Fréttablaðið - 26.10.2012, Page 51

Fréttablaðið - 26.10.2012, Page 51
HRÁSKINKUVAFIN FYLLT GRÍSALUND fyrir 4 Hitið ofninn í 220°C. Setjið döðlur og appelsínusafa í pott og látið malla þar til döðlurnar verða að mauki. Kælið stutta stund og blandið furuhnetunum saman við. Skerið rauf eftir endilangri svínalundinni og fyllið hana með döðlumaukinu. Kryddið lundina með pipar og vefjið hráskinkusneiðum utan um hana. Leggið lundina á pappírsklædda ofnplötu og bakið í ofninum í 15 mínútur. Lækkið þá hitann í 180°C og bakið áfram í 10–15 mínútur. Á meðan kjötið er í ofninum steikið þá hvítlaukinn upp úr olíu á meðalheitri pönnu, bætið döðlumaukinu, kókosmjólkinni og grænmetiskraftinum saman við og látið malla þar til kjötið er tilbúið. Kryddið sósuna með salti og pipar eftir smekk. 200 g döðlur, saxaðar 150 ml appelsínusafi 50 g ristaðar furuhnetur 700 g grísalundir 4 stk hráskinkusneiðar nýmalaður pipar Döðlu og kókossósa: 1 msk olía 1 stk hvítlauksrif, pressað 100 g döðlumauk 1 dós létt kókosmjólk 1 stk grænmetiskraftsteningur salt og nýmalaður pipar DAGURINN MIKLI ER Á MORGUN OMDU OG SMAKKAÐU! Föstudaginn kl. 14-18 Laugardaginn kl. 14-18

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.