Fréttablaðið - 14.12.2012, Qupperneq 4
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
UMHVERFISMÁL Gríðarlegt magn af síld hefur
drepist á fjöru í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi
á síðasta sólarhring. Sérfræðingar eru engu
nær um ástæður þessa en síldin ber engin
ytri merki um sýkingu sem herjað hefur á
íslensku sumargotssíldina.
Hlynur Pétursson, útibússtjóri Hafrann-
sóknarstofnunar á Ólafsvík, var við sýnatök-
ur í Kolgrafafirði í gær. Hann staðfestir að
gríðarlegt magn sé dautt og síldarflekkur-
inn á fjörunni sennilega um ferkílómetri að
stærð. Hann varð í orðsins fyllstu merkingu
vitni að því þegar síldin synti upp á land. „Ég
hef aldrei séð neitt þessu líkt. Það er alveg
ljóst að mörg hundruð tonn af síld eru dauð
hér, en ég þori þó ekki að fullyrða að magn-
ið sé yfir þúsund tonn. Það er erfitt að meta
þetta,“ segir Hlynur.
Spurður um hugsanlegar skýringar á
síldar dauðanum segir Hlynur að við sýnatök-
una hafi hann ekki orðið var við ytri einkenni
síldarsýkingar, sem herjað hefur á íslensku
sumargotssíldina um nokkurn tíma. Því verði
að leita ástæðunnar fyrir því að síldin drepst í
fjörunni í öðru.
Kolgrafafjörður er á norðanverðu Snæfells-
nesi og næsti fjörður austan við Grundar-
fjörð. Brú var lögð yfir fjörðinn árið 2004
sem veldur því að síldin syndir inn í fjörðinn
í gegnum þrönga rennu undir brúnni. Hins
vegar hafa mælingar Hafrannsóknastofnun-
ar, til dæmis í fyrravetur, sýnt að síld safnast
þar saman við viss skilyrði þó fjörðurinn sé
ekki stór. Mælingar í fyrravetur bentu til að
vel á þriðja hundrað þúsund tonn voru þá í
firðinum. Mælingar frá því í byrjun þessarar
viku benda eins til að mikið magn sé í firð-
inum nú, örugglega á annað hundrað þúsund
tonn, samkvæmt upplýsingum frá Hafrann-
sóknastofnun.
Hlynur mun í dag mæla hitastigið í firð-
inum. Hann telur mögulegt að sjórinn sé svo
kaldur að hann slævi síldina með þessum
afleiðingum. Hann telur óráð að gefa sér að
svo mikið magn af síld sé í firðinum að það
hafi haft þessar afleiðingar.
Viðmælendur Fréttablaðsins höfðu á orði að
atvik eins og þessi hafi umtalsverð umhverf-
isáhrif. Helsta vonin sé að fugl leggist í ætið
af krafti. Hins vegar skapaðist vandamál
vegna rotnandi síldar á fjörum í fyrravetur,
en það var rakið til veiða síldarskipa sem hafa
tekið kvóta sína á Breiðafirði þar sem stærst-
ur hluti stofnsins heldur sig ár eftir ár.
svavar@frettabladid.is
227,7617
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,64 127,24
204,12 205,12
165,21 166,13
22,142 22,272
22,5 22,632
18,981 19,093
1,5191 1,5279
194,43 195,59
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
13.12.2012
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is
og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Augu Líru eftir
Evu Joly og
Judith Perrignon.
Æsispennandi
skáldsaga úr
undirheimum
fjármálalífsins,
þar sem Eva Joly
þekkir hvern krók
og kima.
ÓGNVEKJANDI!
SKRUDDA
www.skrudda.is
Síld drepst í stórum stíl
í fjörunni í Kolgrafafirði
Mörg hundruð tonn af síld hefur drepist á fjörum í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi. Sérfræðingur hefur aldrei séð
nokkuð þessu líkt, en hann horfði á síld synda á land. Gríðarlegt magn af síld er í firðinum, þó lítill sé.
Í KOLGRAFAFIRÐI Í GÆR Síldin syndir á land í þúsunda vís og drepst. Fjöruborðið sýður af
síld sem er að synda á land. MYND/HLYNUR PÉTURSSON
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Sunnudagur
Strekkingur eða hvasst með SA-
ströndinni, annars hægari.
HELGIN einkennist af bjartviðri sunnan- og vestanlands en éljum á
norðausturhorninu. Með suður- og suðausturströndinni verður vindstrengur en annars
víða fremur hægur vindur. Búast má við frosti um mest allt land.
-2°
7
m/s
-1°
6
m/s
-1°
7
m/s
2°
16
m/s
Á morgun
Strekkingur eða hvasst með suður-
ströndinni, annars hægari.
Gildistími korta er um hádegi
0°
0°
1°
-1°
-2°
Alicante
Aþena
Basel
17°
11°
3°
Berlín
Billund
Frankfurt
0°
1°
4°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
3°
0°
0°
Las Palmas
London
Mallorca
22°
10°
18°
New York
Orlando
Ósló
9°
24°
-6°
París
San Francisco
Stokkhólmur
9°
12°
0°
-2°
6
m/s
0°
8
m/s
-5°
5
m/s
-1°
4
m/s
-4°
3
m/s
-5°
4
m/s
-8°
5
m/s
0°
-1°
1°
-2°
-3°
Ég hef aldrei séð
neitt þessu líkt. Það er
alveg ljóst að mörg
hundruð tonn af síld
eru dauð hér
Hlynur Pétursson,
útibússtjóri Hafrannsókna-
stofnunar á Ólafsvík
LÖGREGLUMÁL Maður á fertugs-
aldri var úrskurðaður í gæsluvarð-
hald um kvöldmatarleytið í gær
vegna hrottafenginnar líkamsárás-
ar á átján ára stúlku á gistiheimili
í miðbæ Reykjavíkur nóttina áður.
Stúlkan var mjög illa farin í and-
liti eftir árásina og dvaldi allan
gærdaginn á spítala. Ekki lá fyrir
hvort bein hefðu brotnað, enda
var hún svo bólgin að það reyndist
ekki unnt að kanna það strax með
röntgen myndatöku. Búist var við
að hún yrði jafnvel á spítalanum til
dagsins í dag. Maðurinn sem talinn
er hafa veitt henni áverkana hefur
áður komið við sögu lögreglu, meðal
annars fyrir ofbeldisverk. Ákveðið
var að krefjast gæsluvarðhalds yfir
honum á grundvelli rannsóknar-
hagsmuna. Dómari féllst á að hann
skyldi sæta varðhaldi í fjórar vikur,
eða til 10. janúar.
Fólkið mun hafa dvalið saman
á gistiheimilinu um skamma hríð.
Aðdragandi árásarinnar liggur ekki
fyrir, en maðurinn og stúlkan voru
bæði allsgáð. - sh
Átján ára stúlka mjög illa farin í andliti eftir árás manns á gistiheimili:
Í varðhald fyrir hrottalega árás
STUNGIÐ INN Maðurinn var leiddur
fyrir dómara um kvöldmatarleytið í gær
og hann úrskurðaður í gæsluvarðhald.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
AKUREYRI Börn á Akureyri verða
framvegis skilgreind sem slík til
18 ára aldurs. Bærinn hefur ákveð-
ið að samræma gjaldskrár svo öll
börn innan 18 ára greiði barnagjald
fyrir þjónustu. Áður var miðað við
15 ára aldur. Akureyri vikublað
greindi frá. Nokkur munur getur
verið á verði fyrir fullorðna og
börn. Sem dæmi kostar einn dagur
fyrir fullorðna í Hlíðarfjalli 3.300
krónur en 1.050 fyrir börn. Í Sund-
laugina kostar 470 krónur fyrir
fullorðna en 150 fyrir börn. - sv
Breytingar á Akureyri:
Börn eru börn
til 18 ára aldurs
DÓMSMÁL Hálfþrítugur Reykvík-
ingur hefur verið dæmdur í átján
mánaða óskilorðsbundið fang-
elsi fyrir að starfrækja umfangs-
mikla kannabisrækt í skemmu á
Hafurbjarnarstöðum í Sandgerði.
Í verksmiðjunni fannst 841
planta og rúmt kíló af kannabis-
laufum, sem maðurinn gekkst
við að hafa ræktað til að bjarga
sér úr fjárhagsvandræðum
vegna íbúðarkaupa. Hann bar við
greindarskorti en dómurinn tók
ekki tillit til hans. - sh
Bar við greindarskorti:
Átján mánuðir
fyrir stórtæka
kannabisrækt
MIKIÐ GRAS Maðurinn hafði komið sér
upp sérútbúnu húsnæði og lagt mikla
vinnu í framleiðsluna. Myndin er úr
safni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BANDARÍKIN Susan Rice, fasta-
fulltrúi Bandaríkjanna hjá Sam-
einuðu þjóðunum, lýsti því í gær
yfir að hún óskaði ekki lengur
eftir því að taka við af Hillary
Clinton sem utanríkisráðherra
Bandaríkjanna.
Hún var ein þeirra sem þóttu
sterklega koma til greina í emb-
ættið, en Clinton hefur lýst því
yfir að hún ætli að láta sér nægja
eitt kjörtímabil. - gb
Gefur ekki lengur kost á sér:
Rice hættir við