Fréttablaðið - 08.11.2012, Page 42

Fréttablaðið - 08.11.2012, Page 42
8. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR30 30 menning@frettabladid.is Skáldsagan Hrafnsauga hlaut Íslensku barnabóka- verðlaunin sem veitt voru í Austurbæjarskóla í gær. Þetta er frumraun höfund- anna, Kjartans Yngva Björnssonar og Snæbjörns Brynjarssonar, sem vilja auka veg fantasíu- bókmennta á Íslandi. Hrafnsauga varð hlutskarpast þeirra 60 handrita sem bárust í samkeppnina um Íslensku barna- bókaverðlaunin, sem afhent voru í Austurbæjarskóla í gær. Þetta er fyrsta bókin í væntanlegum sagna- flokki sem gerist í ímynduðum heimi þar sem blóðgaldrar, falin leyndarmál og gleymdar óvættir ógna heimunum öllum. Hrafnsauga er fyrsta skáldsaga þeirra Kjartans Yngva Björnsson- ar og Snæbjörns Brynjarssonar. Þeir eru 28 ára og hafa verið vinir frá því á framhaldsskólaárum í Flensborg. Hugmyndin að Hrafn- sauga kviknaði fyrir hálfu öðru ári síðan. „Okkur langaði að skrifa bók saman og byrjuðum þá á hug- myndavinnunni og lögðum drög að þessum heimi,“ segir Kjartan Yngvi, sem er útskrifaður bók- menntafræðingur en nemur nú ritlist við Háskóla Íslands. Snæ- björn útskrifaðist úr fræðum og framkvæmd við leiklistardeild Lista háskóla Íslands fyrir nokkr- um árum og hefur fengist við leik- stjórn og leikritun síðan, auk þess að leggja stund á japönskunám. En hvernig gekk að skrifa bók saman? „Þetta var mjög farsælt sam- starf og gaf sig mjög vel,“ segja þeir. „Við hittumst reglulega til að leggja drög að atburðarásinni í hverjum kafla. Síðan skiptumst við á að skrifa fyrsta uppkast að kafla og hinn endurskrifaði. Handritið hafði verið endurskrifað nokkrum sinnum áður en það var tilbúið.“ Enginn alvarlegur ágreiningur kom upp í samstarfinu. „Þetta var allt mjög lýðræðislegt og við náðum alltaf að ræða okkur að niðurstöðu ef við vorum ósam- mála, sem gerðist ekki oft, enda höfum við áþekkan smekk á bók- menntum.“ Báðir hafa þeir verið for fallnir áhugamenn um vísinda skáldskap og fantasíur frá barnsaldri og vildu leggja sitt af mörkum til að efla þá bókmenntagrein hér á landi. „Okkur fannst vanta almenni- lega fantasíu á íslensku,“ segja þeir. „Og ekki bara eftirhermu og stælingar á erlendum bókum, heldur verk sem við gætum kall- að okkar eigin. Við sóttum þess vegna mikið í hinn samnorræna sagnaheim, gættum þess að láta nöfn og heiti hljóma mjög íslensk og skrifa á góðri íslensku.“ Vís- indaskáldskapur og fantasíur eru bókmenntagrein sem lá að mestu leyti óbætt hjá garði hér landi þar til síðustu ár og hefur vaxið fiskur um hrygg undanfarið. „Það er greinilega fantasíu- og hrollvekjubylgja að ganga yfir Ísland í dag,“ segja Kjartan og Snæbjörn. „Það er líka alveg kom- inn tími á þetta form hér á landi.“ Hrafnsauga er komin út undir merkjum Vöku-Helgafells. bergsteinn@frettabladid.is Fannst vanta almennilega fantasíu á íslensku Bækur ★★★ ★★ Reykjavíkurnætur Arnaldur Indriðason Vaka-Helgafell Undir blikkinu á Arnarhóli Erlendur Sveinsson, hugarfóstur Arnaldar Indriðasonar, er án nokkurs vafa ástsælasti lögreglumaður sem íslenskar bók- menntir hafa alið. Eftir óviss endalok hans í Furðuströndum var mikið fagnaðarefni að heyra að hann myndi ganga í endurnýjun lífdaga og lesendur fá að kynnast honum frá upphafi starfs hans í lögreglunni í Reykjavíkurnóttum. Eftirvæntingin var því þó nokkur í upphafi lesturs og vonbrigðin þeim mun meiri þegar í ljós kemur að lesandinn kynnist Erlendi ekkert nánar. Sá Erlendur sem við hittum í upphafi sögu er vissulega ungur að árum, 28 ára umferðarlögregluþjónn í Reykjavík, en hann er sjálfum sér líkur. Þungur, einrænn og fáskiptinn og á ekki andlegt samfélag við nokkurn mann. Hann er í einhvers konar ástarsambandi við Halldóru sem seinna verður barns- móðir hans, en sýnir henni fálæti og virðist raunar vera slétt sama hvoru megin hryggjar hún liggur. Halldóru kynnist lesandinn sáralítið, sér hana einungis með augum Erlendar, en skilur þó betur hatur hennar á honum eftir lýsingar á drumbslegri framkomu hans í hennar garð. Ekkert nýtt kemur fram um Erlend sjálfan, hann virðist hafa fæðst fimmtugur. Sagan hverfist um tvö mál sem verða á vegi Erlendar á næturvöktum í götulögreglunni. Hvarf giftrar konu og drukknun útigangsmanns sem lög- reglan hefur þurft að hafa nokkur afskipti af og Erlendur tekið undir sinn verndarvæng. Lengi framan af er þó alls óvíst að nokkur glæpur hafi verið framinn og eftirgrennslanir Erlends eru heldur handahófskenndar, enda hefur hann enga lögsögu í málinu, rétt og slétt umferðarlöggan. Framvindan er óskaplega hæg og á köflum langdregin, það sama reifað aftur og aftur og lesandinn er farinn að hvæsa af óþolinmæði þegar loks dregur til tíðinda. Sögusviðið er Reykjavík sumarið 1974 með áherslu á aðbúnað útigangs- fólks, en ekki heldur í þeim lýsingum tekst Arnaldi eins vel upp og stundum áður. Lesandinn fær litla tilfinningu fyrir tíðarandanum og þótt skotið sé inn í textann tilvísunum til sjónvarpsþáttanna um Ironside og sjónvarps- auglýsinganna um Formica, rætt um yfirvofandi þjóðhátíð á Þingvöllum og dvalarstöðum drykkjumanna á þeim tíma lýst skilar það sér ekki í upplifun lesandans á því andrúmslofti sem sveif yfir vötnum á þeim tíma. Sem stílisti er Arnaldur hins vegar í stöðugri framför og þótt hann nái ekki hér því flugi sem einkenndi texta Furðustranda er Reykjavíkurnætur meðal hans best skrifuðu bóka. Bygging sögunnar er sömuleiðis vönduð og það hvernig málin tvö vefast saman afskaplega fagmannlega gert. Sennilega eiga væntingarnar sem gerðar voru til þessarar bókar sinn þátt í vonbrigðum lesandans en það breytir ekki því að þessi saga verður seint talin í hópi bestu sagna Arnaldar um Erlend. Friðrika Benónýsdóttir Niðurstaða: Ágætlega skrifuð og vel byggð glæpasaga en töluvert skortir þó á spennuna og þeir lesendur sem búast við að fá nýjan vinkil á líf Erlendar verða óhjákvæmilega fyrir vonbrigðum. KJARTAN YNGVI OG SNÆBJÖRN Hafa verið forfallnir aðdáendur fantasíubókmennta og vísindaskáldskaps frá barnsaldri. Skáld- sagan Hrafnsauga, sem þeir skrifuðu saman, er fyrsta sagan í væntanlegum sagnabálki. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON UM ELÍAS MAR OG VÖGGUVÍSU Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur fjallar um Elías Mar og Vögguvísu með myndrænu og tónrænu ívafi í Gunnarshúsi að Dyngjuvegi 8 í kvöld klukkan 20.30. Einnig segir hann frá persónulegum kynnum sínum af skáldinu. Kaffi er á könnunni, ókeypis aðgangur og allir velkomnir! Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Tryggðu þér miða! Miðasala í fullum gangi Einnvinsælastigamanleikurallra tíma! Það er greinilega fantasíu- og hroll- vekjubylgja að ganga yfir Ísland í dag.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.