Fréttablaðið - 08.11.2012, Síða 12

Fréttablaðið - 08.11.2012, Síða 12
8. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR12 12 hagur heimilanna GÓÐ HÚSRÁÐ Stöku sokkavandræði Passa þarf að þeir skiljist ekki að í þvotti Á hverju heimili má finna hrúgu með stökum sokkum. Þeir eru vandamál út af fyrir sig. Þá vita margir fátt leiðinlegra en að reyna að þvotti loknum að para saman ótal samlita sokka þannig að úr verði pör. Slá má tvær flugur í einu höggi með því að nota öryggisnælur (sikkris- nælur) til þess að næla saman hvert par á tánum áður en sokkarnir eru settir í þvottavélina. Þannig ætti vandamál stakra sokka að vera úr sögunni, sem og leiðindin við pörunina eftir þvott. Beco greinir frá því á Facebook- síðu sinni að biðlisti eftir nýjum linsulokum frá Canon (Lens Cap Mark II) sé orðinn á við símaskrá að þykkt. Mögulega er þar aðeins fært í stílinn, en um leið rétt að nýju lokanna hefur verið beðið með nokk- urri eftirvæntingu. Nýbreytnin í Mark II-lokunum er að komið hefur verið fyrir smellubúnaði á lokinu miðju þannig að auðveldara er að smella lokinu af og á. Ný lok eiga að fást frá og með janúar næstkomandi, að því er fram kemur á „munnmælavef um Canon-málefni“, canonrumors.com. Símaskrárþykkur biðlisti eftir nýjum linsulokum Það getur verið um helm- ingi ódýrara að þvo bílinn sinn sjálfur í þvottastöð sem býður upp á slíkt en að láta þvo bílinn í svokall- aðri burstastöð. Ný könnun Félags íslenskra bifreiða- eigenda, FÍB, sýnir jafn- framt talsverðan mun á verði burstastöðvanna. Mínútan á þvottastöðvum N1, þar sem menn þvo bílinn sjálfir, kost- ar 100 krónur, að sögn Jóhanns P. Jónssonar, umsjónarmanns þvotta- stöðvanna. „Meðalþvottatíminn fyrir venjulegan fólksbíl er 10 mín- útur þannig að þvotturinn kostar þá þúsund krónur.“ Að sögn Jóhanns hafa menn aðgang að tjöruleysi, háþrýstitæki með sápu í, kústi með sápu í, hreinu vatni í háþrýstitæki og háþrýsti- tæki með bóni. Hjá Löðri kosta 50 sekúndur 100 krónur og er svipaður búnaður í boði og hjá N1. Aki menn bílnum sínum í bursta- stöð er þjónustan talsvert dýrari. Tjöruhreinsun, þvottur, bón og blástur kostar 1.990 krónur fyrir fólksbíla hjá N1 en 2.490 krónur hjá Löðri, samkvæmt könnun FÍB. Löður býður félögum í FÍB 200 króna afslátt. Vetrarþvottur hjá Shell kostar 1.590 krónur fyrir alla bíla og lúxus vetrarþvottur 2.190 krónur. Hjá bílaþvottastöðinni Glans er verðið 2.190 krónur fyrir fólksbíl. FÍB-afslátturinn hjá Glans er 25 prósent. Hjá Bón- og þvottastöðinni er afsláttur félagsmanna í FÍB 15 pró- sent. Þar handþvo starfsmenn bíl- inn. Á vefsíðu Umhverfissviðs Reykjavíkur er bent á að þeir sem þvo bílinn sinn heima þurfi alltaf að nota umhverfisvæn bílaþvottaefni. Bílasápur og olíuhreinsiefni inni- halda efni sem geta verið skaðleg umhverfinu. Við bílaþvott á götunni eða í innkeyrslunni rennur þvotta- vatnið ásamt olíuleifum og þung- málmum sem losna við þvott beint í niðurföll og berst með lögnum út í sjó. ibs@frettabladid.is Helmingi ódýrara að þvo sjálfur Verðkönnun FÍB á bílaþvotti Jeppar, pall- Fólksbílar Jepplingar og sendibílar Löður 2.490 kr. 2.890 kr. 3.190 kr. Bón- og þvottastöðin 2.150-2.550 kr. 2.750 kr. 2.950 kr. Höldur 2.880 kr. 2.880 kr. 3.780 kr. N1 1.990 kr. 1.990 kr. 1.990 kr. Glans 2.190 kr. 2.190 kr. 2.390 kr. Verðið hjá Shell getur verið 1.590 til 2.190 krónur fyrir allar bílastærðir. Í 10–11 finnurðu frábært vöruúrval. Á salatbarnum í 10–11 færðu hollt og gott salat með öllu því sem þér þykir best. Sjáumst á salatbarnum! Fljótlegt og þægilegt BÍLLINN ÞVEGINN Mínútan á þvotta- stöðvum N1 kostar 100 krónur. ER SÚ HLUTFALLSLEGA LÆKKUN sem orðið hefur á verði hveitis síðustu þrjú ár.6,25%

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.