Fréttablaðið - 08.11.2012, Blaðsíða 27
Við pottana standa mæðgurnar Jaroon og Sukanya Nuamnui, rómaðir sælkerakokkar á
austur lenska vísu.
„Naree Thai er gælunafn yfir fallegar
taílenskar konur,“ útskýrir Jaroon um
merkingu nafngiftar veitingastaðar-
ins, sem var opnaður í ársbyrjun í
brekkunni ofan við Laugaveg, á horni
Frakkastígs og Grettisgötu.
Jaroon er frá héraðinu Sukhothai,
sem er norðarlega í Taílandi. Hún
hefur verið búsett hérlendis síðan á
níunda áratugnum og er gift Sigurði B.
Guðmundssyni. Þau hjón hafa mikla
reynslu af austurlenskri matargerð
og stofnuðu meðal annars taílenska
veitingastaðinn Menam á Selfossi við
góðan orðstír.
„Matreiðslan á Naree Thai er ættuð
frá heimahéraði mínu í Taílandi þar
sem ríkuleg áhersla er á ferskt græn-
meti. Á matseðlinum eru þekktir aust-
urlenskir kjöt- og fiskréttir en í ljósi
vaxandi eftirspurnar eftir aðalréttum
úr grænmeti og tófú höfum við útbúið
sérstakan matseðil með hefðbundnum
taílenskum sælkeraréttum þar sem
grænmeti og tófú eru uppistaðan í
stað kjöts. Það hefur slegið í gegn
og margir eru ánægðir með að geta
breytt eftirlætiskarríréttum sínum í
grænmetis rétti,“ segir Jaroon.
„Hingað er notalegt að koma og
staðurinn hefur yfir sér mikinn sjarma
og rólegt og ljúft yfirbragð. Því kjósa
gestir að setjast hér niður og hafa það
huggulegt yfir taílenskum krásum og
skemmtilegu spjalli,“ segir Jaroon.
Á Naree Thai bjóðast einnig freist-
andi tilboð á völdum réttum úr
taílenska eldhúsinu fyrir tvo, bæði
hefðbundnir réttir og af grænmetis-
matseðli.
„Viðtökurnar hafa verið yndislegar
og orðsporið farið vaxandi eins og
vinsældirnar. Töfrar taílenskrar matar-
gerðar felast í ferskleika og bragð-
miklum mat sem þó skilur fólk ekki
eftir logandi í munni. Taílenskur matur
endurspeglar taílenska þjóð sem er
glaðlynt, elskulegt og kærleiksríkt fólk.
Þeir sem hafa komið til Taílands verða
ekki samir eftir heimsóknina og sækja
aftur og aftur í matinn góða sem þeir
kynntust í landi brossins.”
SÆKJA Í BRAGÐIÐ
AF TAÍLANDI
NAREE THAI KYNNIR Frá aldargömlu húsi við Frakkastíg berst unaðsleg og
lokkandi angan af heimagerðum taílenskum mat, upprunnum í landi bross-
ins. Þar má njóta alkunnra taílenskra sælkerarétta á hefðbundinn máta og í
gómsætum grænmetisútgáfum.
MATUR Í
MIÐBÆJARSJARMA
Naree Thai stendur
í brekkunni ofan við
Laugaveg, á horni
Frakkastígs og Grettis-
götu. Þangað er gott að
koma til að eiga góða
stund yfir dásamlegum
mat.
MYND/STEFÁN
KJÖT EÐA
GRÆNMETI?
Á Naree Thai er hægt
að panta þekkta
austurlenska rétti með
grænmetisfyllingu í stað
kjötfyllingar.
FYRIR LASIN BÖRN
Alls kyns pestir ganga nú á leikskólum. Lasin
börn eru lystarlaus en þau þurfa bæði orku og
vökva. Góð leið til að koma einhverju ofan í þau
er að gefa þeim frostpinna, annaðhvort heima-
gerðan úr ferskum ávöxtum eða keyptan úr búð.
KOKKARNIR
Mæðgurnar Jaroon og
Sukamya Muamnui,
eigendur og yfirkokkar
á veitingastaðnum
Naree Thai.
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
10-14 laugardagaVIÐ
BR
EYT
UM
30%
og
40%
AF
SLÁ
TTU
R
ÁÐUR KR. 8.680,- og 30% afsláttur
ýmsar gerðir í boði
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00
LAGERÚTSALA
að Kletthálsi 13
Rýmum fyrir nýjum vörum
Aðeins í 3 daga!
20-70%
afsláttur
fimmtud. 8. nóv. 12-18
föstud. 9. nóv. 12-18
laugard. 10. nóv. 12-16
Sími lagarútsölunnar er 660 0023