Fréttablaðið - 27.10.2012, Síða 8

Fréttablaðið - 27.10.2012, Síða 8
27. október 2012 LAUGARDAGUR8 ÍTALÍA Dómstóll í Mílanó dæmdi í gær Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra, í fjögurra ára fangelsi fyrir skattsvik. Skömmu eftir að dómurinn féll kom til- kynning frá dómstólnum um að dómurinn hefði verið styttur í eitt ár vegna laga sem samþykkt voru árið 2006 á ítalska þinginu. Lögin voru samþykkt í tíð vinstristjórnar vegna fjölda fanga og plássleysis í ítölskum fangelsum. Berlusconi hélt fram sakleysi sínu í málinu. Saksóknarar fóru fram á þriggja ára og átta mánaða fangelsi, en dómarinn sá upphaflega ekki ástæðu til að hafa fangavistina styttri en fjögur ár. Berlusconi mun hins vegar áfrýja dómnum og á málið væntan- lega eftir að fara í gegnum tvö dómstig áður en endanleg niður- staða fæst. Þetta er í fyrsta sinn sem Berlusconi er dæmdur sekur, en hann hefur oft verið ákærð- ur fyrir ýmsar sakir, en þá ýmist verið sýknaður eða málinu vísað frá dómi vegna þess að sakirnar voru fyrndar. Fyrr í vikunni skýrði Berlusconi frá því að hann myndi ekki bjóða sig oftar fram til þings. Hann er orðinn 76 ára og hefur þrisvar verið forsætisráðherra Ítalíu. Samtals hefur hann gegnt því embætti lengur en nokkur annar ítalskur stjórnmálamaður frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Hann sagði af sér í nóvember á síðasta ári eftir að hafa misst meirihluta á þingi vegna efnahags- ólgunnar í evruríkjunum, sem Ítalía virtist ætla að fara illa út úr. Auk Berlusconis voru tíu aðrir menn ákærðir í skattsvikamálinu. Þrír þeirra voru dæmdir sekir, þar á meðal bandaríski kvikmynda- framleiðandinn Frank Agrama, sem fékk þriggja og hálfs árs fang- elsi. Þrír sakborninganna voru sýkn- aðir en máli fjögurra þeirra var vísað frá dómi vegna fyrningar- ákvæða laga. Berlusconi sjálfur mætti ekki í dómstólinn þegar dómur var kveð- inn upp. Réttarhöldin í málinu hóf- ust fyrst árið 2006, en þeim var frestað vegna laga, sem Berlusconi fékk þjóðþing landsins til að sam- þykkja, og vernduðu hann gegn lögsókn meðan hann var forsætis- ráðherra. Hæstiréttur landsins sagði þau lög ekki standast stjórnarskrá, og var þá hægt að hefja réttarhöldin á ný. Við þennan sama dómstól í Míl- anó var einnig réttað í gær í öðrum réttarhöldum yfir Berlusconi, en þar er hann sakaður um að hafa greitt stúlku, sem er undir lög- aldri, fé fyrir að eiga með henni kynlíf. Einnig er hann sakaður um að hafa reynt að beita áhrifum sínum til að þagga það mál niður. Hann heldur einnig fram sakleysi sínu í þessu máli. gudsteinn@frettabladid.is Fékk eins árs fangelsisdóm Silvio Berlusconi var dæmdur í fjögurra ára fangelsi á Ítalíu en dómurinn var síðar mildaður í eitt ár. Þetta er í fyrsta sinn sem Berlusconi er sakfelldur. SILVIO BERLUSCONI Fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu sagðist á fimmtudag ekki ætla að bjóða sig oftar fram til þings. NORDICPHOTOS/AFP Félagsfundir Rafiðnaðarsambands Íslands 29. október kl. 12 á Mælifelli, Sauðárkróki 30. október kl. 12 á Strikinu (norðursal), Akureyri 31. október kl. 12 á Hótel Selfossi, Selfossi 1. nóvember kl. 12 á Flughóteli, Reykjanesbæ Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir v a u ar a m p re nt vi llu r. H ei m s ð i fe rð ir ás k r ilj a sé r r ét t t ele il le ið ré t iðið tin g a sl á s lík u. ík A th . a ð v e að að g e rð g et ur b t ey st re ys re ys n f án fy rir v y rarar a.a E N N E M M / S IA 5 • N M 54 28 0 4 Sumarið 2013 komið í sölu Sala hafin! – tilboð á fyrstu 300 sætunum. Alicante aðra leið með sköttum frá 19.900 kr. Ath. Lokað verður á skrifstofu Heimsferða mánu- daginn 29. október vegna árshátíðar starfsfólks. NÝTUR HREKKJAVÖKU Ísbjörninn Sprinter gæðir sér á graskeri fylltu fiski í dýragarðinum í Hannover í Þýskalandi nokkrum dögum áður en hrekkjavakan sjálf gengur í garð. NORDICPHOTOS/AFP MENNING „Ein hugmyndin er að þetta verði á Vitatorgi eða ef til vill á Mýrargötureitnum þar sem gert er ráð fyrir nokkrum litlum torgum,“ segir Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi Besta flokksins, um hugsanlega staðsetningu torgs sem Arkitektur- og designhøgskolen í Ósló hefur óskað eftir að fá að byggja í Reykjavík. Ef borgaryfirvöld samþykkja beiðni skólans verður hönnun torgsins meistaraprófsverkefni nemenda við alþjóðadeild skólans. Skólinn leggur áherslu á skjót svör frá borginni því fjármagna þurfi ferðir og kennaralaun utan við reglulega útgjaldaáætlun skólans. Búast má við að skipulagsráð taki málið fyrir á næstu vikum. Samtökin Í okkar höndum hafa haft milli- göngu um verkefnið. Steinþór Helgi Arnsteins- son, forsvarmaður samtakanna, segir þau systursamtök Nelson Mandela-samtakanna í Suður-Afríku. „Þetta eru góðgerðarsamtök,“ segir hann. „Markmið okkar er fyrst og fremst að kynna og koma áleiðis boðskap Nelson Mandela.“ Þess má geta að rektor Arkitektur- og design- høgskolen gekk í hjónaband hérlendis í sumar er hún giftist íslenskum manni. Steinþór segir að sú heimsókn hafi reynst mikilvægt lóð á vogar skálarnar auk þess sem eiginmaður henn- ar hafi starfað fyrir Nelson Mandela-samtökin. „Hún er mjög hrifin af Reykjavík og líst afar vel á uppbygginguna sem á sér hér stað. Henni er mjög áfram um það að fá að tengja skólann við borgina.“ - gar Norðmenn vilja skjót svör frá forsvarsmönnum Reykjavíkurborgar vegna hugmyndar um Mandela-torg: Nelson Mandela á Vitatorgi eða Mýrargötu Á VITATORGI Steinþór Helgi Arnsteinsson úr sam- tökum um Nelson Mandela á Íslandi segir að gerð minnisvarða um Mandela eigi að verða skapandi vettvangur fyrir borgarbúa. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.