Fréttablaðið - 08.11.2012, Side 28
FÓLK|TÍSKA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ
sem býður auglýsendum að kynna
vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn:
Jónína María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is s 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbs@365.is, s 512 5432
Elsa Jensdóttir
elsaj@365.is s. 512-5427
VEKJA ATHYGLI Á
SJÁLFBÆRNI Árný
Sigurðar dóttir stendur
fyrir fjáröflunarkvöldi
fyrir Rauða krossinn
ásamt Þuríði Rögnu
Jóhannes dóttur og
Huldu Dröfn Atla-
dóttur á Rosenberg á
mánudags kvöldið.
MYND/STEFÁN
Við viljum vekja athygli á Rauða krossinum og því hvernig hönn-uðir og fyrirtæki og samfélagið
allt geta unnið saman að sjálfbærni,“
segir Árný Sigurðardóttir. Hún stendur
fyrir fjáröflunarkvöldi fyrir Rauða kross
Íslands á Café Rosenberg næsta mánu-
dagskvöld ásamt Þuríði Rögnu Jóhannes-
dóttur og Huldu Dröfn Atladóttur.
Á samkomunni verður til sölu notaður
fatnaður úr Rauða krossinum og fatnaður
eftir íslenska hönnuði úr Leynibúðinni á
Laugavegi en hönnuðir gefa 15 prósent
af andvirði sölunnar til Rauða krossins.
Einnig verður tekið við sparifatnaði til
Rauða krossins á staðnum og haldin
tískusýning á sparifatnaði sem starfs-
menn Vífilfells söfnuðu innanhúss hjá sér
til styrktar Rauða krossinum.
Árný stundar mastersnám í umhverfis-
og auðlindafræði við HÍ og fékk þá hug-
mynd út frá skólaverkefni að koma upp
tengslaneti milli hönnuða og listafólks
sem stundar sjálfbærni.
„Mig langaði líka sjálfa að búa til hluti
á sjálfbæran hátt og hafði samband við
Rauða krossinn um samstarf. Stefnan er
að setja upp viðburði sem þennan um
allt land og fá til liðs við okkur hönnuði á
hverjum stað en við erum búnar að halda
einn slíkan viðburð á Snæfellsnesi sem
gekk vel. Út um allt land er fólk að vinna
hluti á sjálfbæran hátt en veit ekki hvert
af öðru. Við viljum líka vekja athygli á hve
mikið er til af hráefni sem nýta mætti bet-
ur, til dæmis föt, en Rauði krossinn flytur
út milli 700 og 800 tonn af fatnaði sem
seldur er á vægu verði. Með samstarfi við
hönnuði mætti auka verðmætin,“ segir
Árný. Sjálf hefur hún búið til fatnað undir
merkinu Sow og hugði á hönnunarnám
eftir listnámsbraut í Iðnskólanum. Leið
hennar lá þó í allt aðra átt. „Ég tók algera
U-beygju og fór í hagfræði og stjórn-
málafræði á Bifröst og svo í umhverfis-
og auðlindafræði. Nú er ég komin með
góðan grunn fyrir hönnunina,“ segir hún
hlæjandi.
Fjáröflunarkvöldið hefst klukkan 19.30
mánudagskvöldið 12. nóvember á Rosen-
berg. Bjarndís Helga Tómasdóttir verður
kynnir kvöldsins og verður með uppi-
stand og spuna. Plötusnúður mun svo
halda uppi fjörinu um kvöldið. Nánar má
forvitnast um viðburðinn á Sow Icelandic
Creation á Facebook. ■ heida@365.is
SAFNA SPARIFÖTUM
UMHVERFISVÆN UPPÁKOMA Árný Sigurðardóttir stendur fyrir fjáröflunar-
kvöldi fyrir Rauða krossinn á Rosenberg í samvinnu við íslenska fatahönnuði.
Tekið verður við sparifötum á staðnum.
Mikið úrval af hönskum
og töskum fyrir herra.
FEÐ
NÝ SENDING!
Dömu og herraskór með mannbroddum
Stærðir: 37-47
Mismunandi útlit. Verð: 24.000 kr.
Stelpu og dömu kuldaskór
Stærðir: 27-40
Verð: 12.000-16.000 kr.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Verslunin Belladonna á Facebook
Mikið
úrval af
kjólum og
tunicum
St. 40-58
AFMÆLISHÁTÍÐ
15-50%
afsláttur
af öllum vörum
fögnum 8 ára afmæli með nýrri vörulínu
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS
KOURTNEY AND KIM
TAKE NEW YORK
Skemmtilegir þættir á E!