Fréttablaðið - 14.12.2012, Side 48
8 • LÍFIÐ 14. DESEMBER 2012
af einhverri vitleysu, jólin byrja víst
þar hef ég heyrt! Við bökuðum síð-
ustu helgi með Unu og það er gott að
fá lyktina af smákökunum í íbúðina.
Svo hittum við vini okkar sem búa í
útlöndum. Ég er t.d. hrikalega spennt
að hitta Dóru Jó vinkonu mína, en hún
og fjölskylda búa í New York.
Leiklistin og þú – viltu segja mér
af hverju þú ákvaðst að feta þessa
braut? Ég for í Leiklistarskóla Íslands
árið 1997, þá 23 ára gömul, og útskrif-
aðist 2001 úr Listaháskóla Ísland, en
minn bekkur var fyrsti bekkurinn sem
útskrifaðist með BA-gráðu í leiklist. Af
hverju leiklist? Ég var mikið í dansi frá
6 ára aldri til 16 (margfaldur Íslands-
meistari í freestyle, he he). Lengi vel
var draumurinn að vera dansari. Ég
var snemma byrjuð að leika í auglýs-
ingum, sat fyrir í alls konar mynda-
tökum og vann sem fyrirsæta í nokkra
mánuði í Mílanó og eitt sumar í Aþenu
– það var áhugavert! Leiklistin var allt-
af þarna en ég þorði ekki að fara í inn-
tökuprófið. Svo hugsaði ég með mér
þegar ég var 23 ára að ef ég færi
ekki núna í inntökuprófin ætti ég allt-
af eftir að sjá eftir því. Þannig að ég
skellti mér og fór inn í fyrstu tilraun.
Ég var heppin með bekk, allt frábær-
ir listamenn, og við erum dugleg að
halda sambandi í dag. En námið sjálft
er mikil naflaskoðun og getur oft og
tíðum verið strembið – þú ert yfirleitt
að eiga við þína drauga og bresti. En
ég hef verið heppin og leikið helling í
leikhúsum og kvikmyndum. Það sem
getur verið erfitt við leiklistina er að
það er erfitt að vinna sig upp í henni,
eins og á við í flestum störfum. Ef
maður er ekki fastráðinn er maður
yfirleitt á árssamningi eða verkefna-
ráðinn. Síðan líður sá tími og ef það
er ekkert hlutverk sem hentar er enga
vinnu að fá, sama hversu mikið þú
hefur unnið fyrir húsið. Þetta er engin
venjuleg vinna! En það er líka það
sem er spennandi við hana og svo er
fólkið alveg fáránlega skemmtilegt.
Hver eru áhugamál þín fyrir utan
leiklistina? Ég er svo mikið fagidjót,
leiklistin er mitt aðaláhugamál, þetta
er bara þannig starf að það gleypir
mann allan og maður verður að gefa
sig allan í það. Ég segi oft við krakka
sem eru að spá í að fara í leiklist: er
þetta það eina sem þig langar að
gera? Ef ekki, spáðu þá alvarlega í að
gera eitthvað annað. Því ekki eru það
launin og starfsöryggið sem heilla. Ég
hef gaman af allri hönnun, myndlist og
tísku. Svo er það jóga, ég var búin að
skrá mig í jóganám í vetur en hætti
svo við þegar ég var ólétt, en ég á
örugglega eftir að fara í það seinna.
Við Reynir höfum ferðast mikið og það
mætti kannski telja það sem áhuga-
mál, en mér finnst ótrúlega gaman að
fara á nýja staði og sjá eitthvað nýtt.
Vonandi getum við haldið því áfram
eftir að erfinginn kemur.
En fyrirmyndir þínar? Fyrirmynd-
irnar eru margar, bæði í faginu og í
persónulega lífinu. Systkini mín koma
fyrst upp í hugann. Ég á tvær yngri
systur, þær Nínu Björk og Tinnu Dögg,
og einn yngri bróður, Sverri. Yngsta
systir mín Tinna á til dæmis fimm
börn en í vetur er hún í námi og að
vinna. Við fengum það í veganesti
að maður ætti að treysta á sjálfan
sig og við erum öll sjálfstæð og dug-
leg systkinin, sem ég er þakklát fyrir.
Svo eru það mínir frábæru vinir sem
erfitt er að gera upp á milli, þeir eru
líka fyrirmyndir mínar og innblástur
að ónefndum mínum yndislega maka
Reyni Lyngdal.
Eitthvað sem þú vilt koma á fram-
færi? Já, ég er að frumsýna kvik-
myndina XL 18. janúar þar sem ég
leik stórt hlutverk á móti Ólafi Darra.
Myndin er eftir Martein Þórsson sem
leikstýrði okkur Darra í Roklandi. (Fyrir
leik sinn í þeirri mynd fengu Elma og
Darri einmitt Edduverðlaun – innsk.
blm.)
Elmu Lísu
08.00 Vakna við knús frá Unu og Reyni, hún
er að fara í skólann. Ætla að kúra
aðeins lengur, það er svo gott í
myrkrinu.
10.00 Vakna. Var að dreyma eitthvað
rosalegt, mig dreymir endalaust
þessa dagana. Fer fram úr og fæ
mér Cheerios og djús og vítam-
ín. Fer aðeins í tölvuna, tíminn flýg-
ur. Klukkan orðin 11.30, á að mæta
í meðgöngujóga klukkan 12. Ég
klæði mig og geri mig klára.
12.00 Jóga með fullt af fal-legum óléttum mis-
þreyttum konum. Síðan jóga og
slökun til 13.30. Lífið er gott.
14.00 Matur á Maður lif-andi með minni góðu
frábæru vinkonu, Birgittu Birgis,
sem að ég hef ekki hitt alltof lengi,
hrikalega gaman mikið hlegið og
talað og góður og hollur matur.
15.00 Kaffi á Kaffitár með Birgittu. Enn þá
gaman.
16.00 Hljóðsetning fyrir myndina XL, hitti
Matta leikstjóra og Boga hljóð-
mann. Þeir eru skemmtilegir.
17.30 Fer í ónefnda búð og kaupi 2 pakka handa
Reyni í jólagjöf. Ætla ekki að fara
nánar út í það.
18.30 Kem heim, frá-bær dagur að baki.
Reynir búin að kaupa silung og
salat í matinn. Klára að pakka inn
gjöfunum til Lux þar sem Nína
systir og fjölskylda búa. Þarf að
senda þá á morgun svo að þeir
skili sér fyrir jólin.
20.00 Una mín kemur heim úr sundi en hún æfir
sund alla daga þessi snillingur.
Nú er heilög stund að mínu mati,
matur og farið yfir daginn saman.
Gengið frá eftir matinn, klára að
pakka inn til Lux. Una í rúmið, mikil
spenna fyrir jólasveininum!
21.30 Homeland, næstsíð-ast þáttur. Ótrúlega
gott stöff, mæli með þessum þátt-
um. Meira sjónvarp.
23.30 Í rúmið – góða nótt!
„Þetta er án efa stærsta og merkilegasta hlutverkið mitt til þessa enda finnst
mér það stór ákvörðun að eignast barn,“ segir Elma Lísa. MYND/EYÞÓR ÁRNASON
„Ég er sett 4. maí. Una Margrét, fósturdóttir mín,er afar spennt og á eftir
að vera frábær stóra systir.“ MYND/EYÞÓR ÁRNASON
Fyrir konur sem vilja vera vel upplýstar og
viðbúnar breytingaskeiðinu
GAGNLEG
OG TÍMABÆR
Við ráðum miklu um
líðan okkar og heilsufar
Ómissandi bók um árin eftir fertugt
eftir Jónu Ósk Pétursdóttur
Heilsan er mjög góð. Ég var rosalega þreytt
fyrstu þrjá mánuðina og slapp sem betur fer
við ógleðina.
Framhald af síðu 7