Fréttablaðið - 27.10.2012, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 27. október 2012 19
Stutt svar til Sigurðar Pálssonar vegna greinar hér 23. október.
Ég sagði í Silfri Egils að þetta tal
um að íslenska þjóðkirkjan stæðist
Mannréttindasáttmála Evrópu líkt-
ist flökkusögu – þetta væri sífellt
endurtekið en enginn gæti bent á
haldbær rök eða upplýsingar mál-
inu til stuðnings. Það stendur enn,
þau dæmi sem nefnd hafa verið
síðan hafa ekkert með íslensku
þjóðkirkjuna að gera og virðast
styrkja þá skoðun að hún standist
ekki sáttmálann, ef eitthvað er.
Sigurður segir að einfalt sé að
láta reyna á þetta. Það er auðvitað
ekki rétt. Það kostar vinnu, tíma og
peninga – nokkuð sem við sem ekki
erum á ríkisspenanum með trúar-
eða lífsskoðanir höfum í takmörk-
uðum mæli.
Þetta er reyndar algeng aðferð
kirkjunnar og í takt við barna-
lega hundalógíkina hjá einum þjóð-
kirkjuprestinum sem notar gjarn-
an „þið getið ekki sannað að guð sé
ekki til“ rökleysuna þegar hann er
kominn út í horn.
Þegar kirkjan heldur því fram í
umræðum um fyrirkomulag þjóð-
kirkju á Íslandi að það fyrirkomu-
lag standist mannréttindaákvæði
samkvæmt úrskurði mannrétt-
indadómstólsins… þá stendur upp
á kirkjuna að sýna fram á að þessi
fullyrðing standist. Það er ekki
hlutverk okkar hinna að leggja
í vinnu við að afsanna. Á meðan
kirkjan getur þetta ekki, þá lít ég á
þetta sem flökkusögu.
Ég er búinn að svara þessu um
sóknargjöldin, þau standast ekki
skoðun sem félagsgjöld hversu oft
sem þær rangfærslur eru endur-
teknar og hvað sem nefnd innan-
ríkisráðuneytisins segir. Ef þetta
er sú nefnd sem ég held, þá var
hún að miklu leyti skipuð prestum.
Þá breytir engu þó Siðmennt fái
hugsanlega skráningu sem trúfélag,
eftir standa þeir sem vilja vera utan
félaga og þurfa samt að greiða sinn
skatt. Sigurður segir að það sé við
ríkið en ekki trúfélög að sakast ef
ríkið innheimti skatt af öllum. Það
er rétt, en það er jafn mikið órétt-
læti fyrir því.
Kirkjan er á fjárlögum íslenska
ríkisins, blaðsíðu 89 fyrir 2012,
liður „06-701 Þjóðkirkjan“, með
öðrum ríkisstofnunum. Og um
presta gilda lög og reglur um opin-
bera starfsmenn. Þetta er því ríkis-
kirkja.
Svo því sé haldið til haga þá var
ég alls ekki að saka Sigurð um að
styðja mannréttindabrot, skil ekki
hvernig hann fær það út og stað-
festi hér að það var ekki ætlunin.
Dómurinn sem hann vísar til fjallar
einfaldlega um allt annað mál en
þjóðkirkju og nefnir það nánast í
framhjáhlaupi.
Sigurður hélt því fram í fyrri
grein sinni að það væri sameigin-
legur skilningur ríkis og kirkju
að kirkjan væri ekki ríkisrekin og
styður þá fullyrðingu í þeirri seinni
að hluti af greiðslum sé „afgjald“
af jörðum sem ríkið tók yfir. Þetta
er einfaldlega sitt hvor hluturinn,
jafnvel þeir sem samþykkja þenn-
an sameiginlega (mis)skilning
með jarðirnar geta hæglega litið á
heildar pakkann sem ríkisrekstur.
Sigurður segir að mér verði hált
á svellinu þegar ég vísi til fréttar
blaðsins um hlunnindi presta.
Ég vísa hvergi í þessa frétt, enda
sendi ég greinina inn daginn áður
en fréttin birtist. Ég var að vísa í
deilur prests um hlunnindi af jörð
sem kirkjan átti og á víst sennilega
enn. Minn misskilningur og sjálf-
sagt að leiðrétta. Það er hins vegar
fróðlegt að sjá presta hafa hlunn-
indi af kirkjujörðum á sama tíma
og þeir tala um mikil verðmæti og
mikinn arð þeirra jarða sem ríkið
yfirtók. Getur verið að kirkjan hafi
haldið bestu bitunum og látið ríkið
hirða afganginn?
En ég læt þetta nægja hér í
Fréttablaðinu. Kannski er óhjá-
kvæmilegt að safna liði og fara með
þetta mál til Evrópu.
Ekki flökkusaga?
Trúmál
Valgarður
Guðjónsson
hugbúnaðar-
sérfræðingur
Krúsaðu
frítt í eitt ár
*Upphæð inneignarkortsins er 260.000 kr. sem samsvarar 1.000 lítrum á núverandi verði.
**Meðalakstur miðað við fólksbíl (bensín), árið 2011, samkvæmt Umferðarstofu.
1.000
LÍTRAR INNIFALDIR*
Cruze LTZ bsk. 4d | Verð aðeins 3.190 þús.
Aðein
s
örfáir
bílar
eftir!
Þegar þú kaupir Chevrolet Cruze
færðu 1.000 lítra* inneignarkort
bensíni. Miðað við um 12.200
þú akir frítt í eitt ár.
Chevrolet Cruze er áberandi
glæsilegur og hlaðinn staðalbúnaði