Fréttablaðið - 08.11.2012, Page 4
8. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR4
Barack Obama endurkjörinn forseti Bandaríkjanna
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
12°
9°
10°
9°
12°
10°
10°
23°
11°
20°
7°
19°
1°
11°
13°
3°Á MORGUN
10-23 m/s NV- og
V-til síðdegis.
LAUGARDAGUR
Strekkingsvindur
um allt land.
1
2
0
0
-2
-2
2
3
3
4
7
17
9
10
8
6
5
5
4
4
7
8
2
2
0-1
3
-3 -3
-1
-1
0
VERSNANDI
Það lítur út fyrir
versnandi veður á
norðvestanverðu
landinu í nótt en á
morgun og annað
kvöld má víða
búast við stormi
og slæmri færð
á vesturhelmingi
landsins. Á laugar-
dag verður stíf
norðanátt um allt
land og snjókoma
nyrðra.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Barack Obama vann örugg-
an sigur á Mitt Romney í
forsetakosningum vestra
á þriðjudag. Demókratar
halda jafnframt naumum
meirihluta í öldungadeild
þingsins en eru áfram í
minnihluta í fulltrúadeild.
Fram undan bíður því frek-
ari glíma forsetans við
þingið.
Dýrustu kosningabaráttu í sögu
Bandaríkjanna lauk með öruggu
endurkjöri Baracks Obama.
Í sigurræðu sinni sagðist Obama
vera vonbetri fyrir hönd Banda-
ríkjanna en nokkru sinni fyrr.
Sigri hans var jafnframt vel fagn-
að af þjóðarleiðtogum víða um
heim.
Þegar talning atkvæða var langt
komin í gær var Obama kominn
með tæplega 60 milljónir atkvæða
á móti 57 milljón atkvæðum mót-
frambjóðandans Mitt Romneys.
Obama var þar með búinn að
tryggja sér 303 kjörmenn af 538
og allt stefndi í að hann fengi 29
kjörmenn til viðbótar í Flórída,
eða 332 kjörmenn alls á móti 206
kjörmönnum Romneys.
Munurinn í Flórída var það lít-
ill að ekki var hægt að útiloka að
endurtelja þyrfti atkvæðin þar, en
endurtalning þar myndi samt engu
breyta um sigur Obamas í kosn-
ingunum.
Það sem réði úrslitum um
sigur Obamas virðist vera fylgi
hans meðal kvenna, yngra fólks,
borgar búa og þjóðernisminnihluta,
einkum af rómönskum og afrísk-
um uppruna. Fylgi Romneys var of
bundið við hvíta karla í eldri kant-
inum til að tryggja honum sigur.
Auk forsetakjörs fór á þriðju-
daginn að venju fram kosning til
þjóðþings Bandaríkjanna, þar sem
kosnir voru allir þingmenn öld-
ungadeildarinnar til tveggja ára
og þriðjungur þingmanna fulltrúa-
deildarinnar til sex ára.
Niðurstöðurnar urðu þær að
demókratar halda naumum meiri-
hluta sínum í öldungadeild Banda-
ríkjaþings, en eru áfram í minni-
hluta í fulltrúadeild.
Þetta þýðir að Obama verður
áfram í þeirri stöðu að geta ekki
treyst á stuðning þingsins við þau
frumvörp sem hann vill koma í
gegn.
Hann hefur engu að síður fengið
fjögur ár í viðbót til að reyna að
efna gömul loforð sem strönduðu í
þinginu og treysta um leið frekar
í sessi þær umbætur á heilbrigðis-
málum sem honum tókst að fá sam-
þykktar í þinginu þrátt fyrir harða
andstöðu margra repúblikana.
Eitt brýnasta verkið verður að
ná samkomulagi við repúblikana
um fjárlagahengjuna svonefndu,
sem felur í sér sjálfvirkar skatta-
hækkanir og niðurskurð útgjalda
á næsta ári.
„Nú þegar kosningunum er lokið
er kominn tími til að setja pólitík-
ina til hliðar og vinna saman að
því að finna lausnir,“ sagði demó-
kratinn Harry Reid, leiðtogi meiri-
hlutans í öldungadeildinni.
gudsteinn@frettabladid.is
thorgils@frettabladid.is
Obama segist vonbetri en nokkru sinni
Þegar öldungadeildin kemur saman eftir ára-
mót verða þar nokkur tímamót því að þá verða
tuttugu konur meðal þeirra 100 sem þar eiga
sæti, fleiri en nokkurn tíma fyrr. Á yfirstandandi
þingi eiga sautján konur sæti, og hafa aldrei
verið fleiri. Þær sem koma nýjar inn á þing eru
repúblikaninn Deb Fischer og demókratarnir
Tammy Baldwin og Elizabeth Warren.
Demókratar beittu málefnum kvenna mjög
fyrir sig í kosningunum og í forsetakosningun-
um hlaut Obama atkvæði 55 prósenta kvenna.
Aukinn hlutur kvenna
Þrátt fyrir að sigur Baracks Obama hafi verið
nokkuð öruggur þegar á allt er litið, hafa sitjandi
forsetar jafnan átt betra gengi að fagna þegar verk
þeirra hafa verið lögð fyrir dóm kjósenda. George
W. Bush var að vísu með minna fylgi árið 2004 og
faðir hans, George Bush eldri, var felldur eftir eitt
kjörtímabilið árið 1992 líkt og Jimmy Carter árið
1980 og Gerald Ford fjórum árum áður. Hér má
sjá hvernig nokkrum fyrrverandi forsetum hefur
reitt af.
2004 George W. Bush gegn John Kerry: 286 kjörmenn gegn 251
1996 Bill Clinton gegn Bob Dole: 379 kjörmenn gegn 159
1984 Ronald Reagan gegn Walter Mondale: 525 kjörmenn gegn 13
1972 Richard Nixon gegn George McGovern: 520 kjörmenn gegn 17
1964 Lyndon B. Johnson gegn Barry Goldwater: 486 kjörmenn gegn 52
Endurkjör oft meira sannfærandi
Ronald Reagan var
endurkjörinn með
miklum mun árið 1984.
Alls voru 176 álitamál lögð fyrir
kjósendur í 38 ríkjum meðfram
kosningum til þings og
forseta. Kjósendur geta
jafnan komið tillögunum
á kjörseðla síns ríkis með
undirskriftasöfnun. Afdrif
tillagnanna
176 voru með
ýmsum hætti:
■ Kjósendur í
Maine og Mary-
land samþykktu að
leyfa hjónabönd
samkynhneigðra
og auk þess eru
allar líkur á að slíkt
verði einnig samþykkt í
Washington-ríki. Þá höfnuðu
íbúar Minnesota tillögu um að
banna slík hjónabönd.
■ Tillögur um að leyfa sölu á
kannabis til almennra neytenda
voru samþykktar í Colorado og
Washington en ekki Oregon.
■ Allt útlit er fyrir að kjósendur í
Kaliforníu hafi hafnað tillögu
um að afnema dauðarefsingar
í ríkinu.
■ Í Massachusetts felldu kjós-
endur naumlega tillögu um að
heimilt verði að aðstoða fólk við
sjálfsvíg.
■ Tillaga um auknar takmarkanir
á fóstureyðingum var felld í
Flórída.
■ Í Oklahoma var samþykkt bann
við jákvæðri mismunun.
Kannabis,
aftökur og fleira
FAGNAÐI MEÐ FJÖLSKYLDUNNI Barack
Obama fagnaði endurkjöri í faðmi konu
sinnar og dætra. Eftir harða kosninga-
baráttu gegn Mitt Romney hafði Obama
sigur með því að tryggja sér stuðning
303 kjörmanna, hið minnsta, en 270
þurfti til sigurs. NORDICPHOTOS/AFP
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Nýr sportjeppi á hrikalega góðu verði
Dacia Duster
Kr. 3.990 þús.
GROUPE RENAULT / NISSAN BL. ehf / Sævarhöfða 2
110 Reykjavík / Sími 525 8000
www.dacia.is
Dísil 5,3L/100 km
Úrslit þingkosninga
Kosið um 33 sæti af 100
52
191 232
45
2
Demókratar
Demókratar
ÖLDUNGADEILDIN
Repúblikanar
Repúblikanar
Óháðir
FULLTRÚADEILDIN
Í gærkvöldi voru úrslit enn óráðin
um eitt sæti í öldungadeild og
tólf sæti í fulltrúadeild.
Kosið um öll 435 sætin.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP ©GRAPHIC NEWS
Kjörmenn
303 206 29
50,3 % 48,1 %
1,6 % Aðrir
Obama Romney Óráðið
Heildaratkvæði