningu á netinu.
„Ég vinn við að hjálpa fyrirtækjum og
einstaklingum við að finna bestu mögulegu
leiðirnar til að verða sýnileg á netinu.“