Fréttablaðið - 08.11.2012, Blaðsíða 32
KYNNING − AUGLÝSINGHeilsa FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Martin hefur ferðast víða og reynir yfirleitt að bjóða upp á hugleiðslunámskeið á
hverjum stað, en Sri Chinmoy-mið-
stöðin er starfandi í yfir sjötíu lönd-
um víðs vegar um heim. „Ég fékk
sjálfur áhuga á hugleiðslu við sext-
án ára aldur og fór að lesa mér til
um hana, en fann svo kennarann
minn, Sri Chinmoy, og hef stund-
að hugleiðslu daglega í ein tíu ár.
Hjá mér snýst þetta um frelsi. Að
geta stjórnað hugsunum mínum
og tilfinningum í stað þess að vera
stjórnað af þeim. Þannig upplifi ég
mig ekki sem fórnarlamb reiði eða
annarra neikvæðra tilfinninga og
hef öðlast ró.“
Sri Chinmoy-miðstöðin var stofn-
uð á Íslandi árið 1974 en hún bygg-
ir á hugmyndafræði Indverjans Sri
Chinmoy. Hann var gífurlega af-
kastamikill á sviði tónlistar, ljóða-
gerðar, myndlistar, bókmennta og
íþrótta. Má til dæmis nefna að Sri
Chinmoy-maraþonliðið, sem stofn-
að var 1977, er það stærsta í heim-
inum og heldur stofnunin yfir 500
íþróttaviðburði á hverju ári um allan
heim. Framlag hans til allra þess-
ara greina vakti víða mikla eftirtekt
en hann sagði hugann aðeins setja
manninum takmörk og með löngum
hugleiðslustundum náði hann ótrú-
legum árangri. Árið 1964 f lutti
hann til New York í þeim tilgangi að
deila sínum innri auð með einlæg-
um leitendum á Vesturlöndum. Sri
Chinmoy var sömuleiðis mikill frið-
arsinni. Hann vann fyrir Samein-
uðu þjóðirnar og stofnaði Friðar-
hlaupið árið 1987 og hafa Íslend-
ingar tekið þátt frá upphafi. Í byrjun
tóku fimmtíu þjóðir þátt en í dag eru
þær 140. Martin hefur hlaupið friðar-
hlaup um Evrópu og segir þá upplif-
un óviðjafnanlega. „Þar sameinast
ólíkir einstaklingar frá ýmsum þjóð-
um í að ná settu marki. Þeir hlaupa
á milli landa og komast um leið að
því að þótt fólk virðist ólíkt í fyrstu
eigum við svo ótalmargt sameigin-
legt. Ef fleiri gerðu sér grein fyrir því
væri auðveldara að lifa í sátt og sam-
lyndi.“
Hugleiðslunámskeiðin nú um
helgina eru fyrir alla þá sem vilja
öðlast innri frið og samhljóm. „Það
geta allir hugleitt. Það þarf bara að
læra tæknina og á námskeiðinu
förum við yfir helstu atriði. Það er
til mikils að vinna því sá sem hug-
leiðir lærir að þekkja sjálfan sig og
njóta lífsins til fulls. Námskeið-
in verða bæði haldin á laugardag
og sunnudag og standa frá 13-18.
Mikil vægt er að mæta á bæði til að
fá sem mest út úr þeim „Pásur verða
teknar inni á milli og boðið upp á
hressingar. Síðan verður boðið upp
á styttri framhaldsnámskeið fyrir
þá sem vilja gera þetta að venju,“
segir Martin. Nánari upplýsingar og
skráningarform er að finna á www.
hugleidsla.org en áhugasömum er
sömuleiðis bent á www.srichinmoy.
org og www.worldharmonyrun.org.
Eins er hægt að hafa samband í síma
551-8080 og 899-1604.
Hugleiðslunám-
skeið um helgina
Sri Chinmoy-stofnunin á Íslandi stendur fyrir hugleiðslunámskeiðum um
helgina undir leiðsögn grafíska hönnuðarins Martin Leitner frá Austurríki.
Námskeiðin, sem verða haldin í Sri Chimnoy-miðstöðinni að Skúlagötu 30,
þriðju hæð, eru ókeypis og öllum opin.
Martin hefur haldið hugleiðslunámskeið um allan heim. MYND/GVA
Mun færri egg reynd-ust vera í eggjastokkum kvenna sem áttu mæður
sem fóru á breytingaskeið fyrir
45 ára aldur en í eggja stokkum
kvenna sem áttu mæður þar sem
tíðahvörf hófust eftir 55 ára aldur,
samkvæmt danskri rannsókn sem
segir frá í frétt á vef BBC. Niður-
stöðurnar voru birtar í tímaritinu
Human Reproduction.
Konur fæðast með öll sín egg.
Þegar kynþroskaaldri er náð losn-
ar eitt egg á mánuði úr eggjastokk-
um allt þar til tíðahvörf verða.
Til að meta fjölda eggja hjá þátt-
takendum var horft til magns
AMH-hormóns í líkamanum og
fjölda eggbúa. Þessir þættir gáfu
til kynna hversu mörg egg ættu
eftir að losna úr eggjastokkunum.
Þá lækkaði magn hormónsins og
eggbúum fækkaði hraðar hjá þeim
konum sem áttu mæður sem fór
snemma á breytingaskeið.
Samkvæmt rannsókninni líða
um 20 ár frá því frjósemi kvenna
fer að dvína og þar til tíðahvörf
verða. Frjósemi konu sem fór á
breytingaskeið 45 ára fór því að
dvína strax um 25 ára aldur.
Rannsóknin náði til 527 kvenna
á aldrinum 20 til 40 ára og sagði dr.
Janne Bentzen, sem leiddi rann-
sóknina, langtíma rannsóknir
nauðsynlegar til að gefa skýrari
mynd.
Dr. Valentine Akande, tals-
maður samtaka um frjósemi í
Bretlandi, sagði niðurstöðurnar
gagnlegar en konur skyldu þó
ekki örvænta þó að mæður þeirra
hefðu farið snemma á breytinga-
skeiðið. Niðurstöðurnar sýndu
það sem vitað væri nú þegar, að
því fyrr á ævinni sem fólk reyndi
að búa til barn, þeim mun líklegra
væri það til að ná árangri.
Tíðahvörf
móður hafa
áhrif á frjósemi
Konur geta hugsanlega metið eigin frjósemi eftir
því hvenær tíðahvörf urðu hjá mæðrum þeirra,
samkvæmt danskri rannsókn sem birt var í
tímaritinu Human Reproduction.
Mun færri egg eru í eggjastokkum kvenna sem eiga mæður sem fóru snemma á
breytingarskeiðið, að því er fram kemur í danskri rannsókn.
SVEFN ER LÍFSNAUÐSYNLEGUR
Svefn er náttúruleg hvíld manna og
dýra og felur í sér meðvitundarleysi
auk þess sem hlé verður á með-
vitaðri líkamsstarfsemi. Svefn veitir
líkamanum hvíld og endurnærir
hann. Öll spendýr og fuglar sofa
og einnig sum skriðdýr, froskdýr
og fiskar. Fyrir menn og spendýr er
svefn lífsnauðsynlegur en þó er ekki
fullljóst hvers vegna.
Heilastarfsemi breytist mikið í svefni. Svefnskortur getur orsakað þreytu,
vanlíðan og streitu og haft áhrif á einbeitingu, minni og rökhugsun.
Svefnleysi getur líka haft slæm áhrif á ónæmiskerfið, seinkað því að sár
grói og valdið truflunum á framleiðslu vaxtarhormóna og þar með haft
áhrif á líkamsvöxt barna.
Heimild: www.wikipedia.org
Einkenni þvagfærasýkingar geta verið:
• Tíð þvaglát
• Verkir og brunatilfinning við þvaglát
• Óeðlileg lykt og litur af þvaginu
Bio Kult Pro-Cyan hentar fyrir alla, en hefur verið
sérstaklega þróað fyrir barnshafnandi konur.
Skammtur: 2 hylki 1-2 svar á dag.
Fæst í öllum apótekum, heilsuverslunum
og heilsuhillum stórmarkaðanna.
Háþróuð þrívirk formúla sem tryggir heilbrigða þvagrás.
Bio-Kult Pro-Cyan, inniheldur þrívirka formúlu, sem hefur
verið vísindalega þróuð og staðfest. Trönuberjaþykkni,
mjólkursýrugerla og A vítamín.
Trönuber hindra að E. Coli bakterían nái fótfestu við slímhúð
þvagrásar og skolar bakteríunni út með þvaginu. Hlutverk
gerlanna og A vítamíns í Bio Kult Pro Cyan hjálpar líkamanum
að viðhalda eðlilegu bakteríumagni í þörmum, einnig til að
viðhalda eðlilegri starfsemi í þvagrásarkerfinu.