Fréttablaðið - 14.12.2012, Qupperneq 90
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| SPORT | 70
Mamma og pabbi
voru á leiknum og þau
sögðust aldrei nokkurn
tímann hafa séð kvenna-
körfubolta á svo háu
stigi.
Helena Sverrisdóttir, leikmaður
Euroleague-liðsins Good Angels Kosice
KÖRFUBOLTI Helena Sverrisdóttir
spilaði tæpar átján mínútur í tíu
stiga sigri Good Angels Kosice á
rússneska liðinu Nadezhda Oren-
burg í Evrópudeildinni á mið-
vikudagskvöld. Tækifæri Helenu
framan af tímabili voru af skorn-
um skammti en nú virðist vera að
birta til.
„Þetta er loksins að gerast
hægt og rólega. Þjálfarinn er að
treysta mér betur og ég fæ fleiri
mínútur sem er ágætt,“ sagði Hel-
ena og var sátt með framlag sitt
í leiknum.
„Mér fannst ég standa mig
mjög vel. Ég tók reyndar bara
eitt skot en spilaði fína vörn og
tók sjö fráköst sem er jákvætt.
Að fá átján mínútur í svona
hörkuleik er mjög gott. Mamma
og pabbi voru á leiknum og þau
sögðust aldrei nokkurn tímann
hafa séð kvennakörfubolta á svo
háu stigi,“ sagði Helena. Hafnar-
fjarðarmærin 24 ára hefur notið
félagsskapar foreldranna síðustu
tíu daga.
„Þau fóru reyndar heim í morg-
un en það er búið að vera mjög
ljúft að hafa þau,“ segir Helena.
Ósigrandi á heimavelli
Helena og félagar standa vel að
vígi í riðli sínum í Evrópudeild-
inni eftir sjö leiki.
„Það eru fjögur lið sem eru
mjög jöfn. Í þessi keppni er mjög
erfitt að vinna á útivelli. Við
höfum enn ekki tapað heima sem
er mjög mikilvægt,“ segir Helena
og kann greinilega vel við sig á
heimavelli.
„Í gær var frábær stemning.
Húsið var nánast fullt og fólk
syngjandi og klappandi allan leik-
inn. Ég held að allur stuðningur-
inn sé stóra ástæðan fyrir því
að við höfum ekki tapað þarna í
vetur,“ segir Helena. „Jafnvel
þótt við byrjum illa eða eigum
slæma kafla þá líður okkur vel
vitandi að þetta er okkar staður.
Við komum alltaf til baka og það
er mjög gaman að spila hérna,“
segir Helena.
Aldrei áður þurft að sitja á
bekknum
Helena viðurkennir að lífið í
Kosice hafi verið erfitt framan
af tímabili.
„Algjörlega. Mér leið ekkert
vel. Á þessu stigi er körfubolti
það eina sem maður gerir og
það eina sem maður hugsar um.
Þegar það gengur illa og þjálfar-
inn trúir ekki á þig eða annað er
þetta mjög erfitt. Þetta er í fyrsta
skipti á ferlinum sem ég hef þurft
að sitja á bekknum í 35 mínútur
í leik svo þetta var mjög erfitt,“
segir Helena sem naut góðs af
stuðningi foreldranna og vin-
kvenna í liðinu.
„Mamma og pabbi töluðu við
mig á hverjum degi og voru dug-
leg að hvetja mig áfram. Sömu-
leiðis vinkonur mínar úr liðinu
því þeim fannst líkt og mér að ég
ætti að spila meira. Ég hélt áfram
að gera mitt besta á æfingum og
þegar tækifærið kom var ég til-
búin,“ segir Helena en brotthvarf
bandarísks leikmanns í byrjun
nóvember opnaði dyr fyrir Helenu.
„Það var mikið drama í kring-
um hana og hún var látin fara. Þá
loksins fékk ég stærra hlutverk.
Mér tókst að standa mig og síðan
þá hefur þetta verið á uppleið.
Þjálfarinn var ekki að nota mig
mikið en svo fékk ég tækifærið
og sýndi honum að ég ætti að fá
að spila meira.“
Æft skotin aukalega
Skotnýting Helenu í Evrópudeild-
inni fyrir utan þriggja stiga lín-
una hefur vakið athygli. Eina
skot Helenu í leiknum á miðviku-
dagskvöldið rataði ofan í en hún
er með 50 prósent nýtingu sem
verður að teljast afar gott. Hel-
ena segir að það hafi tekið tíma
að venjast því hve miklu utar
þriggja stiga línan sé í Evrópu-
boltanum en í háskólaboltanum í
Bandaríkjunum.
„Það var mikil breyting og ég
vissi að ég þyrfti að bæta skotin.
Ég var ekki að skjóta vel á undir-
búningstímabilinu og fyrstu leikj-
unum í deildinni svo ég fór að
taka þrjár til fjórar skotæfingar
aukalega í viku,“ segir Helena og
æfingarnar hafa skilað sér.
„Ég hef fundið það að ég er
að skjóta miklu betur í leikjum
þegar ég er að skjóta aukalega
svo ég mun halda því áfram.“
Við erum öll frá sama landinu
Helena fór mikinn með íslenska
landsliðinu í körfubolta á Norður-
landamótinu og var valin í úrvals-
lið keppninnar. Liðið lenti í þriðja
sæti en óséð er hvert næsta verk-
efni liðsins verður. Karlalandsliðið
í körfubolta leikur í Evrópukeppni
á næsta ári líkt og í ár en kvenna-
lið verður ekki sent til keppni.
„Að sjálfsögðu er þetta leiðin-
legt,“ segir Helena en tekur fram
að hún sé mjög ánægð fyrir hönd
karlaliðsins.
„Það er leiðinlegt að sjá fót-
boltalandsliðið og handbolta-
landsliðið spila leiki. Við vorum
vissulega með á Norðurlanda-
mótinu en þar á undan spiluðum
við ekki landsleik í tvö ár. Manni
finnst þetta frekar ósanngjarnt
enda erum við öll frá sama land-
inu. Við erum í einni af stóru
íþróttagreinunum þremur. Af
hverju getum við ekki líka tekið
þátt?“ segir Helena. Hún ber þá
von í brjósti að körfuknattleiks-
sambandinu takist að finna fjár-
magn til þess að senda landslið-
ið til þátttöku á Evrópumótinu að
ári. kolbeinntumi@365.is
Aldrei áður þurft að sitja á bekknum
Helena Sverrisdóttir er farin að spila stærra hlutverk hjá liði sínu Good Angels Kosice í Slóvakíu eft ir að hafa fengið fá tækifæri framan
af tímabili. Helena er ein af bestu þriggja stiga skyttunum í Europleague eft ir fyrstu sjö umferðirnar og liðið er í mjög góðri stöðu.
Á ÖÐRU TÍMABILI Í SLÓVAKÍU Helena Sverrisdóttir varð tvöfaldur meistari með Good Angels Kosice í fyrra en hún hefur leikið
fyrstu tvö ár sín í atvinnumennsku með slóvakíska liðinu. MYND/GOOD ANGELS KOSICE
Bestu þriggja stiga skyttur í Euroleague
1. Macchi, Famila Schio (7 af 13) 53,8 prósent
2. Aguilar, Sparta&K M.R. Vidnoje (11/22) 50,0 prósent
3. Helena Sverrisdóttir Good Angels (10/20) 50,0 prósent
4. Bjelica, Municipal Targoviste (5/10) 50,0 prósent
5. Augustus, Sparta&K M.R. Vidnoje (5/10) 50,0 prósent
6. Sharp, USO Mondeville (9/19 ) 47,4 prósent
7. Masciadri, Famila Schio (8/17) 47,1 prósent
8. Quigley, Good Angels Kosice (16/35) 45,7 prósent
9. Malashenko, Arras (9/20) 45,0 prósent
10. Marginean, Municipal Targoviste (12/27) 44,4 prósent
HANDBOLTI Alexander Petersson
hefur tilkynnt Handboltasam-
bandi Íslands að hann verði ekki
með landsliðinu á HM í hand-
bolta á Spáni í næsta mánuði því
þessi lykilmaður landsins segist
þurfa á hvíld að halda eftir þrá-
láta baráttu við axlarmeiðsli.
Þetta kom fyrst fram í kvöld-
fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi.
Alexander Petersson er leik-
maður Rhein Neckar Löwen og
spilar þar undir stjórn Guðmund-
ar Guðmundssonar, fyrrverandi
landsliðsþjálfara, sem þurfti oft
að berjast fyrir því að Alexander
spilaði fyrir íslenska landsliðið á
undanförnum árum. Alexander
hefur verið að glíma við axlar-
meiðsli síðustu ár en hefur samt
getað verið með í öllum helstu
verkefnum íslenska landsliðsins
á þeim tíma.
Alexander tilkynnti HSÍ fyrir
nokkrum dögum að hann þyrfti
á hvíld að halda vegna þessara
þrálátu axlarmeiðsla. Alexand-
er vill ekki fara í aðgerð heldur
hvíla öxlina en hann hefur ekk-
ert getað æft upp á síðkastið eftir
að hafa leikið stórkostlega með
Löwen-liðinu á þessu tímabili.
„Alex er slæmur í öxlinni og
getur ekkert skotið á markið.
Hann spilaði eitthvað í síðasta
leik en skaut ekkert á markið. Við
verðum bara að bíða og sjá hvað
setur. Þetta er mjög erfið staða,
bæði fyrir hann og landsliðið.
Hann var frá í tvo mánuði síðast
þegar þessi staða kom upp en þá
mætti hann í landsliðsverkefnið
og saup seyðið af því,“ sagði Aron
Kristjánsson landsliðsþjálfari við
Fréttablaðið í gær.
Alexander hefur verið í stóru
hlutverki hjá íslenska landsliðinu
síðustu ár bæði í sókn og vörn.
Aðeins Guðjón Valur Sigurðs-
son hefur skorað fleiri mörk á
undanförnum fimm stórmótum
íslenska landsliðsins og mikil-
vægi Alexanders í vörninni verð-
ur seint metið til fulls enda þar
oft margra manna maki.
Fari svo að Alexander verði
ekki með á Spáni þá er hann
þriðji byrjunarliðsmaður lands-
liðsins sem heltist úr lestinni
eftir Ólympíuleikana í London.
Ólafur Stefánsson lagði lands-
liðsskóna á hilluna og Arnór Atl-
ason varð fyrir því óláni að slíta
hásin. Tveir af þessum mönnum
eru örvhentir og þá er Rúnar
Kárason enn meiddur. Íslenska
landsliðið vantar því nauðsynlega
hjálp á hægri vængnum þar sem
íslenska liðið hefur verið með tvo
heimsklassaleikmenn undanfarin
ár. „Ég hef einhverjar hugmynd-
ir um hverjir gætu leyst hann
af ef það fer svo að hann spili
ekki. Það er jafnvel til í dæminu
að spila með rétthentan mann
hægra megin,“ sagði Aron. - óój, bg
Alexander Petersson ekki með á HM á Spáni?
Íslenska landsliðið í handbolta er væntanlega að missa þriðja byrjunarliðsmanninn sinn fyrir heimsmeistaramótið í næsta mánuði.
4,7 MÖRK Í LEIK Alexander Petersson skoraði 28 mörk í 6 leikjum á Ólympíuleiku-
num í London. NORDICPHOTOS/GETTY
Flest mörk á
síðustu stórmótum
1. GUÐJÓN VALUR SIGURÐSSON 214
2. ALEXANDER PETERSSON 154
3. ARNÓR ATLASON 121
4. SNORRI STEINN GUÐJÓNSSON 119
5. ÓLAFUR STEFÁNSSON 107
5. RÓBERT GUNNARSSON 107
7. ARON PÁLMARSSON 103