Fréttablaðið - 27.10.2012, Page 90

Fréttablaðið - 27.10.2012, Page 90
27. október 2012 LAUGARDAGUR54 54 popp@frettabladid.is Poppfræðingurinn Dr. Gunni hefur ritað sögu íslenskrar dægurtónlistar í bókinni Stuð vors lands. „Ég veit ekki hvað ætti að vera meira töff en þetta,“ veltir Dr. Gunni fyrir sér um Stuð vors lands, spánnýja bók hans um sögu dægur- tónlistar á Íslandi. Bókin er að sönnu í veglegum umbúðum, kassa sem er í líki vínylplötu, og vega herlegheitin á fjórða kíló. „Þetta er auðvitað fárán legur metnaður. Hin bókin var ekki nema eitt og hálft kíló og forljót að auki, þar sem ein- hver bleik slikja hafði verið sett yfir aðra hvora mynd. Í þetta sinn vildi ég gera þetta svo vel að það þyrfti ekki að gefa út aðra svona bók næstu fimmtíu árin. Ég ákvað að gefa út flottustu bók sem hefur komið út á Íslandi,“ bætir popp- fræðingurinn við og minnist sér- staklega á þátt hönnuðarins Hrafns Gunnarssonar í útlitinu, en sá er líka mikill tónlistaráhugamaður. „Bókin myndi ekki líta svona vel út ef Hrafn væri áhugamaður um fluguhnýtingar.“ Með „hinni bókinni“ á Gunni við Eru ekki allir í stuði?, bók sína frá árinu 2001, en þá var undir- titillinn „Saga rokks á Íslandi á síðustu öld“. „Þannig komst ég upp með að sleppa ýmsu sem flokkast ekki beint undir rokk, en nú er skilgreiningin mun víð- ari: Saga dægurtónlistar á Íslandi. Allur textinn úr hinni bókinni er í nýju bókinni, en harkalega endur- skrifaður, og svo hef ég bætt við gríðarlega miklu efni í báðar áttir. Ég var að bæta inn nýju efni alveg þar til bókin fór í prentun og náði í rassgatið á Of Monsters and Men, Ásgeiri Trausta og fleirum. Skemmtilegast fannst mér samt að færa tímabilið aftur í aldir. Þar- síðasta sumar heimsótti ég mesta safnara 78-snúninga platna á land- inu, Sigurjón Samúelsson sem býr afskekkt í Ísafjarðardjúpi, og sat hjá honum í marga klukkutíma að hlusta á íslenska tónlist sem ég hafði hvorki heyrt né haft áhuga á. Þannig opnaðist fyrsti kafli bókar innar upp fyrir mér. Það er allt þarna, harmóníkutónlist, fusion, Ríó tríó og svo framvegis. Fílingur inn í poppskrifum hefur verið á þann veg að ekkert hafi verið til áður en Elvis kom, en það er auðvitað ekki rétt. Það verður ekkert til úr engu, nema kannski alheimurinn,“ segir Dr. Gunni, sem fagnar útkomu Stuðs vors lands í Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi föstudaginn 2. nóvem- ber næstkomandi. kjartan@frettabladid.is FÁRÁNLEGUR METNAÐUR POPPFRÆÐINGUR Dr. Gunni heldur á fjórða kílói af nýrri sögu íslenskrar dægur- tónlistar á lofti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Þetta voru ömurleg og sárgrætileg mistök á sínum tíma og gott að geta leiðrétt þau í þetta sinn,“ segir Dr. Gunni um svonefndan „eitískafla“ sem datt út við prentun Eru ekki allir í stuði fyrir ellefu árum. Kaflinn, þar sem meðal annars er tæpt á Dúkkulísunum, Rikshaw og Herberti Guðmunds- syni, hefur verið aðgengilegur á heimasíðu höfundarins en birtist nú á ný í allri sinni dýrð á prenti. „TÝNDI KAFLINN“ DÚKKULÍSURNAR Vínlandsleið 6 • Sími 533 3109 Smáratorgi, Kópavogi • Á milli The Pier og Toys’R’us Hlustunarpartí var haldið í Iðnó í tilefni annarrar plötu Skálmaldar, Börn Loka. Góðir gestir samfögnuðu með hljómsveitinni. Önnur plata víkingarokkaranna í Skálmöld, Börn Loka, er nýkomin út. Af því tilefni var efnt til hlustunarveislu í Iðnó fyrir góða gesti. Platan var að sjálfsögðu til sölu ásamt glænýjum stuttermabolum merktum henni. Fyrri plata Skálmaldar, Baldur, hefur selst í mörg þús- und eintökum hérlendis og er að öllum líkindum sölu- hæsta þungarokksplata Íslands frá upphafi. Börn Loka var tekin upp á vormánuðum þessa árs. Líkt og á Baldri er umfjöllunarefnið í þjóðlegum stíl. Leik- sviðið er Ísland til forna, víkingar og norrænar goðsagna- verur eru áberandi og verkið ein samhangandi heild. Sagan segir frá umrenningnum Hilmari, sem fær það verkefni að berjast við afkvæmi Loka, Fenrisúlf, Mið- garðsorm og Hel. Sena gefur plötuna út hér heima en austurríski þungarokksrisinn Napalm Records annast útgáfuna erlendis. Víkingarokkarar og Börn Loka í Iðnó HLUSTUÐU Á Guðni Konráðsson, Oddný Sigurbergsdóttir og Edda Óskarsdóttir hlustuðu á Börn Loka. SKÁLMÖLD Rokkararn- ir í Skálmöld fögnuðu nýju plötunni, sem heitir Börn Loka. Í STUÐI Guðmundur Erlingsson, Huld Óskarsdóttir og Jón Örn Bergsson voru hress. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VARIETY (Bandaríkjunum)THE GUARDIAN (Bretlandi) HOLLYWOOD REPORTER (Bandaríkjunum)EMPIRE (Bretlandi) ★★★★★ ★★★ ★★ ★★★★ ★★★★ ★ VIÐBRÖGÐ ERLENDRA MIÐLA VIÐ SKYFALL
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.