Fréttablaðið - 14.12.2012, Blaðsíða 36
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 36
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
er frumkvöðull á Íslandi í vöktun
loftgæða. Heilbrigðiseftirlitið
vaktar loftgæði og sér m.a. um að
vinna úr gögnum, greina upptök,
senda út tilkynningar og að grípa
til mótvægisaðgerða, s.s. rykbind-
ingar á götum. Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur starfar í umboði heil-
brigðisnefndar Reykjavíkur og er
óháð stjórnsýslustofnun.
Saga vöktunar
Reykjavíkurborg hóf að vakta loft-
gæði árið 1990. Fjórar mæli stöðvar
eru í Reykjavík sem mæla loft-
gæði, þrjár fastar og ein færanleg,
en nokkrir aðilar koma að rekstri.
Í mælistöðvunum fara m.a. fram
mælingar á köfnunarefnis díoxíði
sem kemur frá útblæstri bíla,
svifryki (PM10) sem verður m.a.
til vegna nagladekkja notkunar
og brennisteinsvetnis frá háhita-
svæðum í nágrenni borgarinnar.
Með söfnun upplýsinga um loft-
gæði er hægt að meta hvort þurfi
að bregðast við og til hvaða mót-
vægisaðgerða eigi að grípa. Niður-
stöður mælinga nýtast einnig fyrir
skipulagningu svæða og í faralds-
fræðilegar rannsóknir.
Stuðst er við heilsuverndar-
mörk sem koma fram í tilskip-
unum Evrópusambandsins um
loftgæði sem teknar eru upp í
íslenskri löggjöf. Engin sam-
ræmd evrópsk viðmið eru til fyrir
styrk brennisteins vetnis, en árið
2010 var gefin út reglugerð fyrir
brennisteinsvetni í lofti.
Uppruni mengunar
Í Reykjavík er uppspretta meng-
unar fyrst og fremst vegna sam-
gangna, en svifryksmengun verður
einnig vegna sandstorma, t.d. frá
Landeyjasandi og ösku fjúks frá
öskufallssvæðum og jafnvel getur
mengun borist frá út löndum. Þá
getur brennisteinsvetni aukist í
andrúmslofti í Reykjavík vegna
virkjunar á háhitasvæðum í
nágrenni borgarinnar.
Rannsókn frá árinu 2002 á sam-
setningu svifryks (PM10) í Reykja-
vík að vetrarlagi sýndi að malbik
var u.þ.b. 55% af heildarsamsetn-
ingu svifryks. Reykjavíkurborg
hefur á liðnum árum staðið fyrir
árangursríkri auglýsingaherferð
gegn nagladekkjum, en þeim hefur
fækkað frá árinu 2004 úr 67% í
36% í mars 2012. Nagladekk eru
talin helsta ástæða slits á malbiki
og þá um leið aukinna agna í lofti.
Loftgæði í Reykjavík eru
almennt góð og ekki síst ef horft
er til annarra höfuðborga, t.d á
Norðurlöndunum. Í nýrri Evr-
óputilskipun um loftgæði, sem
stendur til að innleiða hérlend-
is, er leyfilegt fyrir styrk svif-
ryks (PM10) að fara 35 sinnum
yfir sólarhrings-heilsuverndar-
mörkin. Fjöldi skipta sem styrkur
svifryks (PM10) hefur farið yfir
mörkin hefur verið innan þess-
ara marka.
Loftgæði og heilsa
Borgarbúar hafa rétt á heil-
næmu umhverfi. Það er sífellt að
koma betur í ljós að mengað and-
rúmsloft getur haft margvísleg
áhrif á heilsu almennings. Þar
eru ákveðnir hópar taldir við-
kvæmari fyrir loftmengun en
aðrir, m.a. börn, einstaklingar
með astma og einstaklingar með
lungna- og/eða hjarta- og æða-
sjúkdóma.
Nýverið birtust niðurstöður
um áhrif loftmengunar á lyfja-
notkun sem sýndu að tengsl eru
með meiri notkun astmalyfja við
hærri styrk svifryks (PM10) og
brennisteinsvetnis. Einnig eru
vísbendingar um aukna notkun á
lyfjum við hjartaöng.
Viðbragðsáætlun
Viðbragðsáætlun heilbrigðis-
nefndar Reykjavíkur var sam-
þykkt árið 2009. Í henni er m.a.
fjallað um helstu uppsprettur
mengunarefna og mögulegar
skammtíma mótvægisaðgerðir.
Þar koma einnig fram mótvægis-
aðgerðir sem eru nú til skoðunar í
drögum að frumvarpi til Alþingis
um umferðarlög, s.s. heimildir til
að hægja tímabundið á umferð.
Viðbragðsteymi sem Heilbrigðis-
eftirlitið stýrir er starfandi hjá
Reykjavíkurborg. Teymið tekur
ákvarðanir um hvenær eigi að
senda út tilkynningar og hvenær
fara eigi í mótvægisaðgerðir eins
og rykbindingar. Viðbragðsteymið
er skipað fagfólki hjá borginni auk
fulltrúa Vegagerðar ríkisins.
Tilkynningar til almennings og skóla
Heilbrigðiseftirlitið sendir til-
kynningar til fjölmiðla þegar
loftmengun er líkleg til að fara
yfir heilsuverndarmörk, þann-
ig að einstaklingar sem eru við-
kvæmir í öndunarfærum geti
gert ráðstafanir. Til að gæta
hagsmuna barna sérstaklega
hófst samstarf á árinu 2006 milli
Umhverfis- og skipulagssviðs og
Skóla- og frístundasviðs.
Á heimasíðu Reykjavíkur-
borgar (www.reykjavik.is) getur
almenningur fylgst með stöðugt
uppfærðum upplýsingum um
loftgæði í borginni. Athuga ber
að þessi mæling sýnir að öllu
jöfnu mestu mengun í borginni
við mælistöðina á Grensásvegi.
Mikill áhugi hefur verið meðal
almennings að fylgjast með
niður stöðum mælinga.
Framtíðarsýn
Reykjavíkurborg vinnur um þessar
mundir að því að gera aðgengi
almennings að upplýsingum um
loftgæði enn betra, auk þess sem
fjölga á færanlegum mæli stöðvum
borgarinnar í tvær á næstunni.
Færanlegar mælistöðvar nýtast
vel til að skoða áhugaverða staði
í borginni, s.s. nálægt umferðar-
þungum götum og stöðum þar sem
börn dveljast, s.s. leikskólum.
Stefna Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur er að vera áfram í
fararbroddi í vöktun loftgæða og
veita góða þjónustu til borgar-
búa auk þess að stuðla að bætt-
um loftgæðum í borginni svo
íbúar borgarinnar búi við bestu
loftgæði á hverjum tíma.
Vöktun loftgæða í Reykjavík
Í byrjun september birtist
grein í Fréttablaðinu undir
titlinum Staðan í dag.
Sama dag birtist frétt á
öllum ljósvakamiðlum um
hækkun launa forstjóra
Landspítala. Hækkun
sem kveikti elda því þótt
þiggjandi hafi afsalað sér
hækkuninni samsvarar
upphæðin rúmum mán-
aðarlaunum margra laun-
þega. Eldarnir verða varla
slökktir í bráð. Hækkunin
gladdi mig, hún hlýtur að
boða fleiri gleðitíðindi.
Nú má greiða fyrir vinnuframlag
umfram starfslýsingu hjá ríkinu
og nú má semja.
Í fyrrnefndri grein talaði ég um
vinnuframlag kennara umfram
starfslýsingu. Vinnuframlag sem
eykur það mikla álag sem nú
þegar hvílir á kennurum, breytir
skólastarfi og skiptir gríðarlegu
máli fyrir kennslu barnanna okkar
á öllum skólastigum um komandi
ár. Nú hlýtur þessi vinna að fást
greidd að fullu, fjármagn til breyt-
inganna verða skilgreint þannig
að vinnan verði fullunnin og allir
sem að koma hafi sóma af.
Velferðarvaktin
Við kennarar erum ekki einir á vel-
ferðarvaktinni. Heilbrigðisstarfs-
fólk hefur líka brýnt kuta sína og
skorið niður. Fréttir af blóðmjólk-
andi niðurskurði, úreltum og bil-
uðum tækjum og auknu álagi á
starfsfólk heilbrigðisstofnana
hafa ekki farið fram hjá neinum.
En erum við alveg með á nótunum?
Álag á heilbrigðisstarfsmenn
hefur aukist m.a. vegna þess að
skilgreining fullmannaðrar vaktar
í dag er ekki sú sama og fyrir
nokkrum árum. Engum hefur
verið sagt upp og því er starfs-
mannavelta náttúruleg en á móti
kemur að ekki er ráðið í stöður
þeirra sem hætta sökum aldurs
eða segja upp. Ef einhver starfs-
maður veikist er ekki kölluð út
aukavakt heldur verður starfs-
fólk að hlaupa hraðar. Þess vegna
getur álag á heilbrigðisstarfsfólk
orðið svo mikið að það nær jafn-
vel ekki að setjast niður eða fara
á salernið heila vakt. Öryggi sjúk-
linga er tryggt en þegar
álagið hefur vaxið úr hófi
er sjálfsagt að spyrja; Er
ekki komið að þolmörkum?
Hvað ef eitthvað gerist?
Mannréttindabrot
Hluti starfs heilbrigðis-
starfsmanna snýr að andlegum
stuðningi bæði við sjúklinga og
aðstandendur. Nú er staðan sú að
þeir vinna það allra nauðsynlegasta
á hlaupum en geta illa sinnt sjúk-
lingum eins og þeir kysu og eiga í
erfiðleikum með að finna tíma til að
veita aðstandendum upplýsingar og
þann stuðning sem þarf þegar ætt-
ingi er mikið veikur. Andlegi þáttur
starfsins situr á hakanum og eftir
sitja aðstandendur og sjúklingar.
Ég vinn ekki við hjúkrun en ég er
aðstandandi. Undanfarin ár hef ég
oft upplifað það að nánum ættingja
mínum er sinnt verr en áður, hjúkr-
un hans er honum alls ekki boðleg,
hann illa þrifinn og upplýsingaflæði
er oft og tíðum stopult. Þetta á ekki
við um allar heimsóknir en þeim
stundum hefur fjölgað. Ættingi
minn er mikið veikur og þarf aðstoð
við athafnir daglegs lífs. Hann þarf
hjálp við allar grunnþarfir, m.a. að
klæðast, borða og komast á kló-
sett. Ég verð stundum mjög sár og
reið fyrir hans hönd þegar ég kem
í heimsókn. Þá finnst mér brotið á
mannréttindum hans. En ég áfellist
ekki hlaupandi starfsfólkið.
Mikið álag í starfi, sem sáir efa í
huga starfsmanns um getu hans, er
eitur og veldur því að starfsmaður-
inn verður afhuga starfinu jafnvel
þótt það sé hans ástríða. Ég hef upp-
lifað það sjálf.
Velferðarvaktin leggur sig alla
fram en uppsker ekki og veruleik-
inn er grár og sár. Við sem störfum
í velferðarstörfum, sinnum fólki,
erum ekki metin að verðleikum. Af
hverju?
Því hvað er mikilvægara en lífið
sjálft og framtíð heillar þjóðar?
Lífið sjálft og
framtíð þjóðar
Vegna deilu þingkonu
og læknis í Kast ljósinu
þann 3. desember, þar
sem læknirinn var
mikið á móti þings-
ályktunartillögu sem
komið hefur fram og
felur í sér umboð til
heilbrigðisráðherra til
að stofna þverfaglega
nefnd til að kanna rétt-
mæti niður fel l ingar
v i rð is auk ask at ts á
vinnu græðara. Er gott
að benda á að fyrir 252
árum þann 17.3. 1760 hóf fyrsti
háskóla-læknismenntaði mað-
urinn störf á Íslandi. Það var
Bjarni Pálsson sem síðan varð
landlæknir. Á þeim tíma var
virðing almennings fyrir skóla-
gengnu fólki mikil. Þess vegna
lutu grasalækningar í lægra
haldi þó að sumum grasa-
læknum tækist að græða mein
sem háskólamenntuðum læknum
tókst ekki. Dæmi um slíkt er í
ævisögu Kristjáns Sveins sonar
læknis, sem stofnaði Heilsu-
hælið í Hveragerði. Hann skadd-
aðist illa á þumalfingri þegar
hann var barn.
Vildi háskólalærði læknirinn
taka fingurinn af en móðir
Jónasar neitaði því og græddi svo
sjálf fingurinn með jurtum.
Nú er öldin önnur og ekki hægt
að líta niður á þann fjölda Íslend-
inga sem hefur aflað sér
margra ára menntunar
í hinum ýmsu heildrænu með-
ferðum. Margar hverjar þessar
meðferðir reynast mjög vel og
meira að segja sumar svo vel að
í gegnum þær hafa einstakling-
ar fengið bót meina sinna, þótt
vestræn læknisfræði hafi staðið
ráðalaus í þeim tilvikum.
Það þarf ekki að deila um
það að þörf er á nýrri nálgun
í íslensku heilbrigðiskerfi,
það sanna fréttir af offitu og
fjölgun fólks með sykursýki II,
óhóf legum ávísunum lækna á
geðlyf og svefnlyf, og dauðsföll
af völdum lyfja og margt fleira.
Það er krafa fjölda Íslendinga
að hefðbundnir og óhefð bundnir
meðferðaraðilar vinni saman
án fordóma að hei lbrigði
þjóðarinnar. Þá getur hver
einstaklingur valið þá meðferð
sem honum hentar.
Krafa um nýja nálgun
í heilbrigðiskerfinu
UMHVERFISMÁL
Anna Rósa
Böðvarsdóttir
verkefnisstjóri
➜ Í Reykjavík er uppspretta
mengunar fyrst og fremst
vegna samgangna … SAMFÉLAG
Sigrún Birna
Björnsdóttir
íslenskukennari
og fagstjóri við
Fjölbrautaskólann í
Breiðholti
➜ Velferðarvaktin
leggur sig alla fram
en uppsker ekki og
veruleikinn er grár
og sár.
➜ Það þarf ekki að
deila um það að þörf
er á nýrri nálgun í
íslensku heilbrigðis-
kerfi , það sanna fréttir
af offi tu og fjölgun
fólks með sykursýki
II...
HEILBRIGÐIS-
MÁL
Ingibjörg
Sigfúsdóttir
stjórnarmaður í
Heilsuhringnum
Árný
Sigurðardóttir
framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseft irlits
Reykjavíkur
TAKTU ÞÁTT Í
JÓLARÚLLULEIK PAPCO!
Með því að kaupa WC pappír frá Papco fyrir jólin áttu möguleika á að
vinna glæsilegan vinning í jólarúlluleiknum. Fjöldi frábærra vinninga,
snjóbretti, bindingar og skór frá Mohawks, úlpur frá Cintamani,
Hamax-sleði, árskort í Hlíðarfjall og margt, margt fleira!
WWW.PAPCO.IS
STYRKJUM
GOTT MÁLEFN
I!
EIN RÚLLA
AF HVERRI
SELDRI PAK
KNINGU
AF WC PAPPÍ
R
RENNUR TI
L MÆÐRA-
STYRKSNEF
NDAR
OG FJÖLSKY
LDU-
HJÁLPARIN
NAR