Fréttablaðið - 14.12.2012, Blaðsíða 10
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Einfaldara fyrir
smáríkin þrjú
að ganga í ESB
Framkvæmdastjórn ESB viðraði nýlega hugmyndir um að þrjú smáríki
myndu fá aðild að EES. Utanríkisráðherra segir það ekki hafa komið
formlega til umræðu. Jafnvel væri einfaldara fyrir þau að ganga í ESB.
Ísland
Noregur
Andorra: Flatarmál 468 km²
Íbúafjöldi: 78.100 manns
Aðalatvinnuvegur: Ferða-
mannaiðnaður
San Marínó: Flatarmál 61,2 km²
Íbúafjöldi: 32.300
Aðalatvinnuvegir: Fjármála-
þjónusta, raftæki, ferðamennska
Mónakó: Flatarmál 1,95 km²
íbúafjöldi: 36.300
Aðalatvinnuvegur: Ferða-
mannaiðnaður
EVRÓPUMÁL Hugmyndir um aðild smáríkjanna
San Marínó, Andorra og Mónakó að Evrópska
efnahagssvæðinu (EES), sem viðraðar eru í
nýlegri skýrslu framkvæmdastjórnar ESB, eru
ekki nýjar af nálinni. Engin formleg erindi þess
efnis hafa þó borist frá ríkjunum þremur til
EFTA. Þetta segir Össur Skarphéðinsson utan-
ríkisráðherra aðspurður.
Össur segist ekki taka afstöðu til hugmynd-
anna, en jafnvel sé einfaldara fyrir ríkin þrjú
að sækja um fulla aðild að ESB en að fara í
gegnum EES að innri markaðinum.
Staða ríkjanna gagnvart ESB er um margt
yfirgripsmikil en um leið er hún ekki heildstæð.
Ríkin hafa lýst yfir áhuga á nánari samþætt-
ingu við ESB og aðgangi að innri markaði ESB.
Í ljósi þess ákvað framkvæmdastjórnin að velta
upp hugsanlegum valkostum í þessum efnum.
Fimm kostir til nánari samvinnu eru dregnir
fram í téðri skýrslu, meðal annars bein aðild
ríkjanna að ESB, sem er talin illgerleg vegna
smæðar ríkjanna og stjórnsýslulegra takmark-
ana. Lagt er til að tveir kostir verði skoðað-
ir nánar; annars vegar aðild að EES og hins
vegar tvíhliða samningar milli ESB og ríkjanna
þriggja hvers fyrir sig, sem byggðu mögulega á
forskrift EES-samningsins.
Þrjú EFTA-ríki eru í EES, Noregur, Ísland
og Liechtenstein. Stjórnvöld í Noregi voru fyrst
um sinn afhuga hugmyndunum en síðan virðist
afstaða þeirra hafa mildast nokkuð.
Í samtali við norska dagblaðið Nationen fyrir
skemmstu sagði Espen Barth Eide utanríkis-
ráðherra að hann hefði í fyrstu verið efins um
að ríkin hefðu bolmagn til þátttöku í EES. Eftir
samtöl við fulltrúa frá Andorra og Liechten-
stein hefði hins vegar orðið úr að ræða málið
frekar.
„Við höfum ekki útilokað neitt eða tekið
endanlega ákvörðun. Málið verður að leggja
vandlega upp,“ segir Eide, sem leggur áherslu
á mikilvægi þess að ríkin hafi bolmagn til þátt-
töku í EES.
Nationen hefur einnig eftir talsmanni sendi-
nefndar Liechtenstein gagnvart ESB að stjórn-
völd þar séu opin fyrir því að ræða málið.
EES-samningurinn lýtur að samkomulagi
milli fyrrnefndra EFTA-ríkja og ESB-ríkjanna
27. Til að fá aðild að EES þyrftu ríkin þrjú
væntanlega að ganga fyrst í EFTA, en Össur
segir það ekki hafa komið formlega til tals.
„Mér er ekki kunnugt um nokkrar málaleit-
anir af hendi þessara ágætu ríkja gagnvart því
að ganga í EFTA. Hugmyndin kemur líka fram
annars staðar en hjá EFTA og eins og ég hef
sagt áður eru það forréttindi EFTA-ríkjanna
að ákveða sjálf hverjir eru teknir þar inn. Svo
er þetta ekki endilega besta lausnin fyrir ríkin,
því að ég tel að það yrði einfaldara fyrir þau að
ganga beinlínis í ESB frekar en EES. Það gæti
hins vegar verið flóknara fyrir sambandið,“
segir Össur. thorgils@frettabladid.is
NORÐUR-KÓREA, AP Í Pjongjang,
höfuðborg Norður-Kóreu, skáluðu
menn í bjór á þriðjudag og dönsuðu
á götum úti til að fagna velheppn-
uðu eldflaugarskoti.
Með eldflauginni sendu þeir
veðurhnött út í geiminn, en hann
virðist orðinn stjórnlaus á braut
umhverfis jörðu og óljóst hvaða
hlutverk honum er ætlað.
Ráðamenn í Bandaríkjunum,
Suður-Kóreu og Japan krefjast
refsiaðgerða og meira að segja
Kínastjórn, sem jafnan hefur stutt
vel við bakið á Norður-Kóreu, lýsti
efasemdum um skynsemi þessa
afreks.
Norður-Kóreumenn hafa und-
anfarin ár gert nokkrar tilraunir
með flugskeyti, en sérfræðingar
segja þá eiga langt í land með að
koma sér upp áreiðanlegum flug-
skeytum.
Norður-Kórea segir viðbrögðin
alltof hörð: „Við vonum að öll ríki,
sem eiga hagsmuna að gæta, beiti
skynsemi og haldi ró sinni til að
koma í veg fyrir að ástandið þró-
ist út á óæskilegar brautir,“ hafði
fréttastofa landsins eftir tals-
manni utanríkisráðuneytisins. - gb
Norður-Kórea skaut veðurhnetti út í geim:
Hnötturinn stjórnlaus
SKÝRT FRÁ SKOTINU Þulan í ríkissjónvarpi Norður-Kóreu segir tíðindin.
NORDICPHOTOS/AFP
Desember 2012
Þriggja þrepa eldflaug af gerðinni
Unha-3 skotið á loft. Norður-Kór-
eumenn segja hana hafa verið
notaða til að koma veðurhnetti á
braut umhverfis jörðu.
Apríl 2012
Þriggja þrepa eldflaug af gerðinni
Unha-3 springur eftir nokkurra
mínútna flug og hafnar í hafi.
Apríl 2009
Norður-Kóreumenn skjóta þriggja
þrepa eldflaug á loft. Þeir segja
tilraunina hafa heppnast, en
Bandaríkjamenn segja flaugina
hafa hafnað í hafi.
Júlí 2006
Norður-Kóreumenn skjóta lang-
drægu flugskeyti á loft. Bandarík-
in segja tilraunina hafa mistekist:
Flaugin hafi farið í sundur eftir
40 sekúndna flug.
Flugskeytatilraunir
Norður-Kóreu