Fréttablaðið - 22.10.2012, Blaðsíða 50
22. október 2012 MÁNUDAGUR22
Við ætluðum að
vinna þetta með eins
miklum mun og við mögu-
lega gátum.
ÁSDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR
EVRÓPUMEISTARI Í HÓPFIMLEIKUM
Ö
ll
ve
rð
e
ru
b
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r o
g/
eð
a
m
yn
da
br
en
gl
.
998kr.pk.
Fullelduð kryddhjúpuð kjúklingasteik
998kr.pk.
Fulleldaðar piparhúðaðar kjúklingalundir
998kr.pk.
Fulleldaðir kjúklingaborgarar úr bringu
1280
Grillaður kjúklingur og Pepsi eða Pepsi Max, 2 l
kr.
tvennan
NÝTT
Fulleldaðir réttir
– tilbúið til upphit
unar
EVRÓPUMEISTARAR Ísland vann tvöfalt í Árósum um helgina. Hér er hópurinn allur á Kastrup í gær. MYND/ÓLAFUR BJÖRNSSON
HÓPFIMLEIKAR Ísland eignaðist tvo
Evrópumeistara í hópfimleikum
um helgina. Ísland varði titil sinn
í kvennaflokki og stúlknasveitin
gerði sér lítið fyrir og vann gull í
sínum flokki. „Mér líður ótrúlega
vel. Það er samt furðulegt að þetta
skuli allt vera búið,“ sagði Ásdís
Guðmundsdóttir, einn Evrópu-
meistara Íslands í kvennaflokki,
þegar Fréttablaðið náði tali af henni
á laugardaginn. „Spennufallið er
algjört en þetta er engu að síður
rosalega ánægjulegt.“
Ísland varð þremur stigum á eftir
Svíum í undankeppninni á föstudag
en stórbætti sig í öllum greinum í
úrslitunum. Niðurstaðan var örugg-
ur sigur en Svíar, sem fengu silfur,
voru þremur stigum á eftir.
Efstar í öllum greinum
„Markmiðið okkar var að verja tit-
ilinn og við áttum rosalega góðan
dag. Við kláruðum þetta nokkurn
veginn eins vel og hægt var,“ sagði
Ásdís. „Það var heilmikið sem við
gátum bætt eftir frammistöðu
okkar í undankeppninni. Í dansin-
um þurftum við að ná þeim æfing-
um sem gefa flest stig og bæta
okkur í stökkunum – hækka þau
og lenda þeim betur. Við ætluðum
að vinna þetta með eins miklum
mun og við mögulega gátum og það
tókst svona vel.“
Ísland endaði með 59,116 stig
og fékk flest stig í öllum þremur
flokkunum – stökkum á trampólíni
og dýnu og dansæfingum á gólfi.
Ásdís segir að reynslan hafi
komið að góðum notum, þó svo
að margar í liðinu hafi ekki verið
með fyrir tveimur árum. „Það var
ákveðin pressa sem fólst í því að
verja titilinn en þær eldri reyndu
að miðla af reynslu sinni til hinna,
sem var vissulega dýrmætt.“
Gróskan mikil
Óhætt er að segja að framtíðin
sé björt í hópfimleikum á Íslandi
enda varð stúlknasveitin einnig
Evrópumeistari.
„Það sýnir og sannar hversu
mikil gróskan er í íþróttinni á
Íslandi. Þær voru efstar eftir
undan keppnina og það þarf sterk
bein til að halda forystunni eins
og þær gerðu,“ segir Ásdís og
bætir við að keppni í hópfimleik-
um á alþjóðavettvangi verði sífellt
harðari.
„Maður sér alltaf mun á getu-
stigi á milli móta og margar þjóð-
ir hafa bætt sig mikið. Við höfum
aldrei æft eins mikið og við gerð-
um í sumar enda vissum við
hversu hörð baráttan yrði,“ segir
Ásdís en æfingar hófust formlega
í júní síðastliðnum.
„Okkur taldist til að æfingarnar
hafi verið 112 talsins í vel á fjórða
hundrað klukkustundir samtals.“
Fyrst og fremst Evrópuíþrótt
Ekki er keppt í hópfimleikum á
alheimsvísu, enn sem komið er.
„Þetta hefur fyrst og fremst verið
Evrópuíþrótt þó svo að maður hafi
heyrt af ýmsum þjóðum sem hafa
verið að þreifa sig áfram á þessu
sviði,“ segir Ásdís en af móti helg-
arinnar að dæma eru Norðurlönd-
in í nokkrum sérflokki.
„Það eru þó fleiri þjóðir að koma
sterkar inn eins og Frakkland,
Þýskaland og Portúgal. Og þá sér-
staklega í karlaflokki en konurnar
hafa líka bætt sig mikið.“
Ísland keppti einnig í blönduðum
flokki, bæði í flokki fullorðinna og
unglinga. Báðar sveitir komust í
úrslit og höfnuðu í fjórða sæti.
eirikur@frettabladid.is
Nánast fullkominn dagur
Kvennasveit Íslands varð um helgina Evrópumeistari í hópfimleikum og varði
þar með titilinn sem Gerplustelpur unnu fyrir tveimur árum. Stúlknasveit Ís-
lands vann einnig gull í Árósum og blönduðu liðin náðu einnig góðum árangri.
FÓTBOLTI Ísland er með forystu í einvíginu gegn
Úkraínu í umspili þjóðanna um sæti í úrslitakeppni
EM sem fer fram í Svíþjóð næsta sumar. Stelpurnar
höfðu betur, 3-2, í fyrri leik liðanna sem fór fram í
Sevastopol í Úkraínu á laugardaginn.
Ísland byrjaði frábærlega í leiknum og komst í
2-0 forystu með mörkum Katrínar Ómarsdóttur og
Hólmfríðar Magnúsdóttur. Úkraína náði þá að svara
fyrir sig með tveimur mörkum en Margrét Lára Við-
arsdóttir tryggði Íslandi á endanum sigur.
„Þetta var opinn og skemmtilegur leikur – kannski
helst til of opinn,“ sagði landsliðsþjálfarinn Sigurð-
ur Ragnar Eyjólfsson. „Við byrjuðum vel en misst-
um dampinn eftir að hafa komist í 2-0. Þær voru þá
meira með boltann enda Úkraína með tæknilega gott
lið sem er hættulegt fram að sækja. En stelpurnar
sýndu hvað í þeim býr með því að koma til baka og
tryggja sér sigurinn.”
Hann segist vera ánægður með þessa niðurstöðu.
„Þetta var erfiður leikur gegn góðu liði á útivelli.
Það er bæði gott að vinna og skora þrjú útivallar-
mörk sem gæti reynst dýrmætt. Við erum alsæl með
þessa niðurstöðu en þetta er síður en svo búið.“
Síðari leikurinn fer fram á Laugardalsvelli á
fimmtudagskvöldið. Jafntefli mun duga Íslandi til
að koma liðinu á EM næsta sumar en Sara Björk
Gunnars dóttir segir að stefnan sé sett á sigur.
„Markmiðið er að halda hreinu og það mun duga
okkur til að komast áfram. Við höfum sýnt að við
erum sterkar á heimavelli og þetta er leikurinn
sem við höfum allar verið að bíða eftir. Það er ekk-
ert annað en sigur sem kemur til greina hjá okkur,“
segir hún.
Ísland tryggði sér sæti í úrslitum EM 2009 með
3-0 sigri á Írlandi á köldu októberkvöldi fyrir fjórum
árum síðan. Aðstæður voru erfiðar og frost í jörðu.
„Við létum það ekki trufla okkur þó svo að hitt
liðið hafi verið að pæla mikið í því. Við höfum áður
spilað á skautasvelli og getum gert það aftur gerist
þess þörf,“ segir Sara Björk. - esá
Ísland í góðri stöðu í umspili fyrir úrslitakeppni Evrópumeistaramótsins 2013:
Ekkert nema sigur kemur til greina
STEFNA Á SIGUR Kvennalandsliðið gerði góða ferð til Úkraínu
um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL