Fréttablaðið - 22.10.2012, Síða 39
KYNNING − AUGLÝSING Hugbúnaður & hugbúnaðargerð22. OKTÓBER 2012 MÁNUDAGUR 3
Dacoda ehf. er hugbúnaðar-fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun hugbúnaðarlausna
fyrir innlendan og erlendan mark-
að. Dacoda var stofnað í byrjun árs
2002 og fagnar því tíu ára afmæli
sínu í ár.
Skýr stefna og traustur grunnur
„Markmið okkar hjá DaCoda hefur
frá upphafi verið að vinna að hag-
nýtum hugbúnaðarlausnum og
veita viðskiptavinum trausta og
góða þjónustu,“ segir Júlíus Freyr
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri og annar eigenda fyrirtæk-
isins. „Hér starfar fagfólk á öllum
sviðum hugbúnaðargerðar, ráð-
gjafar og upplýsingatækni. Starfs-
mennirnir eru tíu og starfa flestir
hér á Íslandi en einnig á Ítalíu og í
Malasíu. Flestir þeirra hafa unnið
hjá fyrirtækinu frá upphafi. Da-
coda tekur þátt í verkefnum með
ýmsum hætti, allt frá hugmynda-
vinnu að hýsingu og daglegum
rekstri.“
Staðið af sér sveiflur
Júlíus segir hrunið hafa haft lítil
áhrif á fyrirtækið og verkefnin
hafi streymt inn án þess að reynt
hafi verið að koma fyrirtækinu
mikið á framfæri. „Eiginfjárstaða
Dacoda er sterk og hefur kenni-
tala þess verið óbreytt frá upphafi.
Viðskiptavinir okkar hafa flestir
verið lengi í viðskiptum við okkur
og þjónustan við núverandi við-
skiptavini hefur aukist mikið frá
hruni. Við höfum lagt áherslu á að
þjónusta þá vel.“
Vefkerfi í stöðugri þróun
Dacoda hefur frá upphafi þróað
Dacoda CMS sem er vefumsjón-
arkerfi fyrir fyrirtæki og stofnan-
ir. Kerfið kom fyrst á markað árið
2002 og hefur frá því verið í stöð-
ugri þróun. „Með dyggri hjálp
viðskiptavina hefur okkur tek-
ist að smíða kerfi sem er sérstak-
lega hannað með það að leiðar-
ljósi að nýir notendur eigi auðvelt
með að tileinka sér vinnubrögð í
kerfinu. Það er þó um leið sveigj-
anlegt svo það hamlar ekki not-
endum með góða þekkingu á vef-
síðugerð og forritun. Frá því sala
á Dacoda CMS hófst hafa viðtök-
ur verið vonum framar.“
Annast sjálfir daglega umsýslu
Viðskiptavinir Dacoda koma úr
ýmsum ólíkum geirum atvinnu-
lífsins. Stór og smá fyrirtæki sem
og margar stofnanir nota vefum-
sjónarkerfið með góðum árangri.
„Með einföldu og þægilegu not-
endaviðmóti gefur Dacoda CMS
viðskiptavinum okkar kost á að
annast sjálfir daglega umsýslu
sinna vefja. Það sem viðskiptavin-
ir okkar eru hvað ánægðastir með
er persónuleg og ábyggileg þjón-
usta í takt við stuttan viðbragðs-
tíma,“ segir Júlíus.
Meira en vefumsjónarkerfi
„Við leggjum mikla áherslu á Da-
coda CMS og almenna vefsíðugerð
en að auki höfum við tekið þátt í
ýmsum öðrum spennandi verk-
efnum. Sem dæmi má nefna ör-
yggis- og netumsjónarkerfi fyrir
bandaríska herinn, gjafakorta-
umsýslukerfi fyrir Landsbank-
ann, mats- og tjónakerfi fyrir Við-
lagatryggingu, smáforrit fyrir
iPhone, iPad, Android og nú síð-
ast fyrir Windows 8 og svo mætti
lengi telja,“ segir Ástþór Ingi Pét-
ursson, verkefnastjóri og annar
eigenda fyrirtækisins.
Útrás á dagskrá
„Það er á dagskrá hjá okkur að
færa út kvíarnar og við höfum
verið í smávægilegri útrás til Bret-
lands og Norðurlandanna. Það
gengur hins vegar svolítið hægt
hjá okkur sökum anna á Íslandi en
markið er sett hátt,“ segir Ástþór.
Viðskiptavinir í fyrsta
sæti hjá DaCoda
DaCoda er tíu ára hugbúnaðarfyrirtæki. Það byggir á traustum grunni og
viðskiptavinir þess hafa flestir verið lengi í viðskiptum við fyrirtækið. Dacoda
hefur þróað sitt eigið vefumsjónarkerfi sem hefur verið í notkun frá árinu 2002
og er í stöðugri þróun.
Ástþór, annar eigenda Dacoda, segir það vera á stefnuskrá fyrirtækisins að færa út kvíarnar og reyna fyrir sér í útlöndum.
Starfsfólk Dacoda á góðri stundu á Segway-hjólum í ferð fyrirtækisins til Amsterdam fyrir ári.
Dacoda hefur frá upphafi þróað Dacoda CMS vefumsjónarkerfi fyrir fyrirtæki og stofn-
anir.