Fréttablaðið - 14.12.2012, Page 86
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| SPORT | 66
FÓTBOLTI Það eru breytingar í
kortunum hjá Hafnfirðingnum
Hirti Loga Valgarðssyni á nýju ári.
Þá mun hann væntanlega kveðja
sænska úrvalsdeildarliðið IFK
Göteborg sem hann hefur spil-
að með undanfarin tvö ár. Hann
á samt tvö ár eftir af samningi
sínum við félagið.
„Það er verið að skoða þessi mál
fyrir mig og væntanlega gerist
eitthvað í janúar. Göteborg ætlar
að fá inn nýjan mann í mína stöðu
og ég nenni ekki að sitja á bekkn-
um. Ég er ekki í plönum þjálfarans
og því vil ég eðlilega fara annað,“
sagði Hjörtur Logi en Göteborg er
ekki enn búið að kaupa bakvörð í
hans stað.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins ætti Hafnfirðingurinn
ekki að vera í vandræðum með að
finna sér nýtt félag en þrjú sænsk
úrvalsdeildarlið hafa þegar sýnt
honum áhuga.
„Ég er búinn að tala við þjálfar-
ann og það var sameiginleg niður-
staða okkar að það væri best að ég
myndi finna mér nýtt félag. Ég er
orðinn 24 ára og þarf að fá að spila.
Ég vil líka sanna mig enda finnst
mér það ekki hafa gengið nógu vel
hingað til. Ég þarf að fá að spila
til þess að gera það. Félagið segist
ekki ætla að gera mér erfitt fyrir.
Ef ég verð ekki seldur þá finnst
vonandi lausn með lánssamning.
Þeir segjast vilja gera það besta
fyrir mig og ég treysti því.“
Síðasta tímabil var svolítið mikið
upp og niður bæði hjá Hirti Loga
og hjá félaginu.
„Ég var svolítið inn og út. Þetta
byrjaði þokkalega hjá mér en liðið
stóð ekki undir væntingum. Þá var
byrjað að skipta mikið og ég varð
fyrir barðinu á því eins og fleiri.
Ég hefði viljað gera betur og halda
stöðunni en þetta var upp og niður
hjá mér. Þegar illa gekk fór sjálfs-
traustið niður. Svo kom það upp
aftur.“
Þó svo ekki hafi allt gengið upp
hjá Hirti Loga í Svíþjóð þá sér
hann alls ekki eftir því að hafa
samið við félagið á sínum tíma.
„Þessi tími hefur ekki beint
verið vonbrigði en vissulega vildi
ég gera aðeins betur. Þetta var
aðeins stærra stökk en ég bjóst við
í byrjun. IFK Göteborg er rosalega
stór klúbbur og það voru viðbrigði
fyrir mig. Það tók mig því smá
tíma að komast inn í hlutina,“ sagði
bakvörðurinn en hann hefur grætt
mikið á þessum tíma.
„Ég hef bætt mig mikið sem leik-
maður frá því ég kom út. Ég tek það
jákvæða úr þessu þó svo ég vildi
gera betur. Ef liðinu hefði geng-
ið betur þá hefði ég kannski gert
betur. Það má endalaust velta slíku
upp. Heilt yfir er ég ánægður með
þetta enda bætt mig og svo hefur
þetta verið heilmikil reynsla.“
Eins og áður segir eru félög í
sænsku úrvalsdeildinni búin að
sýna Hirti áhuga. Honum líst vel á
að spila þar áfram.
„Ég hef heyrt af þessum áhuga
og það væri fínt að vera hér áfram
þar sem ég er búinn að koma mér
inn í tungumálið og menninguna.
Ég kann vel við sænska boltann.
Það eru mörg góð lið hérna og spil-
aður fínn bolti. Ég skoða samt allt
sem kemur upp.“
Hjörtur og félagar fengu frí
eftir mót í síðasta mánuði. Þeir eru
mættir aftur til æfinga og munu
æfa fram að jólum. Þá fær hann frí
yfir jól og áramót. Svo taka vænt-
anlega við nýir tímar.
„Það verður gott að fá fínt jólafrí
og svo kemur bara í ljós hvað verð-
ur á nýju ári.“ henry@frettabladid.is
Ég er orðinn 24 ára
og þarf að fá að spila. Ég
vil líka sanna mig enda
finnst mér það ekki hafa
gengið nógu vel.
Hjörtur Logi Valgarðsson
Svekktur með fá landsliðstækifæri
Hjörtur Logi hefur ekki fengið mörg tækifæri undir
stjórn nýs landsliðsþjálfara, Svíans Lars Lagerbäck.
Það hefur valdið honum nokkrum vonbrigðum.
„Ég er svolítið svekktur að hafa ekki fengið mörg
tækifæri. Það er samt lítið við því að gera. Ég verð
að halda mínu striki og reyna að sanna mig þegar ég
fæ tækifæri. Vonandi verða þau fleiri í framtíð-
inni,“ sagði Hjörtur en þessum tækifærum
gæti fjölgað er hann fær að spila meira.
„Það er óskandi. Ef ég næ að halda föstu
sæti í einhverju liði þá er það gott fyrir
mitt sjálfstraust. Þá hef ég trú á að ég eigi
góða möguleiki á landsliðssæti,“ sagði
Hafnfirðingurinn brattur.
visir.is
Allt um leiki
gærkvöldsins
N1-DEILD KARLA
AFTURELDING - AKUREYRI 32-26
Atkvæðamestir - Mörk (skot):Jóhann Jóhannsson
9/3 (12/3), Helgi Héðinsson 5 (8), Sverrir
Hermannsson 4 (7), Pétur Júníusson 3 (3), Þrándur
Gíslason 3 (6), Hilmar Stefánsson 3 (8) - Bjarni
Fritzsson 10/6 (14/6), Andri Snær Stefánsson 3 (5),
Valþór Guðrúnarsson 3 (5), Geir Guðmundsson 3
(6), Guðmundur H. Helgason 3 (9).
Varin skot: Davíð Svansson 18 (44/6, 41%). -
Tomas Olason 9 (26/3, 35%), Kukobat 2 (17, 12%).
HK - FH 21-27
Atkvæðamestir - Mörk (skot): Bjarki Már Elísson
5/3 (7/3), Ólafur Víðir Ólafsson 4 (9), Eyþór
Már Magnússon 3 (8), Atli Karl Bachmann 2
(3), Vilhelm Gauti Bergsveinsson 2 (3), Garðar
Svansson 2 (8) - Þorkell Magnússon 7 (9), Ásbjörn
Friðriksson 7 (12), Einar Rafn Eiðsson 5 (8),
Sigurður Ágústsson 3 (3), Arnar Birkir Hálfdánsson
2 (2). Varin skot: Arnór Freyr Stefánsson 17 (44,
39%) - Daníel Freyr Andrésson 19 (40/3, 48%).
ÍR - FRAM 30-34
Atkvæðamestir - Mörk (skot): Sturla Ásgeirsson
12/5 (17/6), Sigurjón Friðbjörn Björnsson 6 (10),
Davíð Georgsson 4 (4), Jón Heiðar Gunnarsson 4
(5), - Sigurður Eggertsson 8 (10), Jóhann Gunnar
Einarsson 8/4 (10/4), Þorri Gunnarsson 5 (5),
Garðar Sigurjónsson 4 (4), Róbert Hostert 4 (11).
Varin skot: Kristófer Fannar Guðmundsson 11
(36/3, 31%), Þorgils Orri Jónsson 1 (10/1, 10%)
- Björn Viðar Björnsson 18 (39/3, 46%), Magnús
Erlendsson 2/1 (11/3, 18%),
VALUR - HAUKAR 20-23
Atkvæðamestir - Mörk (skot): Sveinn Aron
Sveinsson 8/4 (9/4), Finnur Ingi Stefánsson 4
(8), Þorgrímur Smári Ólafsson 3 (9) - Árni Steinn
Steinþórsson 6/1 (13/2), Gylfi Gylfason 5 (9), Gísli
Kristjánsson 4 (5), Adam Haukur Baumruk 4 (6).
Varin skot: Lárus Helgi Ólafsson 12/3 (27/4,
44%), Hlynur Morthens 5 (13, 38%) - Aron
Rafn Eðvarðsson 9 (25/3, 36%), Einar Ólafur
Vilmundarson 3 (7/1, 43%),
DOMINOS-DEILD KARLA
FJÖLNIR - GRINDAVÍK 85-122
Atkvæðamestir: Sylverster Spicer 23 (13 frák.),
Björgvin Ríkharðsson 13, Tómas Heiðar Tómasson
12, Paul Williams 12 - Samuel Zeglinski 38 (11
stoðs.), Aaron Broussard 18, Þorleifur Ólafsson
15, Jóhann Árni Ólafsson 11, Sigurður Gunnar
Þorsteinsson 11.
KFÍ - STJARNAN 101-107 (88-88)
Atkvæðamestir: Damier Erik Pitts 36, Tyrone
Bradshaw 21, Kristján Pétur Andrésson 21,
Hlynur Hreinsson 10 - Justin Shouse 28, Marvin
Valdimarsson 19, Brian Mills 18, Jovan Zdravevski
13, Fannar Freyr Helgas. 13, Dagur Kár Jónss. 10.
TINDASTÓLL - ÍR 96-90
Atkvæðamestir: George Valentine 26/14 fráköst,
Þröstur Leó Jóhannsson 22/8 stoðs., Helgi Rafn
Viggósson 10, Sigtryggur Arnar Björnsson 10 - Eric
Palm 26, Hreggviður Magnússon 19, Isaac Deshon
Miles 16, Nemanja Sovic 11/11 fráköst.
KEFLAVÍK - NJARÐVÍK 91-92 (79-79)
SNÆFELL - ÞÓR 92-97
Atkvæðamestir: Asim McQueen 22/15 fráköst,
Jay Threatt 20/8 stoðs., Jón Ólafur Jónsson 19 -
Benjamin Smith 23/7 stoðs., David Jackson 22,
Grétar Ingi Erlendsson 14, Guðmundur Jónsson
12, Darri Hilmarsson 12.
SKALLAGRÍMUR - KR 90-102
Atkvæðamestir: Haminn Quaintance 24/10
fráköst/6 stolnir, Carlos Medlock 22/6 stoðs./6
stolnir, Páll Axel Vilbergsson 17 - Brynjar Þór
Björnsson 35/8 stoðs., Martin Hermannsson 20,
Helgi Már Magnússon 15, Finnur Atli Magnusson
15, Kristófer Acox 11/11 fráköst.
HANDBOLTI Óskar Bjarni Óskars-
son færði sig um set hjá danska
félaginu Viborg í gær. Hann var
þá ráðinn þjálfari kvennaliðs
félagsins og mun í kjölfarið hætta
með karlaliðið sem hann hefur
þjálfað í vetur.
Ekki eru til peningar hjá
félaginu til þess að reka karlalið-
ið áfram en forráðamenn félagsins
eru ánægðir með Óskar Bjarna og
vildu að hann tæki við kvennalið-
inu. Óskar var með samning við
félagið út þessa leiktíð með mögu-
leika á eins árs framlengingu. Frá
því hefur verið gengið að hann
verði með liðið út leiktíðina 2014.
„Það er leikur 30. desember hjá
stelpunum en þær eru í fríi þar
sem það er EM kvenna í gangi. Þá
get ég fylgt strákunum úr hlaði á
meðan,“ sagði Óskar Bjarni.
Hann hefur engu reynslu af því
að þjálfa konur en aðstoðaði þó
stundum Stefán Arnarson, þjálf-
ara kvennaliðs Vals.
„Þetta er gríðarlega spennandi
verkefni. Þarna eru 8-9 landsliðs-
menn og mikil pressa eins og sést
er þjálfarinn var rekinn með liðið
á toppnum. Þetta er allt annað
umhverfi að öllu leyti og vart hægt
að byrja á stærri stað sem kvenna-
þjálfari. Það var lítil pressa á mér
sem þjálfari karlaliðsins en nú fer
ég alveg á hinn endann á spýtunni.
Ég kann því ágætlega.“
Óskar segir að ráðningin veki
nokkra athygli enda hafi hann
ekki þjálfað kvennalið áður og
sé þess utan ekki þekktur í Dan-
mörku.
„Menn spyrja bara hver þessi
maður sé. Mér finnst gagnrýnin
samt góð. Þetta verður ekki auð-
velt enda langur vegur frá því að
ég sé með allt með mér hérna. Ég
hef ekkert sýnt í Danmörku og það
er eðlilegt að menn séu með spurn-
ingar. Ég hef því margt að sanna
hérna og það verður gaman,“ sagði
Óskar ákveðinn og bætti við.
„Kvenna- og karlahandbolti er
ekki eins og ég þarf að venjast
því. Þetta er samt það sama að því
leyti að ég er að vinna með alvöru
leikmönnum. Þessar stelpur eru
sigurvegarar. Ég vil taka sumt úr
karlahandboltanum inn í kvenna-
handboltann. Það er ein ástæðan
fyrir því að ég fæ þetta starf held
ég.“
Þjálfarinn viðurkennir að það sé
léttir að fá sín mál á hreint eftir
nokkra óvissudaga.
„Þetta er búið að vera erfitt
fyrir alla hérna. Það er því gott að
allt sé orðið klárt og verður spenn-
andi að byrja nýtt verkefni.“ - hbg
Menn spyrja hver þessi maður sé eiginlega
Óskar Bjarni Óskarsson er orðinn kvennaþjálfari í fyrsta sinn á ferlinum og byrjar á stórliði í Evrópu. Ráðinn til loka tímabilsins 2014.
SPENNTUR Óskar reynir fyrir sér á
nýjum vígstöðvum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Danskir meistarar
13 sinnum (5 silfur)
Danskir bikarmeistarar
9 sinnum
Meistaradeild Evrópu
3 sinnum (2 silfur)
EHF-keppnin
3 sinnum
Titlar síðustu fimm tímabil
2011-12 Bikar
2010-11 Bikar
2009-10 Meistari,
Meistaradeildin
2008-09 Meistari,
Meistaradeildin, bikar
2007-08 Meistari, bikar
2006-07 Meistari, bikar
2005-06 Meistari,
Meistaradeildin
➜ Titlaskrá kvennaliðs
Viborg HK
SPORT
ÞARF AÐ FÁ AÐ SPILA
Bakvörðurinn Hjörtur Logi Valgarðsson er á förum frá sænska félaginu IFK Göteborg í janúar. Félagið ætlar
sér að kaupa nýjan mann í hans stað og samkomulag er á milli hans og félagsins að hann fái að fara annað.
NÝIR TÍMAR Á NÝJU ÁRI Hjörtur Logi mun hafa vistaskipti í janúar en ekki liggur
fyrir til hvaða félags hann fer. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM