Fréttablaðið - 08.11.2012, Blaðsíða 50
8. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR
lifsstill@frettabladid.is
KYNLÍF Í viku hverri er ég með
fyrirlestur um kynlíf fyrir börn í
8. til 10. bekk grunnskóla. Fyrir-
lestrarnir eru gjarnan kynjaskipt-
ir og vel sóttir. Í fræðslunni fer ég
ýtarlega í allar hliðar kynfæranna
og sýni þá gjarnan ljósmyndir af
raunverulegum kyn færum enda
mikilvægt að börn sjái fjölbreyti-
leikann í þeim. Þá spjöllum við
um margvíslega kynhegðun, kyn-
hneigð, samskipti um kynlíf, klám
og reynum að skilgreina þessa
upplifun sem kynlíf er. Síðasti
punkturinn er í raun í mótsögn
við fræðsluna en það er ágætt að
krakkarnir viti það, við erum jú öll
einstaklingar með eigin upp lifanir.
Það á það til að gleymast á þess-
um árum þegar marga langar til
að vera eins og „hinir“.
Mér þykir óendanlega vænt um
þessa rúmu klukkustund sem við
krakkarnir eigum saman, en þau
hlusta ekki bara á mig blaðra held-
ur hlusta ég einnig á þau. Þá koma
gullkornin sem fá mig oftar en
ekki til að staldra við. Það er mín
upplifun að greina megi ákveðna
kynjaskiptingu í spurningunum.
Strákarnir spyrja oft um „skrýtið“
kynlíf, eitthvað sem þeir sáu á net-
inu eða heyrðu af. Það virðist vera
eins og þeir nálgist kynlíf meira
sem skemmtiefni og eitthvað sem
megi hlæja að. Þetta rímar við
rannsóknir á viðhorfum íslenskra
drengja til kláms. Hvort það er
slæmt eða ekki get ég ekki sagt
til um en þessir strákar segja mér
að þeir geri greinarmun á kynlífi
á netinu og raunveruleikanum.
Þeim finnst þetta bara svo fynd-
ið, sem er ágætt viðhorf því kynlíf
má vera skemmtilegt og með dass
af húmor.
Stelpurnar spyrja oftast hvenær
maður sé tilbúinn til að stunda
kynlíf og hvernig maður viti
hvort maður sé tilbúinn. Þá nefna
þær dæmi um ákveðinn aldur eða
fjölda bólfélaga og vilja vita hvort
mér finnist þessi dæmi í lagi. Þetta
eru öllu erfiðari spurningar, sér-
staklega í ljósi þess að engin hald-
bær svör eru til. Ég segi þeim frá
15 ára aldursviðmiði hegningar-
laga og reyni að gefa þeim nokkr-
ar leiðbeinandi spurningar sem
þær geta svarað fyrir sjálfar sig.
Þá segi ég líka að þær eru ekki til-
búnar að sofa hjá ef þær hafa ekki
stundað sjálfsfróun því fyrsta
kynlífið sem maður stundar á að
vera með sjálfum sér. Sjálfsfróun
þýðir þó ekki að þær eigi að fara
að stunda kynlíf með öðrum og
við tölum líka um það. Eftir þessa
umræðu spyrja þær hvernig þær
geti talað við foreldrana um kynlíf
áður en þær byrja að stunda það.
Það finnst mér mjög mikilvægur
punktur og er í raun lykilinn að
vel lukkaðri kynfræðslu. Því býð
ég foreldra hjartanlega velkomna
í kynfræðslu til mín. Börnin ykkar
vilja leita til ykkar en kunna það
ekki og ég er boðin og búin til að
aðstoða.
KYNLÍF: TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
hr.is
cdio.org
EDWARD CRAWLEY
Föstudaginn 9. nóvember kl. 9:00, stofu M209
Fundarstjóri: Guðrún Sævarsdóttir, forseti tækni- og
verkfræðideildar.
Fyrirlesturinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.
Tekið er við skráningum á netfangið skraning@hr.is
Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík býður til
morgunverðarfundar um hugmyndafræði CDIO samstarfsnetsins
sem verið er að innleiða í HR.
Edward Crawley er prófessor í geim- og flugverkfræði við MIT
háskóla og frumkvöðull CDIO samstarfsnetsins.
Dr. Edward Crawley
NÝ SÝN Á
TÆKNIMENNTUN
Nemendur við Háskólann
við Bifröst fengu það verk-
efni að bæta samfélagið á
einhvern hátt. Einn hópur
nemenda kaus að auðvelda
eldri borgurum aðgengi að
lesefni.
FÓLK „Við erum allar meistara-
nemar við Háskólann við Bifröst
og verkefnið var liður í námskeið-
inu Áætlunargerð og verkefna-
stjórnun. Það gekk út á að bæta
samfélagið á einhvern hátt, annað-
hvort með því að bæta umhverfið
eða líf fólks. Við áttum að setja
fram hugmynd, skipuleggja hana,
framkvæma og loks meta árangur
hennar,“ útskýrir Berglind Laxdal,
nemandi við Háskólann við Bif-
röst. Hún og samnemendur hennar
völdu að auðvelda eldri borgurum
aðgengi að bókum og öðru menn-
ingartengdu efni.
„Við ræddum um hvað tengdi
okkur í hópnum saman og kom-
ust að því að það var lestur. Okkur
langaði mikið að miðla þessum
áhuga okkar áfram inn í verk-
efnið. Raunin er sú að fólk miss-
ir oft hæfileikann til að geta notið
lesturs þegar það eldist og sjónin
versnar.“
Að sögn Berglindar duttu þær
Eva Björk Káradóttir, Karen Inga
Einarsdóttir og Magnea Ólafs-
dóttir óvænt niður á hljóðbóka-
spilara frá fyrirtækinu Örtækni
sem er hannaður eins og gamalt
segulbandstæki og auðveldur í
notkun. Þær höfðu samband við
fyrirtækið og óskuðu eftir því að
fá að kynna og gefa eitt tæki til
Félags eldri borgara.
„Með þessu er hægt að auð-
velda aðgengi félagsmanna að
menningar efni og FEB getur síðan
lánað félagsmönnum sínum spilar-
ann að vild.“
Hópnum þótti verkefnið bæði
skemmtilegt og gefandi og segir
Berglind að fólk ætti oftar að láta
gott af sér leiða. „Það gefur manni
mikið að geta glatt aðra og allir í
bekknum höfðu virkilega gaman
af þessu verkefni,“ segir hún að
lokum.
sara@frettabladid.is
Gaman að geta glatt aðra
SKEMMTILEGT VERKEFNI Berglind Laxdal og samnemendur hennar fengu skólaverkefni sem gekk út á að bæta samfélagið á ein-
hvern hátt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
TÍSKA Söngkonan M.I.A. stað-
festi nýverið að hún hefði tekið
höndum saman við ítalska tísku-
húsið Versace. Söngkonan vildi
ekki gefa upp nánari upplýsing-
ar um samstarfið við Versace en
birti mynd af tölvuskjá sínum og
þar mátti sjá möppur með heit-
inu „Versace Prints“, „Bootleg
Versace“ og „Versace Outlines“.
Því er ljóst að hlutverk M.I.A. er
töluvert.
Yfirhönnuður tískuhússins er
Donatella Versace og tók hún við
stjórnartaumunum eftir að bróð-
ir hennar, Gianni Versace, var
myrtur. Hönnun tískuhússins
þykir glysgjörn og kvenleg.
M.I.A. útskrifaðist með gráðu
í myndlist og kvikmyndagerð frá
Central St. Martins skólanum
í London og vann um hríð sem
grafískur hönnuður áður en hún
sneri sér að tónlist. Söngkonan
er engu minna þekkt fyrir litrík-
an klæðnað sinn og því er víst að
samstarf hennar og Versace verð-
ur ekki dauflegt.
M.I.A. og Versace
taka höndum saman
Hvenær er maður tilbúinn?
SPJALLAÐ Unglingar vilja leita ráða hjá foreldrum sínum um mál er tengjast kynlífi en
þora ekki. NORDICPHOTOS/GETTY
LITRÍK M.I.A. sést hér klæðast Versace frá toppi til táar. NORDICPHOTOS/GETTY
HÁLF TESKEIÐ AF KANIL á dag getur komið í veg fyrir andfýlu
og vont bragð í munni, en kanill vinnur gegn bakteríum sem þrífast í
munninum. Þetta kemur fram í Women ś Health.
38