Fréttablaðið - 27.10.2012, Side 46
27. október 2012 LAUGARDAGUR
SÖLUMAÐUR
Viðskiptatorg/Leiguhús.is óskar eftir sölumanni til
starfa nú þegar, þarf að hafa metnað , geta unnið
sjálfstætt, vera áræðinn, skipulagður, stundvís og
duglegur. Laun eru tengd árangri. Til staðar góð vinnu-
aðstaða í þekktu fyrirtæki sem stefnir á að vera ávallt
leiðandi í sinni grein. Vinsamlegast sendið umsókn á
gjy@leiguhus.is
TM // Síðumúla 24 // Sími 515 2000 // tm@tm.is // www.tm.is
Starfssvið:
// Almenn afgreiðsla í líkams- og ferðatjónum
// Samskipti og þjónusta við viðskiptavini og samstarfsaðila
// Gagnaöflun, útreikningar og greiðsla kostnaðar
Starf í tjónaþjónustu TM
Tryggingamiðstöðin óskar eftir að ráða starfsmann í fullt starf í líkams- og
ferðatjónadeild félagsins.
Umsóknarfrestur um starfið er til og með 4. nóvember nk. Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda
á netfangið starf@tm.is. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum
verður svarað.
Björk Viðarsdóttir, forstöðumaður líkams- og ferðatjóna (bjorkv@tm.is) veitir frekari upplýsingar
um starfið.
Hæfniskröfur:
// Háskólamenntun eða önnur haldbær menntun sem nýtist í starfi
// Góð tölvuþekking og tölvulæsi ásamt góðri íslensku- og enskukunnáttu
// Rík þjónustulund
// Viðkomandi þarf að geta starfað sjálfstætt og unnið vel í hópi og undir álagi
// Gerð er krafa um nákvæmni í starfi og markviss og fagleg vinnubrögð
TM er framsækið og metnaðarfullt fyrirtæki sem býður starfsfólki sínu góða vinnuaðstöðu. Ef þú er tryggður - þá færðu það bætt
er loforð TM til viðskiptavina um sanngjarna og hraðvirka tjónaþjónustu. Starfsmenn TM hafa sérþekkingu í aðstoð við viðskiptavini
vegna óhappa og hafa hjálpað fólki í gegnum erfiðleika í tæp 60 ár. Við erum þess fullviss að hvergi er betur staðið að slíkri þjónustu.
Góðan
daginn!
PIPAR\TBWA – Tryggvagötu 17 – 101 Reykjavík
Sími 510 9000 – www.pipar-tbwa.is
Auglýsingastofan PIPAR\TBWA leitar að öflugum
starfsmanni hálfan daginn í móttöku o.fl.
Starfslýsing
Móttaka viðskiptavina, aðstoð við samfélags-
deild og skrifstofustjórnun, ásamt aðstoð við
hin ýmsu tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur
\ Góð íslensku- og enskukunnátta
\ Góð skipulagshæfni
\ Jákvæðni, gott skap og þjónustulipurð
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að fylla
út umsóknarform á Facebook-síðu stofunnar,
facebook.com/pipartbwa, fyrir 2. nóvember nk.
Umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Hjá PIPAR\TBWA eru 32 starfsmenn. PIPAR\TBWA er hluti
af TBWA sem er ein af fram sækn ustu sam starfs keðjum
aug lýs inga stofa í heim inum. Þar starfa um 11.000 manns
á 274 stofum í 100 löndum.