Fréttablaðið - 26.10.2012, Qupperneq 70
26. október 2012 FÖSTUDAGUR50
HELGIN
Leikarinn Þorvaldur Davíð Krist-
jánsson hefur tryggt sér kvik-
myndaréttinn að glæpasögunni
Snjóblindu eftir Ragnar Jónasson
og voru samningar þess efnis undir-
ritaðir á dögunum. Samningurinn
miðast við að Þorvaldur Davíð leiki
sjálfur Ara Þór, aðalpersónu bók-
arinnar, ásamt því að vera einn af
framleiðendunum.
„Ég er himinlifandi yfir að samn-
ingar hafi tekist og mér skuli vera
treyst fyrir kvikmynda réttinum
að Snjóblindu Ragnars Jónas sonar.
Fléttan í sögunni er þétt ofin og
lausnin óvænt, sögusviðið er mynd-
rænt og persónugalleríið frábært.
Snjóblindu prýðir því allt sem prýða
þarf góða sögu og hún hentar ein-
staklega vel til kvikmyndunar,“
segir Þorvaldur Davíð, sem er í við-
ræðum við hugsanlega meðframleið-
endur bæði hér heima og erlendis.
Hann er hvað þekktastur fyrir leik
sinn í Svartur á leik, sem er önnur
tekjuhæsta íslenska kvikmynd sög-
unnar. Hann varð fyrsti Íslending-
ÞORVALDUR DAVÍÐ KRISTJÁNSSON: HENTAR VEL TIL KVIKMYNDUNAR
Kaupir kvikmyndaréttinn
að krimmanum Snjóblindu
SAMNINGUR Í HÖFN Þorvaldur Davíð Kristjánsson ásamt Ragnari Jónassyni og Bjarna Þorsteinssyni, útgáfustjóra Veraldar.
urinn til að komast inn í leiklistar-
deild hins virta Juilliard-háskóla í
New York þaðan sem hann útskrif-
aðist í fyrra. Hann hlaut Menningar-
verðlaun American Scandinavian
Society árið 2010 og fékk Robin
Williams-styrk sem skólinn veitir.
Ragnar er ánægður með að Þor-
valdur Davíð ætli að koma Snjó-
blindu í nýtt og spennandi form.
„Vonandi mun þetta verkefni einnig
vekja áhuga áhorfenda á að heim-
sækja sögusviðið, Siglufjörð. Það er
auk þess frábært að Þorvaldur ætli
að takast á við það að gæða sögu-
hetjuna lífi en hann smellpassar
svo sannarlega í hlutverk lögreglu-
mannsins unga, Ara Þórs,“ segir rit-
höfundurinn.
Snjóblinda kom út 2010 og var
útnefnd ein af fjórum bestu skáld-
sögum haustsins í Þýskalandi í fyrra
af tímaritinu Gala. Nýlega kom út
þriðja bók Ragnars um lögreglu-
manninn Ara Þór. Hún nefnist Rof
og gerist á Norðurlandi, líkt og Snjó-
blinda, nánar tiltekið í eyðifirðinum
Héðinsfirði. freyr@frettabladid.is
UNG KONA FINNST NAKIN Í SNJÓNUM
Söguþráður Snjóblindu er á þann veg að á Siglufirði finnst
ung kona blóðug og hálfnakin í snjónum, nær dauða en lífi.
Aldraður rithöfundur deyr á grunsamlegan hátt á æfingu
hjá áhugaleikfélagi bæjarins, daginn fyrir frumsýningu. Ari
Þór Arason, nýútskrifaður lögreglumaður, reynir að komast
að því hvað er satt og hvað er logið í samfélagi þar sem
engum virðist hægt að treysta. Einangrunin, myrkrið og
snjórinn þrengja að honum, óttinn nær tökum á bæjar-
búum og gleymdir glæpir fortíðar koma upp á yfirborðið.
„Ég er að spila í Skemmtigarð-
inum í Smáralind í kvöld. Fer á
körfuboltaæfingu á laugardag-
inn og kíki svo kannski í afmæli
um kvöldið. Svo er ég alltaf að
vinna á sunnudögum en þá
tökum við upp GeimTíví-þáttinn
okkar.“
Sverrir Bergmann, tónlistarmaður sem
gefur út plötuna Fallið lauf hinn 1.
nóvember.
Stiklað á stóru um býsna margt svarar þessum
og miklu fleiri spurningum um þann töfrandi og
dularfulla stað sem við köllum alheiminn okkar.
„Við vildum setja saman skemmti-
lega og fræðandi dagskrá um kyn-
líf og á sama tíma vekja athygli á
félaginu okkar, Kynís,“ segir Sigga
Dögg, kynfræðingur og formaður
Kynís.
Kynís-Kynfræðifélag Íslands
stendur fyrir svokölluðum Sex
dögum í Reykjavík sem hefjast
í dag og standa til miðviku-
dags. Þetta er í annað skipti sem
dagarnir eru haldnir, en þeir voru
fyrst árið 2010. „Við stefnum á að
halda þessa daga annað hvert ár,“
segir Sigga Dögg.
Dagarnir hefjast í kvöld með
fyrir lestri um flengingar. Stað-
setning fyrirlestrarins er ekki
gefin upp heldur þarf að skrá sig á
hann á Facebook.com/kynis.is til
að fá nánari upplýsingar. „Það ríkir
mikill misskilningur um flenging-
ar og BDSM. Á sama tíma og fólk
á það til að dæma þessa hegðun er
það líka mjög forvitið um hana,
sérstaklega núna eftir að bækur
eins og 50 gráir skuggar tröllriðu
öllu. Okkur fannst þetta því kjörið
tækifæri til að fræða um BDSM,“
segir Sigga Dögg. Hún hlær þegar
hún er spurð hvort sýnikennsla
verði í boði. „Það verða eflaust ein-
hverjir svekktir yfir því, en nei!“
Nánari dag-
skrá má finna
á áðurnefndri
Facebooksíðu
félagsins. - trs
Flengingar og BDSM misskilið
SEX DAGAR Sigga Dögg, for-
maður Kynís, segir dagana
ætlaða fræðslu um kynlíf.
FRÉTTABLAÐIÐ/HERMANN
„Kanadabúar eru ekki hræddir við
ullina þó að hún stingi smá,“ segir
Birgitta Ásgrímsdóttir, sölu-og
markaðsstjóri hjá prjónafyrirtæk-
inu Varma sem nýverið hóf útrás á
íslensku ullarsokkunum til Kanada.
Það var skóframleiðandinn Ecco
sem heillaðist af klassísku grá-
yrjóttu ullarsokkunum sem flestir
Íslendingar ættu að kannast vel við.
Aðstandendur skóframleiðandans
fræga rákust á sokkana í lítilli vef-
verslun sem 86 ára gamall Vestur-
Íslendingur rekur þar ytra og höfðu
í kjölfarið samband við Varma.
Pöntunin hljóðar upp á þúsund
ullarsokkapör. Hún barst fyrir
tveimur vikum og sokkarnir eiga
að vera komnir í allar Ecco-búðir í
Kanada fyrir mánaðamót. „Þetta er
mjög stórt fyrir okkur. Við seljum
um tíu þúsund pör af þessari teg-
und á ári svo þetta er ágætis viðbót
við það.“
Allt hefur verið á fullu síðustu
vikur í verksmiðju Varma á Akur-
eyri þar sem fimmtán starfsmenn
standa vaktina. „Það hefur verið
mikill hamagangur hérna vegna
þessa. Við höfum sent sokkana út
glóðvolga úr vélunum um leið og
þeir eru tilbúnir.“
Birgitta segir að íslensku lopa-
sokkunum verði stillt upp með
útvistarskólínu Ecco. Hún telur
að þetta sé hugsanlegt upphaf að
auknum vinsældum íslensku ull-
arinnar á heimsvísu. „Við erum að
dýfa litlu tánni í stóran markað og
þetta er spennandi tækifæri fyrir
okkur. Í augnablikinu er aukin
eftirspurn eftir efnum á borð við
íslensku ullina, sem er unnin í sátt
og samlyndi við umhverfi sitt og er
ekki fjöldaframleidd.“ - áp
Íslensku lopasokkarnir í útrás til Kanada
ÍSLENSKA ULLIN VINSÆL Birgitta
Ásgrímsdóttir segir Varma hafa sent
sokkana glóðvolga úr vélunum til
Kanada. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
■ danskt fyrirtæki.
■ stofnað árið 1963.
■ merkið selst í 4.000 búðum í 90
löndum í heiminum.
■ 17.537 starfsmenn starfa hjá
skóframleiðandanum.
ECCO