Fréttablaðið - 14.12.2012, Síða 1
LÍFIÐ
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Föstudagur
24
ELDAÐ MEÐ HOLTAHOLTA KYNNIR Úlfar Finnbjörnsson er einn færasti kokkur landsins Hsér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN Þhonum elda ljúffeng kjú
ÍSLENSKUR SVEINKIStúfur kemur við í Þjóðminjasafninu í dag klukkan 11.00 en á
morgun er það Þvörusleikir og síðan Pottaskefill á sunnudag.
Íslensku jólasveinarnir kíkja í heimsókn daglega í safnið,
einn af öðrum til jóla, börnum og fullorðnum til gleði.
Philips HX8
KEMUR Í STAÐ TANNÞRÁÐAR
EVA SÓLAN GENGUR
MEÐ TVÍBURA
DÁSAMLEG
JÓLATÍSKA
BÍÓKÓNGUR
FAGNAR
14. DESEMBER 2012
2 SÉRBLÖÐ
Lífið | Fólk
Sími: 512 5000
14. desember 2012
294. tölublað 12. árgangur
80%
SPORT Helena Sverrisdóttir er ein af
bestu þriggja stiga skyttunum í bestu
körfuboltadeild í Evrópu. 70
UMHVERFISMÁL Skógfræðingar leggja til
bann við innflutningi á jólatrjám vegna
áður óþekkts átusvepps sem leggst á
þin í Danmörku og Noregi. Innfluttur
normannsþinur stendur hér undir allt að
80 prósentum af jólatrjáasölu.
„Með áframhaldandi innflutningi
á þin til Íslands er það ekki spurning
hvort heldur hvenær sjúkdómurinn
skýtur upp kollinum í íslenskum þin-
skógum,“ segir í samantekt tveggja sér-
fræðinga Skógræktar ríkisins um málið,
þeirra Brynjars Skúlasonar og Halldórs
Sverrissonar. Brynjar er sérfróður um
skógerfðafræði og erfðavistfræði og
Halldór um plöntusjúkdóma og kynbæt-
ur trjáa.
Halldór segir átusveppinn af ættkvísl-
inni Neonectria en tegundin sé óviss.
Gróhirslur sveppsins séu í klösum af
rauðum vörtum sem sprengi sig út úr
berkinum.
„En þetta er svo nýtilkomið og ekki
mikið vitað enn þá,“ segir hann. Hins
vegar hafi þinurinn hingað til verið tal-
inn mjög heilbrigður og lítil hætta vegna
sjúkdóma eða meindýra sem fylgt gætu
jólatrjám. Þinur var því ekki á bann-
lista eins og aðrar ættkvíslir barrtrjáa
í ræktun þegar reglugerð um inn- og
útflutning á plöntum tók gildi árið 1990.
„En það gæti breytt málinu ef þetta
reynist eitthvað sem máli skiptir.“
Vísbendingar eru um að átusveppur-
inn leggist á fleiri tré, svo sem á rauð-
greni. „Reynist svo vera þá er þetta
mjög alvarlegt mál vegna þess að miklu
meira er í húfi.“ Halldór bendir á að
rauðgreni sé annað aðaljólatré landsins.
„Hitt er stafafuran.“
Þá bendir Brynjar á að leggist svepp-
urinn á fleiri tré en þin geti það haft
áhrif á alla garð- og skógrækt hér á
landi.
Halldór og Brynjar eru sammála um
að rétt væri að banna innflutning á nor-
mannsþin, í það minnsta tímabundið
þar til í ljós kemur hversu mikil hætta
stafar af átunni. „En því verður náttúru-
lega ekki komið á strax, til þess vitum
við ekki enn nógu mikið. En hugsanlega
gæti verið komið bann fyrir næstu jól,
ef þetta reynist svona skæður sjúk-
dómur,“ segir Halldór og bendir á að nú
standi yfir endurskoðun á reglugerð-
inni um innflutning plantna hjá nefnd í
atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti. - óká
Innflutningsbann á jólatré?
Nýr átusveppur sem greinst hefur í Danmörku og Noregi gæti orðið til þess að innflutningur á normannsþin
verði bannaður. Átan gæti ógnað hér allri garð- og skógrækt. Nefnd endurskoðar reglur um plöntuinnflutning.
OPIÐ TIL
Í KVÖLD
DAGARTIL JÓLAHlæðu af þér hausinn
um jólin
www.forlagid. is
Eftir höfunda
Fimbulfambs
SKOÐUN Mikilvægt er að engin
afritunarvörn sé á rafbókum, skrifar
Baldur Þór Emilsson. 26
af seldum
jólatrjám á Íslandi
er innfl uttur
normannsþinur.
MENNING Of Monsters and Men
kemur sér fyrir í gömlu Fjölbraut í
Garðabæ. 74
Grundarfjörður
Kolgrafafjörður
UMHVERFISMÁL Gríðarlegt magn
af síld synti upp í fjöru í Kol-
grafafirði í gær og drapst. Sér-
fræðingur Hafrannsóknastofn-
unar (Hafró) telur víst að um
hundruð tonna sé að ræða. Síldar-
flekkurinn er talinn ná yfir fer-
kílómetra svæði. Síldin ber engin
ytri merki um sýkingu sem herj-
að hefur á íslensku sumargots-
síldina.
Hlynur Pétursson, útibússtjóri
Hafró á Ólafsvík, var við sýna-
tökur í Kolgrafafirði í gær. Hann
varð vitni að því þegar síldin
synti upp á land í þúsundavís. „Ég
hef aldrei séð neitt þessu líkt,“
segir Hlynur. Mælingar Hafró í
fyrravetur sýndu að tæplega 300
þúsund tonn voru þá í firðinum.
Mælingar frá því í byrjun þess-
arar viku benda eins til að mikið
magn síldar sé í firðinum nú. -
shá / sjá síðu 4
Mörg hundruð tonn af síld synda upp í fjörur og drepast í Kolgrafafirði:
Fjörur bunkaðar af dauðri síld
Bolungarvík -1° ANA 7
Akureyri -4° A 3
Egilsstaðir -5° ANA 5
Kirkjubæjarkl. -2° ANA 6
Reykjavík -1° ANA 7
Bjart eða nokkuð bjart víðast hvar en
lítilsháttar él allra austast. Strekkingur
eða allhvasst með SA-ströndinni en
annars hægari. Frost 0 til 8 stig. 4
JÓLASVEINNINN KOM AKANDI Á STRÆTÓ Leikskólabörnin í Krikaskóla fengu í gær heimsókn frá jólasveini nokkrum, sem
kom akandi á strætisvagni. Krakkarnir tóku vel á móti sveinka og létu í té jólateikningar sínar, því eins og undanfarin ár verða
strætisvagnar höfuðborgarsvæðisins skreyttir innan sem utan með myndum frá leikskólabörnum. Fleiri leikskólar eiga því von á
strætóheimsókn jólasveinsins næstu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÓMSMÁL Embætti sérstaks sak-
sóknara hefur ákært Jón Ásgeir
Jóhannesson, Lárus Welding,
Magnús Arnar Arngrímsson og
Bjarna Jóhannesson í svoköll-
uðu Aurum-Holding máli. Þeir
Lárus og Magnús, eru ákærðir
sem aðalmenn í umboðssvikum
en Jón Ásgeir og Bjarni sem
hlutdeildarmenn.
Málið snýst um sex milljarða
króna lánveitingu sem Glitnir
veitti félaginu FS38 ehf. um mitt
ár 2008 til að kaupa hlut í breska
félaginu Aurum Holding.
Jón Ásgeir segir í yfirlýs-
ingu sem send var Fréttablaðinu
að hann telji að sakarefni sem
á hann séu borin standist ekki
skoðun. Hann var stjórnarfor-
maður og aðaleigandi FL Group,
stærsta eiganda Glitnis áður
en bankinn féll. Hinir þrír sem
ákærðir eru í málinu störfuðu
allir hjá bankanum.
- þsj / sjá síðu 18
Sérstakur saksóknari:
Ákært fyrir
umboðssvik í
Aurum-málinu
Vendingar í Eir-málinu Flestum
ef ekki öllum fulltrúum Hjúkrunar-
heimilisins Eirar verður skipt út á
fundi í dag. 8
Smáríki í EES? Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins hefur viðrað
hugmyndir um að smáríkin San
Marínó, Andorra og Mónakó fái aðild
að EES. 10
Bætur fyrir pyntingar Mannrétt-
indadómstóll Evrópu hefur dæmt
þýskum bílasala bætur fyrir ólög-
mæta handtöku og pyntingar
af hálfu CIA. 12
Nýtt hlutverk
Elma Lísa býr sig undir móður-
hlutverkið. Þau Reynir, eiginmaður
hennar, eiga von á barni í
byrjun maí. 6-8