Fréttablaðið - 14.12.2012, Page 88
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| SPORT | 68
Birgir Leifur Hafþórsson stóð í
ströngu í haust þegar hann keppti
á úrtökumótum fyrir evrópsku
og bandarísku mótaröðina. Birg-
ir náði ekki að komast inn á loka-
úrtökumótin en þrátt fyrir mót-
lætið ætlar atvinnukylfingurinn úr
GKG að leggja allt í sölurnar fyrir
árið 2013.
„Ætli „sjómannslífið“ verði ekki
niðurstaðan ef planið gengur upp.
Ég verð með búsetu hér á Íslandi
á milli keppnis- og æfingatarna.
Markmiðið er að spila og keppa
meira í vetur en ég hef gert áður.
Það eru mótaraðir í Bandaríkjun
um sem eru valkostur og einnigúr-
tökumót fyrir kanadísku móta-
röðina sem fram fer í apríl,“ sagði
Birgir, sem er 36 ára gamall og er
eini íslenski karlkylfingurinn sem
hefur náð að tryggja sér keppnis-
rétt á Evrópumótaröðinni.
Birgir telur meiri líkur á því að
hann reyni fyrir sér í Bandaríkjun-
um en Evrópu.
„PGA-mótaröðin er að breyta
kerfinu hjá sér varðandi hvernig
kylfingar fá keppnisrétt á stærstu
mótaröð heims. Þeir hafa keypt
litlar mótaraðir sem eiga að vera
stökkpallur inn á stóra sviðið. Þar
geta kylfingar sýnt hvað í þeim býr
yfir lengri tíma. Markmiðið er að
fara í golftarnir í 2-3 vikur í einu
og koma til Íslands þess á milli,“
sagði Birgir, sem ætlar sér að koma
sterkur til leiks næsta sumar þegar
keppni í Evrópu hefst að nýju.
„Ég verð með svipaða stöðu hvað
varðar áskorendamótaröðina, og
þar fæ ég kannski 5-8 mót, en sú
törn byrjar ekki fyrr en í maí.
Það væri stórkostlegt ef ég gæti
tekið gott tímabil í vetur við bestu
aðstæður.“
Besti árangur Birgis sl. sumar
var 5. sæti á móti sem fram fór í
Danmörku í ágúst og í maí í fyrra
var Birgir nálægt sigri á móti sem
fram fór á Ítalíu, en þar endaði hann
í þriðja sæti. „Ég finn það að ég er
á réttri leið. Miðað við hve fá tæki-
færi ég hef fengið finnst mér þetta
hafa gengið ágætlega og allt er á
réttri leið. Getan er til staðar en ég
þarf að komast á fleiri mót til þess
að ná að bæta mig enn frekar og
nálgast þá allra bestu.“
„Ég hef í raun ekki átt heilt tíma-
bil frá árinu 2007. Ég hef verið hér
á Íslandi fyrir vetrartímann og
það eru ekki margir atvinnukylf-
ingar sem eru að slá í net og vippa
í inniaðstöðu. Í raun trúa kollegar
mínir því ekki að við séum að reyna
að gera þetta með þessum hætti á
Íslandi. Ég vona svo sannarlega að
þessi áætlun hjá mér gangi upp – og
ég væri aldrei sáttur ef ég myndi
ekki nýta tækifærið á meðan ég hef
enn brennandi metnað til að kom-
ast alla leið á stóru mótaraðirnar,“
sagði Birgir.
Leggur ekki
árar í bát
Sjómannslíf mun einkenna líf Birgis Leifs Hafþórssonar
sem stefnir á að leika í Bandaríkjunum í vetur.
„Það virðist vera eitthvað í fasi mínu og leikstíl sem fólki finnst ekki
samræmast þeim hugmyndum sem það gerir sér um elskhugann. Ég
teikna persónurnar dálítið skýrum dráttum og kannski er það þess vegna
sem hlutverk illmennanna verða frekar á vegi manns,“ segir Björn Thors.
Tímarnir breytast og molarnir með, en
ást Íslendinga á Mackintosh deyr
aldrei. Hvort sem þú spyrð prest,
femínista, þingmann eða kennara; þá
eiga allir sinn uppáhaldsmola.
Toffí, tvíreykt og
tannlausir afar
Ekki nógu mikill elskhugi
Örn Úlfar Sævarsson líkir
slaufumanninum við Indiana Jones
en Jakob Hrafnsson segir
bindismanninn töffara inn að beini.
Bindi eða slaufa?
Gítarleikarinn Friðrik Karlsson er
fluttur heim til Íslands eftir sextán
ára dvöl í London. Hann hefur komið
sér fyrir í Garðabænum með
fjölskyldu sinni.
Fluttur í Garðabæ eftir
sextán ár í London Ómar Smári Ármannsson, lögreglu-
maður, fornleifafræðingur og
áhugamaður um náttúru og menjar á
Reykjanesi, segir mannvistarleifar við
Grindavík mögulega eldri en talið er.
Gengu fram á óþekktar minjar
Helgarblað
Fréttablaðsins
Meðal efnis núna um helgina
Helgarblað Fréttablaðsins, ómissandi hluti af góðri helgi
20
12
20
11
20
09
20
08
20
07
20
06
20
05
20
04
20
03
20
02
20
01
20
00
19
99
19
98
15
10
5
0
3
666
15
3
9
17
2
8
5
21111
33
8
18
17
■ Fjöldi móta í Evrópumótaröðinni
■ Fjöldi móta í Áskorendamótaröðinni
000 Staða á peningalista í Evrópumótaröðinni
000 Staða á peningalista í Áskorendamótaröðinni
-
128
234
-
284
-
184
-
330
88
-
85
-
-
-
-
-
141
255
102
-
144
-
-
-
-
298
104
Skýringar:
Fjöldi móta Birgis Leifs
Staða Birgis Lefis á peningalistum