Fréttablaðið - 27.10.2012, Side 68

Fréttablaðið - 27.10.2012, Side 68
KYNNING − AUGLÝSINGVöruflutningar LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 20124 1. Ekki pakka neinu niður sem þú hefur ekki notað síðustu tvö ár. Það er ólíklegt að þú eigir eftir að gera það úr þessu. Gefðu það frekar eða farðu með í Sorpu. 2. Byrjaðu að pakka um leið og þú veist að f lutningarnir standa til. Það hefur ekkert upp á sig að bíða fram á síðasta dag með að pakka. Skynsamlegt væri að byrja á háaloftinu og geymslun- um og sortera þá hluti frá sem þú notar ekki lengur. 3. Merktu vandlega alla kassa með innihaldi og einnig í hvaða her- bergi þeir eiga að fara. Merktu á allar hliðar svo það sjáist strax hvert kassinn á að fara, sama hvernig hann snýr. 4. Einnig væri hægt að númera hvern kassa og skrá númerin niður í bók ásamt innihaldslýs- ingu. Það er auðveldara að fletta upp í bókinni þegar þarf að finna ostaskerann en að rífa upp alla kassa sem merktir eru „eldhús“. 5. Merktu þá kassa sem innihalda hluti sem strax þarf að nota með stjörnu. Raðaðu stjörnumerktum kössum á sama stað þegar á nýja staðinn er komið. Þannig get- urðu strax tekið upp kaffikönn- una án þess að þurfa að leita. 6. Ef börn eru á heimilinu er snið- ugt að bera kassana úr barnaher- bergjunum síðast í flutningabíl- inn. Þannig verða þeir fyrstir inn á nýja staðinn og hægt að stand- setja barnaherbergin strax svo börnin geti sofið í sínu herbergi fyrstu nóttina. 7. Mikilvæga hluti, eins og uppá- haldsbangsann sem ekki er hægt að vera án, skaltu flytja í þínum eigin bíl svo þeir týnist ekki í kassaflóðinu. Ráðleggingar fengnar af síðunni www.ehow. com. Bókhald yfir kassana Gott skipulag er grundvallaratriði þegar búslóðaflutningur standa yfir. Huga skal tímanlega að flutningunum og losa sig við óþarfa dót úr geymslunum. Gott skipulag er grundvallaratriði í flutningum. NORDIC HOTOS/GETTY Sniðugt er að halda bókhald um innihald hvers kassa. Ekki pakka uppá- haldsbangsanum niður í kassa. Liebherr T282 B er stærsta vörubíla- tegund í heimi. Þessir risavörubílar hafa verið notaðir víða um heim við námuvinnslu og uppgröft. Þeir hafa gegnt stóru hlutverki meðal annars í kolanámum í Ástralíu og Wyom- ing, gullnámum í Nevada, járnupp- grefti í Suður-Afríku og koparnám- um í Síle. Það er ef til vill ekki nógu lýs- andi að segja að vörubíllinn sé ein- ungis stærstur í heimi því stærð hans er gífurleg. Bílarnir geta borið allt að fjögur hundruð tonn á há- markshraða sem er 65 kílómetrar á klukkustund. Einn Liebherr-trukk- ur er 225 tonn, 15 metra langur, 7,5 metrar á hæð og þvermál dekkja hans er 6,5 metrar. Trukkurinn er knúinn áfram af gríðarstórri dísil- vél sem er 3.650 hestöfl og var byggð af fyrirtækinu Detroit Diesel and Cummins. Mótorarnir og rafkerf- ið var hannað af Siemens og dekk- in eru búin til af dekkjavörufram- leiðendunum þekktu, Michelin og Bridgestone. Verðmiðinn á bílnum er litlar þrjár milljónir dollara eða 382 milljónir íslenskra króna. Að- eins 75 eintök af bílnum eru seld á hverju ári þar sem markaðurinn fyrir hann er svo lítill og sérhæfður. Stærsta vandamálið við þessa risa trukka sem eru á stærð við með- alhús er það hvernig á að stöðva þá. Í þeim eru sérstakir rafmagnsmót- orar sem við hemlun geta skap- að meira en sex þúsund hestafla hemlunarkraft. Auk þess eru hefð- bundnar bremsur í bílunum en þær eru einungis notaðar í neyðartilfell- um vegna þess að þær geta auðveld- lega ofhitnað vegna mikillar þyngd- ar bílsins. Stærsti trukkur í heimi Vörubíllinn Liebherr T282 B er álíka stór og hús. Hann er aðallega notaður í námum og við uppgröft. Liebherr var fyrst kynntur í München árið 2004. Aðeins eru tvær leiðir til að f lytja vörur til og frá Íslandi og er flugleið-in tvímælalaust sú sem er skjótvirk- ari. Icelandair Cargo er með fjórar Boeing 757-fraktflutningavélar í rekstri, þ.a. eru tvær sem fljúga frá Íslandi til þriggja áfanga- staða í Evrópu og Ameríku. Auk þess nýtum við farþegavélar Icelandair sem fljúga til rúmlega 30 staða beggja vegna Atlants- hafsins. Þetta kerfi er síðan stutt með öfl- ugu trukkakerfi á landi og samningum við önnur flugfélög fyrir fjærmarkaði eins og t.d. Asíu. „Útkoman er sú að við getum flutt vörur til og frá Íslandi til allf lestra landa heims á mjög skömmum tíma,“ segir Sig- urgeir. Umfangsmikið flutningsnet Íslandsvélarnar fljúga til þriggja staða mörg- um sinnum í viku. „Cargo-vélarnar okkar fljúga sex daga vikunnar frá Liège í Belgíu og East Midland í Bretlandi. Auk þess tvisv- ar sinnum til New York í Bandaríkjunum. Ef varan er staðsett annars staðar notum við öflugt leiðakerfi farþegaflugs Icelandair með því að setja fragtvörur í lestar á farþega- vélunum. Icelandair er með stórt leiðakerfi og háa flugtíðni á yfir 30 staði í Evrópu og N-Ameríku. En einnig erum við með stórt flutningskerfi á landi í Evrópu.“ Trukkakerfi um alla Evrópu Við erum með stórt trukkakerfi í Evrópu fyrir þá fragt sem ekki getur farið með far- þegafluginu, til dæmis vegna stærðar eða þyngdar. Þá höfum við þann möguleika að senda fraktina landleiðis til Liège í Belgíu þar sem fragtvél Icelandair Cargo f lytur hana svo til Íslands. Tíminn flýgur með þér Margir af viðskiptavinum Icelandair Cargo eru fyrirtæki sem vilja fá vörur afhentar með skömmum fyrirvara. „Þau vilja jafn- vel spara fjármuni með litlu lagerhaldi sem krefst þess að geta fengið afhentar vörur með skömmum fyrirvara. Hver sem ástæðan er þá gætum við tekið við vöru hvar sem er í Evrópu í dag og komið henni heim í gegnum Liège í nótt. Varan væri þá afhent í Keflavík í fyrramálið. Þannig er afgreiðslutími jafn- vel minna en sólarhringur, sem er ansi gott. Liège í Belgíu er í innan við 400 km fjarlægð frá öllum helstu viðskiptasvæðum Íslands á meginlandi Evrópu og hentar því mjög vel til fragtflutninga hvað staðsetningu varðar.“ Einstaklingar og fyrirtæki Fraktflutningar Icelandair Cargo henta bæði einstaklingum og stórum sem smáum fyr- irtækjum. „Umfangsmestu vöruflokkarnir sem við flytjum eru lyf, tískuvara, tölvur og tæknivörur og varahlutir í bíla svo eitthvað sé nefnt. Flytjum líka mjög mikið af græn- meti og ferskvöru sem kemur allt með flugi. Það eru í raun fá takmörk fyrir því hvað fólk getur flutt nema stærð og þyngd. Allar upp- lýsingar um leyfilega stærð fragtar ásamt fleiru eru aðgengilegar á heimasíðu okkar http://www.icelandaircargo.is/. Þú vinnur tíma með því að fljúga með Icelandair Cargo Icelandair Cargo er með umfangsmikið flutningsnet fyrir vöruflutninga um allan heim. „Leiðakerfi Icelandair Cargo telur á fjórða tug áfangastaða og tryggir þannig einstaka möguleika fyrir alla þá sem flytja þurfa vörur til og frá landinu á skömmum tíma,“ segir Sigurgeir Már Halldórsson, forstöðumaður innflutningssviðs hjá Icelandair Cargo. Ferskt grænmeti og ferskvara auk lyfja, tískuvara, tæknivara og varahlutir í bíla eru meðal þess sem flutt er með vélum Icelandair Cargo. Icelandair Cargo er með fjórar Boeing 757-fragtflutn- ingavélar í rekstri sem fljúga til þriggja áfangastaða. Sigurgeir Már segir Icelandair Cargo geta flutt vörur til og frá Íslandi til allflestra landa heims á mjög skömmum tíma.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.