Fréttablaðið - 14.12.2012, Side 38
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 38
Allir sem hafa haldið utan
um rekstur, t.d. heimilis,
félags eða fyrirtækis, vita
að ef tekjur duga ekki
fyrir útgjöldum fer rekst-
urinn á endanum í þrot.
Þetta er ótrúlega einfalt.
Ömmuhagfræði. Þú þarft
að afla a.m.k. jafn margra
króna og þú lætur frá þér.
Í kjölfar hrunsins hefur
ríkið tekið á sig mikl-
ar skuldir og verið rekið
með halla, í mínus. Rekst-
urinn stendur ekki undir
sér. Ríkisstjórnin ákvað að skera
niður og auka tekjurnar til að
mæta hallarekstrinum.
Það var til þess að standa
undir þjóðnýtta tapinu
á einkavædda gróðan-
um. Þetta vita allir því
í fjölmiðlum er mikið
fjallað um rekstur ríkis-
sjóðs. Sömuleiðis heyrum
við reglulega fréttir af
fyrir tækjum, um rekst-
ur þeirra, hvort hann sé
í mínus eða plús.
Hins vegar er minna
fjallað um rekstur nátt-
úrunnar. Sá rekstur
virkar nákvæmlega eins: Auð-
lindir Jarðar eru þær tekjur sem
við notum í rekstur samfélaga.
Við notum auðlindir (s.s. málma,
jarðnæði, vatn og lífverur) til
þess að framleiða og þannig við-
halda lífsgæðum okkar. Nær allt
sem við notum á degi hverjum er
búið til úr náttúruauðlindum.
Í mínus
Og við erum í mínus. Tekjurnar
(náttúruauðlindir) duga ekki fyrir
útgjöldunum (framleiðslunni á
öllu dótinu okkar). Á heildina
litið er reksturinn 50% í mínus
(sjá t.d. footprintnetwork.org). Til
þess að standa undir rekstrinum
þyrftum við hálfa Jörð í viðbót.
Hún er ekki til. Eina leiðin til að
auka tekjurnar er að auðlindir fái
að endurnýja sig náttúrulega.
Ímyndaðu þér að heimilisbók-
haldið hjá þér væri 50% í mínus
um hver mánaðamót. Hve lengi
værir þú að fara á hausinn? Ekki
lengi. Jörðin er stór og því tekur
það nokkurn tíma að hún fari
í þrot. En það er eftir sem áður
tímaspursmál.
Það er misjafnt hversu mikið
samfélög eru í mínus (sum eru
meira að segja í plús). Við Íslend-
ingar erum líklega með þeim
þjóðum sem eru hvað mest í
mínus miðað við höfðatölu.
Það stefnir í þrot. Miðað við
áframhaldandi hagvöxt (aukin
útgjöld) stefnir í að árið 2050
verðum við jarðarbúar komnir
hátt í 200% í mínus. Þá þurfum
við tæplega tvær Jarðir til við-
bótar til að standa undir rekstr-
inum. Þær eru ekki til.
Þegar náttúruauðlindir klár-
ast og vistkerfi eyðileggjast er
engin skuldaaðlögun, kerfis-
breyting eða gjaldþrotameðferð
sem dugar til. Engin 110% leið.
Ef náttúruauðlind klárast er það
bara þannig. Dýrategund sem
deyr út kemur ekki aftur. Málm-
ur sem klárast kemur ekki aftur
fyrr en eftir skrilljón ár. Vist-
kerfi sem eyðileggjast hafa áhrif
á lífsskilyrði á Jörðinni.
Þá veistu það. Það er búið að
segja þér þetta. Þú hefur tvo val-
möguleika. Gera ekkert eða eitt-
hvað.
Það stefnir í þrot. Hvernig
komum við í veg fyrir það?
Sjálfbær rekstur
Mörgu þarf að breyta en að
grunni til er málið ósköp einfalt.
Reksturinn þarf að standa undir
sér: sjálfbær rekstur. Við þurfum
að draga úr útgjöldunum (fram-
leiðslu og neyslu) þannig að tekj-
urnar (náttúruauðlindir) standi
undir þeim. Ráðast þarf í niður-
skurð strax. Það þarf nákvæmar
upplýsingar um ástand umhverf-
isins, skilyrði í lögum um sjálf-
bæra nýtingu, tryggja að
umhverfiskostnaður sé innifal-
inn í verði vöru, umhverfisvott-
un sé skilyrði allrar framleiðslu
og samdrátt í neyslu. Til þessara
aðgerða verður að grípa strax, en
vafalaust er þörf á fleiri.
Og við þurfum líka að hafa í
huga að það er engin ástæða til
þess að nýta auðlindir jarðar til
fulls (100%) – við þurfum ekki að
dansa á línunni.
Hvað getur þú gert sem engu
ræður og ert bara smá brot af
heildinni? Helling.
Kauptu notað frekar en nýtt.
Láttu laga frekar en kaupa nýtt.
Notaðu það sem þú átt í staðinn
fyrir að kaupa meira dót. Veldu
umhverfismerkt (t.d. svans-
merkt). Kjóstu þá sem lofa að
koma í veg fyrir að náttúran fari
í þrot. Ekki kjósa þá sem lofa því
ekki. Alls ekki kjósa þá sem lofa
að auka framleiðslu og neyslu,
þ.e. auka útgjöldin. Taktu þátt í
félögum, eins og Öldu, sem vinna
að því að koma á sjálfbæru sam-
félagi. Hafðu áhrif á fólk í kring-
um þig. Leiktu þér með fjöl-
skyldu og vinum án þess að kaupa
eitthvað. Njóttu ósnortinnar nátt-
úru. Veldu lífrænt ræktað. Veldu
innlenda framleiðslu. Ekki henda
mat að óþörfu. Hreyfðu þig og
borðaðu hóflega.
Í verðlaun færðu betra,
skemmtilegra og heilsusamlegra
líf.
Þeir sem fara með völd almenn-
ings þurfa að girða sig í brók og
hætta, án tafar, að reka náttúr-
una í mínus. Að öðrum kosti er
aðeins tímaspursmál hvenær
náttúran fer í þrot.
Niðurskurð strax!
AUÐLINDIR
Kristinn Már
Ársælsson
stjórnarmaður í
Öldu– félagi um
sjálfb ærni og
lýðræði
➜Hvað getur þú gert sem
engu ræður og ert bara smá
brot af heildinni? Helling.
ð
Háaleitisbraut 13 · 108 Reykjavík · slf@slf.is · www.slf.is
HVATI HVOLPUR er samstarfsverkefni
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra
og Hagkaups.
Markmið með Hvata er að kynna
og styrkja félagið en hluti af ágóða
sölunnar rennur til starfs í þágu
fatlaðra barna og ungmenna. Hvati
er sérstaklega sniðugur og mjúkur
bangsi sem einnig er hægt að nota
sem handbrúðu. Með handbrúðunni
má örva bæði þroska barnsins og
tengslamyndun foreldra og barns.
Gefðu gjöf sem gleður og styrktu um
leið gott málefni!
GERÐU EINS OG ÉG - HVATI OG DÝRIN
Hreyfing er mikilvæg á öllum æviskeiðum
og stuðlar að betri heilsu og aukinni
vellíðan. Þessi bók er hugsuð sem
skemmtileg lesning fyrir börn en jafnframt
tæki fyrir foreldra og þá sem vinna með
börnum til að ýta undir markvissa hreyfingu,
þroska og tengslamyndun.
Eva Þengilsdóttir hefur skrifað barnaefni
fyrir sjónvarp, kirkjustarf og leikskóla, og
þróaði efnið um Hvata hvolp í samstarfi
við Æfingastöð Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra. Bergrún Íris Sævarsdóttir er
nýútskrifaður teiknari frá Myndlistaskólanum
í Reykjavík. Gerðu eins og ég er fyrsta
barnabók þeirra beggja.
SKEMMTILEGAR &
ÞROSKANDI JÓLAGJAFIR
2.390
2.999
TILBOÐ
3.190
3.999
TILBOÐ
Gildir til 21. desember.
GEFÐU
HÆNU
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3