Fréttablaðið - 14.12.2012, Síða 76
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 56
Ein vinsælasta heiðurshljómsveit heims, The Bootleg Beatles, spilar í Hörpu sunnu-daginn 3. febrúar. Með henni verður strengja- og blásarasveit og verður því öllu tjaldað til þegar kemur að því að spila gömlu, góðu Bítlalögin.
Hljómsveitin hefur verið á
stífri sex vikna tónleikaferð
um Asíu, Ástralíu og Nýja-
Sjáland. Tveggja vikna tón-
leikaferð um Bretland er
fram undan og því nóg um
að vera. „Við erum meira og
minna á tónleikaferðum allt árið um kring.
Við verðum mjög uppteknir næsta árið, sem er frá-
bært,“ segir gítarleikarinn Andre Barreu hress í
bragði, en hann hermir eftir George Harrison á
tónleikunum.
Þetta verður í annað sinn sem sveitin kemur
til Íslands því hún spilaði hér á Broadway árið
1985 fyrir tilstuðlan Björgvins Halldórsson-
ar, sem þá var duglegur við að flytja erlendar
hljómsveitir til landsins.
Yfir þrjátíu ára ferill
The Bootleg Beatles á rætur sínar að rekja til ársins
1979. Þá var settur á fjalirnar söngleikur í West End
í London sem hafði áður verið sýndur í Bandaríkj-
unum. Enska hljómsveit vantaði og voru Barreu og
félagar hans ráðnir í starfið. Eftir að sýningin hætti
aðeins þremur mánuðum síðar ákváðu þeir að stofna
hljómsveit sem myndi spila Bítlalögin. „Þetta átti
að vera stoppistöð á milli verkefna en hefur haldið
áfram í meira en þrjátíu ár,“ segir hann og hlær.
Barreu er eini upphaflegi meðlimurinn sem er
enn eftir í hljómsveitinni. Tveir þeirra hættu fyrir
aðeins einu og hálfu ári og í staðinn komu yngri
og ferskari útgáfur af Paul McCartney og John
Lennon. „Þeir eru alveg frábærir. Það er æðislegt
að hafa svona góða spilara með sér.“
Vantrúin lögð á hilluna
Að sögn Barreu eru góðir og vandaðir tónleikar
aðalsmerki hljómsveitarinnar. „Við viljum að fólk
leggi vantrú sína á hilluna í smá stund og trúi því
að mögulega séu Bítlarnir sjálfir komnir upp á svið,
bæði í útliti og sem hljómsveit,“ segir hann og tekur
fram að þeir komi aðeins fram sem Bítlarnir á tón-
leikum en ekki í sínu daglega lífi. „Á Íslandi spilum
við með strengjasveit, sem verður mjög skemmti-
legt. Við getum spilað lög eins og I Am the Walrus
og All You Need Is Love. Það er gaman að heyra
þessa tónlist á alvöru tónleikum.“
Fyrsta eftirhermubandið
Hversu mörg Bítlaheiðursbönd eru til í heiminum?
„Þau eru um fjórar milljónir,“ segir gítarleikarinn
og hlær. „Nei, ég veit það ekki, en við erum þeir
fyrstu sem komu fram á sjónarsviðið. Þegar við
stofnuðum The Bootleg Beatles var augljóst að tón-
list Bítlanna væri frábær og þeir væru mikilvægir í
menningarlegu tilliti en núna eru þeir enn merki-
legri og meira framandi en þegar við byrjuðum.“
Aðspurður hvort þeir séu bestu Bítlaeftirherm-
urnar segist hann ekki geta svarað því. „Við höfum
verið lengst að og höfum spilað á mörgum krefjandi
tónleikum. Við höfum spilað á aðalsviðinu á Glaston-
bury-hátíðinni og í Royal Albert Hall. Ef menn lifa
slíkt af segir það sitthvað um gæði hljómsveitar-
innar. Núna þegar þessir tveir nýju meðlimir eru
komnir get ég sagt með vissu að við erum með þá
bestu innan okkar raða.“
Spiluðu á þaki Apple
Spurður út í minnisstæðustu tónleikana á þessum
langa ferli nefnir Barreu upphitun í Knebworth
fyrir Oasis og tónleika á þaki Apple-byggingarinnar
þar sem Bítlarnir spiluðu á sínum síðustu tónleikum
árið 1969. „Við erum eina bandið sem hefur endur-
skapað það gigg almennilega,“ segir Barreu, sem er
einnig virtur hljóðversleikari og spilaði meðal ann-
ars gítarsólóið í lagi Robbie Williams, Angels.
Fjögur tímaskeið Bítlanna
Um tónleikana á Íslandi segir hann: „Þetta verða
fjögur tímaskeið Bítlanna. Fyrst lög eins og Twist
and Shout frá því mjög snemma á ferlinum, svo
Ticket to Ride og fleiri lög og svo Sgt. Pepper‘s
Lonely Hearts Club Band-tíminn þar sem við spilum
Strawberry Fields Forever, sem Bítlarnir spiluðu
aldrei á tónleikum. Í lokin spilum við lög af Abbey
Road-plötunni og ljúkum þessu svo með Hey Jude.
Þarna verða nokkrar óvæntar uppákomur líka. Von-
andi getur fólk gleymt sér aðeins og ímyndað sér að
það sé að horfa á Bítlana.“
ÍMYNDIÐ
YKKUR BÍTLANA
The Bootleg Beatles spilar lög Bítlanna í Hörpunni í febrúar. Hljómsveitin hefur
verið að í yfi r þrjátíu ár. Gítarleikarinn Andre Barreu lofar vönduðum tónleikum.
AFTUR TIL ÍSLANDS The Bootleg Beatles spilar á Íslandi í annað sinn í febrúar næstkomandi.
FERILSKRÁ THE BOOTLEG BEATLES
The Bootleg Beatles spilaði eitt sinn í afmæli Daves Gilmour úr Pink Floyd
og þar hitti Barreu George Harrison. „Ég vissi að hann var á gestalist-
anum en ég bjóst aldrei við að hann myndi mæta. Þá sögðu þeir okkur að
George væri á staðnum ásamt eiginkonu sinni. Ég ákvað að vera ekkert
feiminn uppi á sviði heldur gera þetta almennilega,“ segir hann. „Ég talaði
lengi við hann á eftir og hann var mjög fyndinn. Hann kynnti mig fyrir
eiginkonu sinni og Patti Boyd [fyrrverandi eiginkonu Harrison]. Þetta var
alvöru spjall, ekkert: „Hæ, hvernig hefurðu það og bless“, og ég gat ekki
verið ánægðari með þetta allt saman.“
Barreu hitti einnig Paul McCartney þegar The Bootleg Beatles spilaði
á fjörutíu ára krýningarafmæli Elísabetar Englandsdrottningar. „Hann er
mjög sjarmerandi. Við áttum gott spjall og hann var mjög vingjarnlegur.
Málið er að Bítlarnir haga sér nefnilega ekki eins og neinar ofurstjörnur.“
Hitti George Harrison og McCartney
5 sinnum á Glastonbury-
hátíðinni
18 sinnum í The Royal
Albert Hall
3 sinnum á Hróarskeldu Á 40 ára krýningar-afmæli Elísabetar
Englandsdrottningar
Í Budokan-
höllinni í Japan
Á Wembley-
leikvanginum
The Bootleg Beatles
hefur spilað á yfi r
tónleikum,
þar á meðal:
4.000
Freyr
Bjarnason
freyr@frettabladid.is
Hjálpræðisherinn Reykjavík
Fatahjálp:
Hringið 849 0036 á mánudögum milli kr 11 og 14.
Aðfangadaginn kl 18:00 Jólamat og jólahátíð.
Skráningu á reykjavik@herinn.is og í síma 552 0708
innan 20. desember.
Þökkum öllum sem vilja leggja starfinu lið.
Hægt er að leggja gjafir inn á reikning:
513-26-604761 kt: 450189-2789.