Fréttablaðið - 14.12.2012, Blaðsíða 70
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 50
Hugmyndin að ljósmyndabókinni Two in One kviknaði hjá
Sverri Björnssyni hönnuði í ársbyrjun 2011. Sverrir, sem
hefur unnið sem grafískur hönnuður og hugmyndasmiður
í auglýsingageiranum, var þá nýfluttur heim eftir búsetu í
Argentínu og Noregi. „Við fluttum til Argentínu eftir hrun,
vildum ná áttum eftir góðærið og allan hasarinn sem hafði
átt sér stað á Íslandi árin fram að hruni,“ segir Sverrir og
á við sig og konu sína, Áslaugu Harðardóttur. Yngri dóttir
þeirra, sem var þá í menntaskóla, var með þeim í hálft
ár. „Í Argentínu fór ég í ljósmyndaskóla og lærði heim-
ildaljósmyndun. Námið fór fram á spænsku sem ég kunni
ekki stakt orð í, en hún lærðist smám saman.“ Að lokinni
dvöl í Argentínu fóru Sverrir og Áslaug á flakk um Asíu
og fluttu svo til Noregs. „Bæði í Argentínu og Noregi
fékk ég hugmyndir að ljósmyndaverkefnum sem ég náði
samt ekki að ljúka. Mig langaði ógurlega til að finna mér
verkefni og ljúka því hér heima og þegar ég datt niður á
þessa hugmynd ákvað ég að kýla á að framkvæma hana.
Sumarmyndirnar tók ég strax sumarið 2011 og síðasta
vetur var ég svo á sífelldu flakki við að ná vetrarmyndum
á sömu stöðum,“ segir Sverrir sem lagði staðina á minnið
með því að fá mynd af sér og myndavélinni á staðnum, og
var það Áslaug sem sá um þann hluta verksins.
„Síðan ákvað ég að skrifa stuttan texta við myndirnar,
sem ljær bókinni persónulegri blæ.“ Sverrir er sestur að
á Íslandi á ný og farinn að vinna á sínum gamla vinnustað,
Hvíta húsinu, en bara hálfan daginn. „Ég tími ekki að gefa það
eftir að rækta listamanninn í sjálfum mér, þannig að núna er ég
bisnessmaður hálfan daginn og listamaður hálfan.“ - sbt
Ísland sumar
og vetur
Sverrir Björnsson hönnuður gaf nýverið út sína
fyrstu ljósmyndabók. í henni eru teknar myndir af
mörgum stöðum á Íslandi að sumar- og vetrar-
lagi. Hugmyndin kviknaði að lokinni tveggja
ára dvöl í útlöndum.
SAMI STAÐUR Myndirnar eru teknar frá nákvæmlega sama sjónarhorni á mismunandi árstíðum.
LJÓSMYNDARINN
Sverrir Björnsson.
Casa - Kringlunni og Skeifunni
Epal - Skeifunni, Hörpu og Leifsstöð
Hafnarborg - Hafnarfirði
Kokka - Laugavegi
Kraum - Aðalstræti og Garðatorgi
Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsinu
Líf og list - Smáralind
Módern - Hlíðarsmára
Þjóðminjasafnið - Suðurgötu
Þjóðmenningarhúsið - Hverfisgötu
Blómaval - um allt land
Blóma- og gjafabúðin - Sauðárkróki
Póley - Vestmannaeyjum
Valrós - Akureyri
Netverslun - www.kaerleikskulan.is
S T Y R K T A R F É L A G L A M A Ð R A O G F A T L A Ð R A
Sölutímabil 5.-19. desember
L O K K A N D I
Með kaupum á Kærleikskúlunni styður þú
starf í þágu fatlaðra barna og ungmenna.
Breskur dómstóll hefur dæmt
Wlodzimierz Umaniec, 26 ára gaml-
an Pólverja búsettan í Englandi, í
tveggja ára fangelsi fyrir að vinna
spjöll á málverki eftir abstraktmál-
arann Mark Rothko í Tate Modern
safninu í London í október síðast-
liðnum.
Myndin sem um ræðir nefnist
Svartur á dumbrauðum og er ein af
svonefndum Seagram-veggmyndum
Rothkos, sem taldar eru með mikil-
vægustu eignum safnsins. Hinn 7.
október síðastliðinn gekk Uman-
iec að verkinu þar sem það hékk til
sýnis og málaði nafn sitt í eitt horn-
ið og áletrunina „mögulegur hluti
af gulhyggju“ (e. „a potential piece
of yellowism“) með svörtu bleki.
Gulhyggja er heiti á heldur óræðri
hreyfingu sem hefur verið á kreiki
undanfarin tvö ár eða svo og lýsir
hugmyndum sínum sem „hvorki
listrænni stefnu né andlistrænni“.
Umaniec gekkst við því að hafa
málað á verkið en sagði að það hefði
verið listgjörningur í anda Marcels
Duchamp, og hefði í raun aukið
verðgildi myndarinnar.
„Listin leyfir okkur að taka verk
annarra og setja á þau nýjan boð-
skap,“ sagði Umaniec meðal annars
í samtali við BBC á dögunum.
Á það féllst dómurinn ekki og
dæmdi Umaniec sem fyrr segir í
tveggja ára fangelsi.
Verðgildi myndarinnar fyrir
skemmdarverkið var talið vera á
bilinu fimm til níu milljónir punda
sem er jafnvirði um eins til 1,8
milljarða króna. Hægt er að fjar-
læga skemmdirnar en það mun
taka hátt í tvö ár og kosta allt að
200 þúsund pund eða um 40 millj-
ónir króna.
Í fangelsi fyrir að skemma málverk eft ir Mark Rothko
Maður hlaut tveggja ára fangelsisdóm fyrir að skemma verk á Tate Modern. Maðurinn kallaði athæfi ð gjörningalist í anda Duchamp.
NÝTT VERK? Umaniec
sagði að áletrunin
væri listgjörn ingur og
til þess fallin að auka
verðmæti verksins.