Fréttablaðið - 14.12.2012, Síða 18
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR |
Sérstakur saksóknari gaf á mið-
vikudag út ákæru á hendur Jóni
Ásgeiri Jóhannessyni, Lárusi Weld-
ing, Magnúsi Arnari Arngrímssyni
og Bjarna Jóhannessyni í svokölluðu
Aurum Holding-máli. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins snú-
ast ákærurnar um umboðssvik og
hlutdeild í þeim. Lárus og Magnús
eru ákærðir sem aðalmenn en Jón
Ásgeir og Bjarni sem hlutdeildar-
menn. Réttarstöðu Pálma Haralds-
sonar hefur verið breytt í réttar-
stöðu vitnis. Hann hafði um tíma
réttarstöðu sakbornings. Við þeim
brotum sem ákært er fyrir getur
legið allt að sex ára fangelsisdómur.
Þetta er í annað sinn sem Lárus
Welding er ákærður fyrir meint
umboðssvik. Í byrjun þessarar viku
lauk málarekstri í hinu svokallaða
Vafningsmáli þar sem farið er fram
á fimm og hálfs árs fangelsi yfir
honum vegna umboðssvika. Niður-
stöðu í því máli er að vænta 28. des-
ember næstkomandi.
Tveir milljarðar til Pálma og Jóns
Rannsókn málsins hefur staðið
yfir um nokkurra ára skeið. Þann
16. nóvember 2010 framkvæmdi
embætti sérstaks saksóknara hús-
leitir á fjölmörgum stöðum, handtók
menn og boðaði aðra til yfirheyrslu
vegna fimm sundurgreindra mála
sem tengjast Glitni sem það var
með til rannsóknar. Á meðal þeirra
mála var sex milljarða króna lán-
veiting Glitnis til FS38 ehf., félags
í eigu Pálma Haraldssonar, í júlí
2008. Lánið var notað til að kaupa
eignarhlut Fons, sem var einnig í
eigu Pálma, í Aurum Holding, sem
á bresku verslanakeðjurnar Gold-
smiths, Mappin&Webb og Watches
of Switzerland.
Eftir að lánið var greitt út notaði
FS38 fjóra milljarða króna af því til
að gera upp vanskil Pálma Haralds-
sonar en tveir milljarðar króna voru
færðir inn á hlaupareikning Fons.
Þaðan var einn milljarður króna
færður inn á persónulegan hlaupa-
reikning Jóns Ásgeirs.
Samkvæmt tölvupósti sem Pálmi
sendi starfsmönnum Glitnis við
undirbúning lánveitingarinnar átti
afgangur hennar að vera frír „til
ráðstöfunar fyrir Fons“. Það var
um einn milljarður króna. Bjarni
Jóhannesson, sem var viðskipta-
stjóri hjá Glitni og þjónustaði meðal
annars félög í eigu Jóns Ásgeirs, og
Magnús Arnar Arngrímsson, sem
var framkvæmdastjóri fyrirtækja-
sviðs Glitnis og sat í áhættunefnd
hans, komu báðir að veitingu lánsins
til FS38.
Selt aftur til Glitnis fyrir krónu
Samhliða lánasamningnum gerðu
Glitnir og Fons með sér samning um
sölurétt Fons á FS38 til Glitnis á eina
krónu. Þann 30. desember 2008 til-
kynnti Fons um að félagið hygðist
nýta sér þennan sölurétt. Þannig
komst FS38 í eigu Glitnis sem sat
uppi með sex milljarða króna lánið
og hlutabréfin í Aurum sem keypt
höfðu verið. Þegar lánið var á gjald-
daga í júlí 2009 var ekki hægt að
greiða það. Slitastjórn Glitnis hefur
metið virði Aurum-bréfanna á þeim
tíma sem ekkert.
Heimildir Fréttablaðsins herma að
annar þeirra milljarða sem greidd-
ir voru til Pálma hafi ratað inn á
reikning í Kaupþingi í Lúxemborg.
Í mars 2011 framkvæmdi embætti
sérstaks saksóknara umfangsmikla
húsleit í bankanum, sem nú heitir
Banque Havilland, og lagði meðal
annars hald á gögn sem tengdust
þeirri millifærslu. Tæpt ár tók að fá
þau gögn afhent frá lúxemborgskum
yfirvöldum. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins skiptu þessi gögn
miklu máli fyrir rannsókn Aurum-
málsins. Rannsóknarfasa málsins
lauk fyrir þó nokkru síðan en dregist
hefur að taka ákvörðun um hvort
ákæra ætti og hverja.
60%
er sá hlutur í
Aurum
Holding sem
þrotabú
Landsbank-
ans seldi
nýverið.
1,0
pund er sú
upphæð
sem hlut-
hafar Aurum
seldu hluta-
bréf sín á
árið 2009.
Lesa má
bréf Jóns
Ásgeirs Jóhann-
essonar í heild
sinni á Vísi.
visir.is
Fjórir ákærðir fyrir umboðssvik
Þrír fyrrum stjórnendur Glitnis og fyrrum stjórnarformaður aðaleiganda bankans hafa verið kærðir fyrir umboðssvik og hlutdeild í þeim.
Málið snýst um sex milljarða króna lánveitingu til kaupa á Aurum Holding. Réttarstöðu Pálma Haraldssonar breytt. Hann er nú vitni.
Aurum Holding fór í gegnum fjárhagslega endurskipu-
lagningu á árinu 2009. Þá var félagið endurfjármagnað,
skuldum upp á 8,5 milljarða króna breytt í nýtt hlutafé
og kröfuhafar lánuðu Aurum auk þess tvo milljarða
króna. Á sama tíma seldu allir hluthafar, þar á meðal
Glitnir, hlutafé sitt á málamyndaverði og afskrifuðu það
í kjölfarið. Rekstur Aurum hefur batnað til muna eftir
þetta og jókst hagnaður félagsins til að mynda um 53
prósent á rekstrarárinu 2011.
Í stefnu slitastjórnar Glitnis, sem greint er frá hér til
hliðar, segir að „skv. tillögu frá Pricewaterhouse Coopers
sem sett var fram til að forða Aurum frá gjaldþroti
breytti Landsbankinn, sem var helsti lánardrottinn
félagsins, hluta af lánum sínum í hlutafé gegn því að allir
hluthafar félagsins seldu hlutabréf sín á málamyndaverði
sem var eitt pund. Á það féllust hluthafar og afskrifuðu
sitt hlutafé í Aurum“.
Eftir þessa endurskipulagningu eignaðist Lands-
bankinn um 60 prósenta hlut í Aurum. Þann hlut
seldi þrotabúið fyrr í þessum mánuði til Apollo Global
Management. Söluverð alls hlutafjár í Aurum var um 175
milljónir punda, um 36 milljarðar króna, þegar saman
eru lögð greiðsla og vaxtaberandi skuldir sem keyptar
voru.
Jón Ásgeir Jóhannesson, einn hinn ákærðu í málinu,
sendi bréf til sérstaks saksóknara vegna þess í síðustu
viku þar sem hann fjallar um nýlega sölu á Aurum. Í bréfi
Jóns Ásgeirs, sem Fréttablaðið hefur undir höndum, segir
að „við umbreytingar á skuldum Aurum í hlutafé á árinu
2009 var Glitni boðið að taka þátt í hlutafjáraukning-
unni, sem slitastjórn Glitnis hafnaði. Með því varð Glitnir
af því tækifæri að verja eign sína. Hefði sú ákvörðun ver-
ið tekin er ljóst að tap Glitnis vegna umræddra viðskipta
hefði ekki átt sér stað. Don McCarthy, sem tók stöðu
Glitnis við aukninguna, er nú að hagnast um á fimmta
milljarð ISK. Sá hagnaður hefði auðveldlega getað verið
Glitnis, ef réttar ákvarðanir hefðu verið teknar“.
Jón Ásgeir hélt því einnig fram í bréfinu að austur-
lenska skartgripafyrirtækið Damas hefði haft samband
við seljendur á lokametrum sölunnar og óskað eftir því
að fá að kaupa félagið fyrir hærra verð. Það hefði hins
vegar ekki verið hægt þar sem þegar hefði verið búið
að undirrita samkomulag um sölu til Apollo. Slitastjórn
Landsbankans vildi ekki tjá sig um þennan skilning í gær
þegar Fréttablaðið leitaði eftir upplýsingum um málið.
Landsbankinn hagnast vel á Aurum
Lárus Welding var for-
stjóri Glitnis og formaður
áhættunefndar bankans.
Hann er einn hinna stefndu
í skaðabótamáli slitastjórnar
Glitnis vegna Aurum-lánsins
og er sakborningur í svoköll-
uðu Vafningsmáli. Þar er
honum einnig gefið að hafa
framið umboðssvik. Lárus er
ákærður sem aðalmaður í
umboðssvikum.
Magnús Arnar Arngrímsson
gegndi stöðu framkvæmda-
stjóra fyrirtækjasviðs
Glitnis og sat í áhættunefnd
bankans. Hann starfaði
um tíma hjá Íslandsbanka
eftir hrun. Magnús Arnar er
ákærður sem aðalmaður í
umboðssvikum.
Hinir ákærðu
Slitastjórn Glitnis stefndi Jóni Ásgeiri, Pálma, Lárusi
Welding og þremur fyrrum starfsmönnum Glitnis vegna
Aurum-lánsins snemma árs 2010 og eru hinir stefndu
sameiginlega krafðir um greiðslu á sex milljörðum
króna auk vaxta frá miðju ári 2008. Málið var sett í
biðstöðu í febrúar síðastliðnum eftir að dómari þess í
héraðsdómi vildi fá að vita hvað kæmi út úr rannsókn
sérstaks saksóknara áður en lengra yrði haldið.
Málið var tekið aftur fyrir í maí og þá lögðu dómkvaddir
matsmenn fram mat sitt á virði eignarhlutar Fons í
Aurum þegar Glitnir veitti lán til kaupa á honum í júlí
2008. Niðurstaða þeirra var sú að virði hlutarins hefði
verið á bilinu 0 til 929 milljónir króna og eðlilegt mat á
honum hefði verið þar mitt á milli, eða 464 milljónir króna. Það er þrettán sinnum lægri upphæð en það sem greitt
var fyrir hlutinn.
Hinir stefndu vísuðu þessu mati á bug og fóru fram á yfirmat. Það hefur enn ekki verið klárað. Eftir að sérstakur
saksóknari ákvað að ákæra í Aurum-málinu er ljóst að einkamálið mun frestast þar til niðurstaða liggur fyrir í saka-
málahluta þess. Því er ljóst að það mun fylgja hinum stefndu í nokkur ár til viðbótar.
MÁL SLITASTJÓRNARINNAR FRESTAST
Jón Ásgeir Jóhannesson,
var stjórnarformaður og
aðaleigandi FL Group, sem
var stærsti eigandi Glitnis.
Hann er einn hinna stefndu
í skaðabótamáli slitastjórnar
Glitnis vegna Aurum-lánsins.
Jón Ásgeir er ákærður fyrir
hlutdeild í umboðssvikum.
Bjarni Jóhannesson er
fyrrum viðskiptastjóri hjá
Glitni. Hann sá meðal annars
um viðskipti Baugs og
tengdra aðila við bankann
fram að falli hans í október
2008. Bjarni er ákærður fyrir
hlutdeild í umboðssvikum.
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@frettabladid.is
Jón Ásgeir Jóhannesson segir í yfirlýsingu sem hann sendi til
Fréttablaðsins að um skáldað sakamál sé að ræða.
„Sakarefni sem á mig eru borin standast ekki skoðun.
1 Glitnir var betur tryggður eftir viðskiptin en fyrir. Það sjá allir
sem málið skoða.
2 Fons var vel gjaldfært þegar samningur var gerður samkvæmt
úttekt.
3 Þú Blá Sól ehf. gerði samning við Fons, ekki Glitni.
4 Aurum hefur staðið undir því verðmæti sem notað var sem
viðmið.
5 Það er fáránlegt að halda því fram að við, sem stærstu eigendur
Glitnis á þessum tíma, hefðum hag af því að skaða bankann.
6 milljarða tap hefði kostað okkur í kringum 16 milljarða í
markaðsvirði.
6 Ég tók þátt í því að koma á góðum viðskiptum fyrir Glitni. Menn
geta endalaust rifist um verðmat, en það er óumdeilt að Aurum
var selt í síðustu viku á 36 milljarða. Það er mun hærra verð en
saksóknari notar í verðmati i ákæru.
Ég er dapur yfir því að hafa verið ofsóttur af yfirvöldum í 10 ár.
Frá ágúst 2002 hef ég haft stöðu grunaðs manns hjá íslenskum
yfirvöldum. Það er þungbært fyrir mig og mína fjölskyldu. Margir
segja að aðkoma mín að útgáfu Fréttablaðsins sé ástæðan fyrir því
en það er óumdeilt að ofsóknir gegn mér byrjuðu á sama tíma. Það
þekkja allir sögu tölvupósta fyrrum ritstjóra Morgunblaðsins þar
sem yfirvöld voru hvött til aðgerða gegn mér og mínum.
Það að ákæra mann sem er með mál í dómi, Lárus Welding,
er eins ómanneskjulegt og hægt er að hugsa sér. Það er mýta að
efnahagsbrot séu flókin. Það hins vegar tekur tíma að skálda upp
sakamál. Það er einmitt að gerast í þessu máli og öðrum.“
Jón Ásgeir segir sakamálið skáldað
ASKÝRING | 18
SÉRSTAKUR SAKSÓKNARI ÁKÆRIR Í AURUM HOLDING MÁLINU