Fréttablaðið - 26.10.2012, Síða 34
4 • LÍFIÐ 26. OKTÓBER 2012
Lýtalæknirinn Þórdís Kjartansdóttir syngur og
spilar eins og við sjáum í þætti Sindra Sindra-
sonar, Heimsókn, sem sýndur er í opinni dag-
skrá strax að loknum fréttum Stöðvar 2 á
morgun, laugardag. Í sama þætti heim sækir
Sindri athafnamanninn Kormák Geirharðs-
son sem býr í fallegu og litríku húsi á Lindargötu
ásamt eiginkonu og þremur börnum.
Þórdís lýtalæknir.
Kormákur verslunarmaður.Hjónin Kormákur og Dýrleif hafa sérstakan áhuga á fallegum ljósum og lömpum og sæma þessi ljós sér sérlega vel í
húsinu.
„Mottur og púðar gera heimili hlýleg og falleg,“ segir Þórdís Kjartansdóttir lýta-
læknir, sem býr ásamt manni sínum og börnum í þessu húsi í Stigahlíð í Reykjavík.
07.45 Fjölskyldan vaknar, morgunknús og spjall
með litlu strákunum mínum. Mér
finnst nauðsynlegt að byrja daginn
með því að knúsa börnin mín sem
endar reyndar yfirleitt með því að
allir eru orðnir of seinir og svo drífa
sig allir í föt.
08.15 Morgungrauturinn. Lagði í bleyti kvöldið
áður chia-fræ með goji-berjum,
hnetum, trönuberjum, möndlum
og hörfræjum. Veitir ekki af góðri
byrjun og orku fyrir langan dag.
Systir mín kenndi mér þetta, – til-
tölulega nýr siður sem ég er að
reyna að tileinka mér og gengur
bara frekar vel.
08.30-9.00 Strákarnir keyrðir í skól-
ann og leikskólann.
09.30 Mætt í stúdíóið til hans Vignis Snæs
snillings til að leggja lokahönd á
söngupptökur á laginu „Days gone
by“ sem var síðasta lagið sem hann
Sjonni minn samdi. Guðrún Árný
vinkona mín mætt til að syngja bak-
raddir með mér. Ég elska að syngja
með Guðrúnu.
11.00 Komin upp í Borgarleik-hús í sminkstólinn fyrir
rennsli á nýjustu sýningu Vestur-
ports og Borgarleikhússins. Bast-
arðar heitir hún og þar leik ég hlut-
verk Mörtu. Aðeins tveir dagar í
frumsýningu, spennan og adrena-
línið í hámarki, kíki á línurnar mínar
og geri mig klára fyrir rennsli.
12.00 Hádegismatur í leik-húsinu –lasanja.
13.00 Næstsíðasta æfing með áhorfendum á
Bastörðum hefst. Jói Sig. og Nína
Dögg eru í miðri senu. Ég stend
tilbúin til að koma inn á svið og
hugsa þvílík forréttindi það eru að
fá að vinna með öllum þessum frá-
bæru listamönnum. Fegin finn ég
hvernig gleðin og eftirvæntingin eru
að taka við af spennunni.
15.45 Æfingu lokið og ég hleyp beint út af rennsli
til að ná flugi til Akureyrar. Fæ að
heyra í Gísla Erni leikstjóra í gegn-
um síma með það sem betur má
fara eftir rennslið.
16.00 Komin um borð í flug-vél og vélin farin af
stað til Akureyrar, sé að aðrir far-
þegar stara á útganginn á mér enda
hljóp ég beint af sviðinu, smá tími til
að skoða línurnar mínar fyrir tökur
og hvíla sig aðeins. Það er kannski
pínu undarlegt en ég komst að því
í fyrravetur með reglulegum flug-
ferðum norður að ég næ hvergi
betur að festa svefn heldur en um
borð í flugvél Flugfélags Íslands.
Ég er sofnuð í flugtaki og vakna
ekki fyrr en við lendingu. Ég þyrfti
kannski að láta hanna einhvers
konar flugvélahermi heima hjá mér.
16.45 Lent á Akureyri og er sótt af tökuliðinu á
sjónvarpsþáttunum „Hæ Gosa 3“ til
að bruna á tökustað þar sem ég leik
hlutverk Sölku.
16.50 Komin á tökustað en það eru ekki eins
miklar vegalengdir á Akureyri.
Flestir leikarar þáttanna eru mættir
á undan mér þar sem verið er að
mynda stóra veislu úr síðasta þætti
seríunnar. Arnóri Pálma leikstjóra er
létt við að sjá að ég hafi náð flug-
inu. Ég er drifin í smink og hár og
búning.
24.00 Tökum lokið. Held á gistiheimilið í Hafnar-
stræti eftir algjöran rússíbanadag.
Mikið er þetta skemmtilegt starf.
Sýnist blunda spennufíkill í mér.
01.30 Ansi lúin en samt erfitt að festa svefn. Það er
svo erfitt að skilja persónurnar sínar
eftir í vinnunni svona stuttu fyrir
frumsýningu. Hönnunin á flugvéla-
herminum kemur inn í huga minn
rétt áður en ég næ loks að sofna.
Flug aftur til Reykjavíkur og svo
Bastarðar aftur annað kvöld.
Þórunnar
Ernu Clausen
leikkonu
SINDRI HEIMSÆKIR
LÝTALÆKNI
ATHAFNAMANN
Öflugt gegn
blöðrubólgu
ROSEBERRY
Virkar innan 24 tíma
2-3 töflur fyrir svefn
Fæst í apótekum, heilsubúðum og
í heilsuhillum stórmarkaðanna
www.gengurvel.is
Breakbeat
laugardagskvöld kl. 22r skvöld l.