Fréttablaðið - 08.11.2012, Blaðsíða 6
8. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR6
Styrkt umgjörð tölvunnar
hentar vel fólki á ferðinni.
Listaverð 239.990 kr. stk.
1-9 tölvur 159.900 kr. stk.
10+ tölvur 149.900 kr. stk.
DELL Latitude E5430
Öflugur vinnuhestur
á góðu verði
Nánari upplýsingar á www.advania.is/kynningarverd
í síma 440 9010 eða í tölvupósti sala@advania.is
Öll verð eru með vsk.
Tilboðið gildir á meðan birgðir endast.
SAMFÉLAGSMÁL Framkvæmdastjóri
Hjúkrunarheimilisins Eirar mun
koma fyrir fjárlaganefnd Alþing-
is á morgun til að ræða stöðuna
sem upp er komin þar. Hjúkrunar-
heimilið er tæknilega gjaldþrota
og skuldar íbúum tvo milljarða
króna og öðrum kröfuhöfum sex
milljarða.
Sigurður Rúnar Sigurjónsson,
framkvæmdastjóri Eirar, segir að
verið sé að vinna að lausn máls-
ins og ræða við hagsmunaaðila.
Þeim sé öllum haldið upplýstum
jafn óðum. „Við verðum bara að
reyna að leysa þetta. Það er ekk-
ert annað í boði.“ Sigurður kom
til starfa hjá Eir um áramótin
og stöðvaði allar greiðslur þegar
honum varð staðan þar ljós.
Sigurður, sem var um árabil
ritari fjárlaganefndar Alþingis,
mun koma fyrir nefndina á morg-
un. „Okkur er málið skylt. Eir fær
fjármuni af fjárlögum, einn og
hálfan milljarð í ár í formi dag-
gjalda og annars,“ segir Björn
Valur Gíslason, formaður fjár-
laganefndar. Þá nefnir hann að
byggingar hafi verið fjármagn-
aðar af Íbúðalánasjóði og feng-
ið framlög úr framkvæmdasjóði
aldraðra auk þess sem ýmsir
samningar hafi verið gerðir við
Eir. „Við berum ábyrgð á því að
hafa eftirlit með framgangi fjár-
laga og meðferð fjármuna ríkis-
ins. Á þeim grunni er hann boð-
aður á fund.“
Björn Valur segir að óskað
verði eftir því að Sigurður upp-
lýsi nefndina um stöðu mála og
hvort hætta sé á því að Eir verði
gjaldþrota. „Og svo væntanlega í
kjölfarið hver aðkoma okkar gæti
verið ef einhver, með það í huga
að sjá til þess að íbúar fái það sem
þeim var lofað, þjónustu og geti
búið áfram í sínum íbúðum.“
Hann hefur verið harðorður
í garð fyrrverandi stjórnenda.
„Enda vissu menn nákvæmlega
hvað þeir voru að gera, tóku við
fjármunum alveg fram á mitt
þetta ár vitandi að það var allt
farið fjandans til. Það á ýmislegt
meira örugglega eftir að koma í
ljós ef málið verður rannsakað,
sem ég held að sé óhjákvæmi-
legt,“ segir Björn Valur um þessi
ummæli.
Halda átti fund í stjórn Eirar í
dag en honum var frestað fram
til mánudags. Hagsmuna aðilar
bíða nú fundarins, en það var
stjórnin sem óskaði eftir fjár-
hagslegri úttekt frá Ríkisendur-
skoðun. Ríkisendurskoðun hafn-
aði þeirri beiðni og telur sig ekki
hafa umboð til að endurskoða hús-
rekstrarsjóð Eirar.
Þá er verið að undirbúa full-
trúaráðsfund Eirar, sem haldinn
verður í lok mánaðarins. Í ráðinu
eiga sæti stofnendur Hjúkrunar-
heimilisins, meðal annars
Reykjavíkur borg, Mosfellsbær
og Seltjarnarnes. Vilhjálmur Þ.
Vilhjálms son stjórnarformaður er
einnig formaður fulltrúaráðsins.
thorunn@frettabladid.is
Skýrir stöðu Eirar
fyrir fjárlaganefnd
Framkvæmdastjóri Eirar kallaður fyrir fjárlaganefnd á morgun. Málið nefnd-
inni skylt enda fær hjúkrunarheimilið framlög á fjárlögum, segir formaðurinn.
Stofnendur og íbúar fylgjast með og bíða fundar stjórnar, sem var frestað.
HJÚKRUNARHEIMILIÐ Unnið er að lausn mála og stjórnarfundar á mándaginn er
beðið.
HEILBRIGÐISMÁL Ríkisstjórnin sam-
þykkti á fundi sínum í gærmorg-
un að veita Landspítalanum 600
milljónir til tækjakaupa á næsta
ári til viðbótar við þær 262 sem
spítalanum voru ætlaðar til þess
á fjárlagafrumvarpi næsta árs.
Spítalinn mun því geta keypt tæki
fyrir 862 milljónir á næsta ári.
Það er meira en tvöfalt það sem
hann fékk á þessu ári. Á fjár-
lögum ársins 2012 voru honum
einnig skammtaðar 262 milljón-
ir, en við bættust 150 milljónir á
fjáraukalögum sem tilkynnt var
um nýlega.
„Það er lífsnauðsynlegt fyrir
okkur að fá þetta og er í samræmi
við það sem við höfum sagt, að við
þurfum milljarð á ári næstu þrjú
ár til að koma okkur í horf,“ segir
Björn Zoëga, forstjóri Landspítal-
ans. „Það er mikið fagnaðarefni
að stjórnvöld hafi skilning á þess-
ari þörf.“
Hann segir að þessara auknu
fjárveitinga muni sjá stað í starf-
semi spítalans hægt og bítandi
allt næsta ár. „Það tekur tíma að
kaupa inn tæki, fara með þetta í
útboð og annað. Sú vinna hefst
strax í dag.“ - sh
Ríkisstjórnin ákveður að veita Landspítalanum 600 milljónir til tækjakaupa:
„Lífsnauðsynlegt fyrir okkur“
ÁNÆGÐUR Forstjóri Landspítalans segir
að undirbúningur fyrir tækjakaupin hafi
hafist í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á Vísi er hægt að horfa
myndskreyttan upplest
úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
á
ur
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928
í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað.
Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna hollenska meistarans
G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára.
MENNTUN Háskóli Íslands (HÍ)
þarf 600 milljónir króna hið
minnsta til að geta sinnt hlut sínu.
Þetta segir Kristín Ingólfsdóttir,
rektor HÍ.
Fjárskortur á háskólasviði
hefur verið í umræðunni vegna
erfiðrar stöðu Háskólans í
Reykjavík (HR). Meðal annars
gagnrýndi rektor HR, í viðtali við
Fréttablaðið fyrr í haust, að nið-
urskurður á ríkisframlögum til
HR hafi verið meiri en til ríkis-
háskóla. Árið 2010 hafi HR aðeins
fengið fjórtán prósent framlaga
þrátt fyrir að útskrifa átján pró-
sent háskólanema.
Kristín segir framlög til HÍ
hafa lækkað um átján prósent að
raunvirði frá hruni, þrátt fyrir að
nemendum hafi á sama tíma fjölg-
að um átján prósent.
„Ef við berum tekjur HÍ saman
við meðaltekjur háskóla í OECD-
ríkjunum vantar um fjóra millj-
arða upp á hjá okkur,“ segir Krist-
ín og bætir við að HÍ hafi einsett
sér að sækja um þriðjung af þeim
mismun í formi sértekna, til
dæmis í gegnum rannsóknarsjóði.
Mikið standi þó enn út af.
„Við leggjum áherslu á að
tekjur okkar hækki að lágmarki
um 600 milljónir frá því sem nú
er gert ráð fyrir í fjárlagafrum-
varpi,“ segir Kristín. Þeir fjár-
munir séu vegna greiðslu fyrir
um 600 nemendur sem nú sé
ekki greitt með, hækkunar launa
stundakennara og kaupa á mikil-
vægum tækjabúnaði.
Kristín segir að þrátt fyrir það
hafi HÍ getað sótt fram í vísinda-
og fræðastarfi og komist í hóp 300
bestu háskóla heims.
„Þetta höfum við byggt á vilja
og áhuga starfsfólks en það er
ekki lengur hægt og nú verðum
við að snúa við blaðinu því það er
svo mikið í húfi þegar litið er til
framtíðar.“ - þj
Rektor Háskóla Íslands segir stefna í óefni vegna fjárskorts skólans:
Þurfa 600 milljónir til viðbótar
FJÁRÞURFI Rektor segir HÍ þurfa 600
milljónir til að geta sinnt hlutverki sínu.
FRAKKLAND Ríkisstjórn Frakklands
hefur lagt til að samkynhneigðum
verði bæði leyft að ganga í hjóna-
band og ættleiða börn. Frumvarp
þess efnis verður lagt fram í janú-
ar. Fjölmargir hafa lýst yfir and-
stöðu við þessi áform, þar á meðal
Kaþólska kirkjan. Efnt hefur verið
til mótmæla í tugum franskra
borga og bæja.
Francois Hollande Frakklands-
forseti segir þessa breytingu
verða til mikilla framfara, „ekki
aðeins fyrir einstaklinga heldur
fyrir samfélagið allt“. - gb
Frumvarp í Frakklandi:
Samkynhneigð-
ir fái að giftast
... tóku við fjár-
munum alveg
fram á mitt þetta
ár vitandi að
það var allt farið
fjandans til.
BJÖRN VALUR GÍSLASON
ÞINGMAÐUR OG FORMAÐUR
FJÁRLAGANEFNDAR ALÞINGIS
GENGIÐ 07.11.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
225,8279
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,76 127,36
202,91 203,89
162,83 163,75
21,827 21,955
22,214 22,344
19,017 19,129
,5768 1,5860
194,06 195,22
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR