Fréttablaðið - 26.10.2012, Page 4
26. október 2012 FÖSTUDAGUR4
ATVINNUMÁL „Þetta er að verða algjör þvæla,“
segir Rannveig Ásgeirsdóttir, formaður
bæjar ráðs Kópavogs, um stöðuna á málefnum
þeirra sem glíma við langtímaatvinnuleysi.
Um áramótin stefnir í að stór hópur atvinnu-
lausra missi réttinn til atvinnuleysisbóta og
fari þá á framfærslustyrk hjá sveitarfélög-
unum með tilheyrandi útgjöldum fyrir þau.
Rannveig gagnrýnir framgöngu ríkisvaldsins
í málinu.
„Við vorum kölluð með dags fyrirvara á
fund um síðustu mánaðamót hjá velferðar-
ráðuneytinu. Við héldum að þarna væru að
koma fram einhverjar verulegar ákvarðanir
en fundurinn var þá aðeins til að segja okkur
að það væri búið að ákveða að framlengja ekki
bótatímabilið hjá þessum hópi. Sveitarfélögin
þyrftu að vinna hratt og komast að niðurstöðu
um það hvernig þau ætluðu að bregðast við
fyrir lok þessa mánaðar,“ segir Rannveig.
Að sögn Rannveigar er óljóst hvaða fjár-
magn muni fylgja frá ríkinu vegna yfir-
færslu fyrrgreinds hóps frá og með ára-
mótum.
„Menn voru að hugsa um að slökkva
elda þegar var að brenna en hafa
síðan ekki verið að nýta tímann
til að finna heildarlausnir. Það er
engin hugmyndaauðgi,“ segir
bæjarráðsformaðurinn.
Aðspurð kveður Rannveig
lækkun tryggingargjalds og
fjölgun starfa hluta þeirra lausna sem horfa
eigi til. „Það þarf að fá lengingu á bótatíma-
bilinu og aðilar að skuldbinda sig til að
fara í þá vinnu sem þarf til að finna
lausnir. Þetta er samfélagslegt
verkefni sem við þurfum að leysa
saman. Við þurfum hvert á öðru
að halda.“ - gar
Formaður bæjarráðs Kópavogs gagnrýnir framgöngu í málefnum atvinnulausra:
Bótatímabil sé lengt og lausn fundin
Í blaði gærdagsins var ranglega farið
með nafn mannsins sem kom fyrir
sprengju á Hverfisgötunni í janúar.
Hann heitir Snævar Valentínus Vagns-
son, ekki Sævar.
Í frétt blaðsins þann 8. október
um verkefnið Ungleik var einn
aðstandandi verkefnisins, Hávarr
Hermóðsson, rangnefndur. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
DANMÖRK Í fyrra biðu þúsundir
danskra barna eftir bréfi frá jóla-
sveininum án árangurs. Ferða-
málaskrifstofan á Grænlandi,
sem svaraði bréfum allra barna
til jólasveinsins, hafði nefni-
lega orðið gjaldþrota. Til þess að
börnin hætti ekki að trúa á jóla-
sveininn hefur nýtt fyrirtæki,
Destination Avannaa, keypt rétt-
indin að sveinka.
Dönsk börn standa í þeirri trú að
jólasveinninn búi á Grænlandi og
þangað senda þau óska-
lista sína fyrir jólin.
Þau hafa fengið svar
þar til í fyrra. Nýi
rétthafinn ætlar
að sjá til þess að
sveinki svari
börnunum.
- ibs
Vonbrigði danskra barna:
Jólasveinninn
varð gjaldþrota
SVÍÞJÓÐ Silvía Svíadrottning lýsti í
gær yfir ánægju sinni með tilvon-
andi tengdason
sinn, Banda-
ríkjamanninn
Chris O‘Neill
sem Made-
leine prinsessa
hefur trúlofast.
„Hann er algjör
tengda mömmu-
draumur,“
sagði drottn-
ingin í viðtali við
Aftonbladet í gær.
Parið nýtrúlofaða kynntist í New
York sumarið 2010 í gegnum sam-
eiginlega vini. Madeleine hafði
þá flutt til Bandaríkjanna eftir að
hafa slitið trúlofun sinni við Sví-
ann Jonas Bergström eftir að upp
komst um framhjáhald hans. Chris
O‘Neill, sem starfar í fjármála-
geiranum, er sonur Paul og Evu
O‘Neill en samkvæmt Aftonbladet
er hún sögð hafa átt í ástarsam-
bandi við Karl Bretaprins. - ibs
Silvía drottning ánægð:
Prinsessa
trúlofuð Kana
ALÞINGI Vísindasamfélagið
íslenska er á móti banni á úti-
ræktun erfðabreyttra lífvera. 52
vísindamenn skrifa undir athuga-
semd við þingsályktunartillögu
sem hefur í þriðja sinn verið lögð
fram á Alþingi.
Bent er á að í svokallaðri Carta-
gena-bókun um líföryggi, sem
sé viðbót við Samninginn um líf-
fræðilega fjölbreytni, sé hvergi
hvatt til banns við útiræktun
erfðabreyttra lífvera. Þá kemur
fram í nýrri umfjöllun á vef Orf
líftækni um akurræktun á erfða-
breyttu byggi í Danmörku og Sví-
þjóð að á þessu ári hafi í Evrópu
verið gefin rúmlega fjörutíu leyfi
til útiræktunar á erfðabreyttum
plöntum. Orf hefur um árabil
stundað tilraunaræktun á erfða-
breyttu byggi í Gunnarsholti. - óká
Gera athugasemd við tillögu:
52 vísindamenn
mótmæla banni
MADELEINE OG
CHRIS O‘NEILL
RANNVEIG ÁSGEIRSDÓTTIR Fólk
þarf að að vinna saman til að
leysa málefni langtímaatvinnu-
lausra, segir formaður bæjar-
ráðs Kópavogs.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SÝRLAND, AP Lakhdar Brahimi,
sérlegur friðarerindreki Samein-
uðu þjóðanna og arababandalags-
ins í Sýrlandi, hefur undanfarna
daga reynt að fá bæði stjórnar-
herinn og helstu hópa uppreisnar-
manna til að fallast á fjögurra
daga vopnahlé, sem hæfist í dag
og stæði fram á mánudag.
Þessa fjóra daga halda mús-
límar fórnarhátíð, eina helgustu
hátíð ársins. Sú hátíð er haldin
til að minnast þess þegar guð
krafðist þess að Abraham fórn-
aði syni sínum, en lét hann síðan
sleppa með skrekkinn eins og
lesa má um bæði í Biblíunni og
Kóraninum.
Alls óvíst er þó hvort nokkuð
verði úr þessu vopnahléi. Sýr-
landsstjórn hefur verið treg til
að fallast á vopnahléið og viljað
áskilja sér rétt til að svara ef
uppreisnarmenn gera árásir.
Uppreisnarliðið er sundurl eitur
hópur sem skiptist í ótal anga,
sem eru ósammála innbyrðis og
hafa bæði ólík markmið og beita
ólíkum aðferðum.
Enda hafði Brahimi ekki fyrr
tilkynnt um vopnahlé en herská
samtök, tengd Al Kaída, sögðust
ekki ætla að virða það.
Í gær bárust svo fréttir af því
að uppreisnarmenn í borginni
Aleppo, fjölmennustu borg lands-
ins, hefðu sótt hart gegn stjórnar-
hernum og náð nýjum hverfum
á sitt vald. Ekki er vitað hvort
stjórnarherinn sjái sér fært að
láta þessum árangri uppreisnar-
liðsins ósvarað.
Ekki er heldur vitað hvort upp-
reisnarherinn hefur nægan styrk
til að halda þeim hverfum sem
hann náði á vald sitt í gær.
„Þetta kom okkur á óvart,“
sagði Abu Raed, einn uppreisnar-
manna, í Skype-viðtali við frétta-
stofuna AP. „Þetta gekk hratt
fyrir sig og fór í óvænta átt.“
Jan Eliasson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, segir að engin trygging
sé fyrir því að vopnahléið haldi,
en hvatti engu að síður bæði
stjórnar herinn og uppreisnar-
menn til að standa sig.
„Við fylgjumst grannt með
harmleiknum í Sýrlandi, og
bindum vonir okkar nú við vopna-
hléið sem vonandi verður að veru-
leika,“ sagði hann við blaðamenn í
Genf í gær.
Brahimi tók fyrr á árinu við
hlutverki friðarerindreka og hefur
frá upphafi varað við of mikilli
bjartsýni, enda náði forveri hans,
Kofi Annan, engum árangri. - gb
Sýrlandsher heitir
að virða vopnahlé
Uppreisnarmenn sóttu hart gegn sýrlenska hernum í Aleppo í gær, daginn áður
en fjögurra daga vopnahlé á að hefjast í landinu. Mikil óvissa er um vopnahléið,
þótt bæði stjórnarherinn og flestir fulltrúar uppreisnarmanna lofi að taka þátt.
BÖRN Í ALEPPO Ekkert virðist ætla að verða úr fjögurra daga vopnahléi.
NORDICPHOTOS/AFP
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
24°
13°
5°
5°
8°
14°
5°
5°
26°
9°
23°
19°
25°
5°
12°
20°
4°Á MORGUN
Strekkingur með SV- og
S-strönd annars hægari.
SUNNUDAGUR
Strekkingur vestast og
með SA-strönd annars
hægari.
3 2
1
0
-1
7 6
4
55
1
1
2
3
-1
0
-3
-2
-2-1
-6
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
FROST OG ÞÍÐA
skiptast á víða
um land næstu
daga en þó verður
frostlaust með
suður- og vestur-
ströndinni. Bjart
austanlands í dag
en fer að rigna
vestan til eftir
hádegið og snjóa
á NA-landi í kvöld.
Hlýnar til morguns
með rigningu en
líklega snjókoma í
fyrstu NA-til.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
Nafn Þórunnar Hrefnu Sigurjóns-
dóttur gagnrýnanda vantaði við
ritdóm um bókina Millu eftir Kristínu
Ómarsdóttur í blaðinu í gær.
GENGIÐ 25.10.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
226,6574
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,34 126,94
203,81 204,81
164,2 165,12
22,009 22,137
22,045 22,175
18,908 19,018
1,5763 1,5855
194,46 195,62
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Arkitekt Skálholtskirkju var Hörður
Bjarnason en ekki Hörður Ágústsson
eins og ranglega var sagt í leiðara
blaðsins í gær. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
LEIÐRÉTT