Fréttablaðið - 26.10.2012, Síða 43

Fréttablaðið - 26.10.2012, Síða 43
KYNNING − AUGLÝSING Ofnar & gólfhitakerfi26. OKTÓBER 2012 FÖSTUDAGUR 3 BYKO hefur um langt skeið selt gott úrval vandaðra ofna frá Quinn, sem er ein fullkomnasta ofnaverksmiðja Evr- ópu, og Ofnaverksmiðju Suður- nesja. Finnbogi Guðmundsson, sölustjóri hjá BYKO, segir ein- göngu gæðaofna vera til sölu hjá fyrirtækinu. „Við seljum panel- ofna sem kallast Voryl-ofnar. Þeir eru framleiddir hjá Quinn Ra- diator í Wales sem býr yfir einni nýjustu og fullkomnustu ofna- verksmiðju í Evrópu. Þar er öll framleiðsla samkvæmt ströng- ustu kröfum varðandi staðla og vottanir. Einnig eru afkastatölur gerðar samkvæmt íslenska staðl- inum ÍST EN 442.“ Helsti kostur Voryl-ofnsins, að sögn Finnboga, er að hann er framleiddur þannig að efri brún hans er rúnnuð en ekki með skarpri brún sem skapar minni slysahættu í umgengni. Auk þess er hann með stóran og öflugan varmaauka sem skapar góða varmagjöf. „Það er vissulega stór kostur við þessa ofna að vera rúnnaðir. Þannig henta þeir sér- staklega vel í skóla, leikskóla og inni á heimilum enda skapa þeir mun minni slysahættu en eldri ofnar.“ Að sögn Finnboga fram- leiðir Quinn einnig ódýrari panel- ofna sem eru þó sambærilegir við aðra ofna á markaði hér lendis en eru með minni varmaauka. BYKO hafi þó valið að vera eingöngu með betri kostinn. „Það má einnig benda á að BYKO hefur einsett sér að vera með góðan lager af ofnum. Í flestum tilfellum eigum við allar stærðir af ofnum á lager hjá okkur og þannig erum við betur í stakk búin til að bregðast f ljótt við óskum viðskiptavina.“ Runtyl-ofnar frá Ofnasmiðju Suðurnesja Auk þess hefur BYKO um langt skeið selt svokallaða Runtyl-ofna frá Ofnasmiðju Suðurnesja sem smíðaðir eru eftir máli. „Þetta eru gæðaofnar sem smíðaðir eru stykki fyrir stykki með sérstökum endum. Þessir ofnar eru notaðir við krefjandi aðstæður, til dæmis þar sem lágir ofnar eru notaðir og mikilla afkasta er krafist. Þeir henta vel fyrir heimili þar sem eru til dæmis stórir stofugluggar og lítið pláss fyrir ofna. Þannig er fólk að velja báðar tegundir ofna fyrir heimili sitt, panelofna í f lestum tilfella en síðan Runtyl-ofna fyrir sérstakar aðstæður.“ Auk fyrrgreindra ofna selur BYKO gott úrval af handklæða- ofnum í nokkrum stærðum. „Þetta eru snyrtilegir og fallegir ofnar og fást á góðu verði hjá okkur,“ segir Finnbogi. Gólfhitakerfi fyrir íslenskar aðstæður Gólfhitakerfi hafa notið sívax- andi vinsælda undanfarin ár. Kerfin hafa ýmsa kosti í för með sér, til dæmis jafna hitadreifingu svo ekki sé minnst á þægindin við að stíga á volgt gólfið þegar farið er fram úr rúminu á köldum vetrar- morgni. Guðmundur H. Einars- son, sölustjóri lagnadeildar BYKO, segir að gólfhitakerfin frá BYKO hafi sannað sig í gegnum tíðina og kerfin virki einstaklega vel við ís- lenskar aðstæður. „Gólfhita kerfin frá BYKO njóta gríðarlegra vin- sælda hjá viðskiptavinum okkar. Til eru margar útfærslur af gólf- hitakerfum og er mikilvægt að gera hlutina rétt og fagmannlega til að fá sem besta nýtingu út úr kerfinu.“ BYKO selur Silverline gólfhitarörin sem eru CE- vottuð þýsk hágæðavara og einstaklega þægileg í lagningu. Þau fást bæði í 16 mm og 20 mm sverleika í öllum lagnadeildum fyrirtækisins. „Þessi gólfhitarör eru fimm laga rör, sem þýðir að hin mikilvæga súrefnis- kápa rörsins er vel varin jafnt að innan sem utan. Það gerir það að verkum að engin hætta er á tær- ingu eða útfellingu vegna gegn- dræpis röra þar sem súrefnis- kápan er innan í rörinu. Gólfhita- rör sem eru með súrefniskápunni á ysta lagi rörsins bjóða því hætt- unni heim.“ Úrval af stýribúnaði Það er mikilvægt að sögn Guð- mundar að velja gæði þegar leggja skal gólfhitakerfi enda er enginn hægðarleikur að skipta um rör þegar búið er að steypa þau inn í gólfið. „Það skiptir máli að velja gæði þegar gólfhitakerfi er valið.“ Lagnadeildir BY KO bjóða einnig upp á gott úrval af bæði þráðlausum og þráðtengdum stýribúnaði fyrir gólfhitakerfi frá Oventrop í Þýskalandi. Reynslu- miklir sölumenn lagnadeildar BYKO eru ávallt reiðbúnir að veita úrvals þjónustu og ráðgjöf varð- andi gólfhitakerfi. Til að tryggja að gólfhitakerfið sé sem hagkvæmast í rekstri skal tryggja að allt sé gert eftir forskrift framleiðanda og skal alltaf leita til pípulagningamanns þegar setja þarf upp gólfhitakerfi. Nánari upplýsingar um ofna og gólfhitakerfi BYKO má finna á www.byko.is. Gott úrval ofna og gólfhitakerfi fyrir allar aðstæður BYKO býður upp á gott úrval vandaðra ofna og gólfhitakerfa fyrir íslenskar aðstæður. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á vandaðar og góðar vörur ásamt traustri ráðgjöf starfsmanna. Góð lagerstaða tryggir skjóta afgreiðslu hjá fyrirtækinu. Starfsmenn BYKO taka vel á móti viðskiptavinum. Finnbogi Guðmundsson er sölustjóri hjá BYKO og Guðmundur H. Einarsson er sölustjóri lagnadeildar BYKO. MYND/GVA Runtyl-ofnar eru frá Ofnasmiðju Suður- nesja og smíðaðir eftir máli. Helsti kostur Voryl-ofnsins er að hann er rúnnaður og skapar því minni slysahættu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.