Fréttatíminn - 20.07.2012, Blaðsíða 52
Garðapósturinn SÍMI 555 6101- 697 4020 - netfang: valdimar@gardaposturinn.is
Opið:
Má. - Fö. 12 - 18 - Lau. 12 - 16 - Sun. 13 - 16
Kauptúni 3 • 210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is
Á mynd: Tetris sett
Útisófasett fyrir
íslenskar aðstæður
Nokkar gerðir og litir. Glæsileg og vönduð vara.
Útisófasett fyrir
íslenskar ðstæður
Opið:
Má. - Fö. 12 - 18 - Lau. 12 - 16 - Sun. 13 - 16
Kauptúni 3 • 210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is
Sumarvaran er komin
Opið:
Má. - Fö. 12 - 18 - Lau. 12 - 16 - Sun. 13 - 16
Kauptúni 3 • 210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is
SÍMI 555 6101- 697 4020 - netfang: valdimar@gardaposturinn.is 19
Má. - Fö. 12 - 18 - Lau. 12 - 16 - Sun. 13 - 16
210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is
Útisófasett fyrir
íslenskar aðstæður
Nokkar gerðir og litir. Glæsileg og vönduð vara.
Útisófasett fyrir
íslenskar ðstæður
Opið:
Má. - Fö. 12 - 18 - Lau. 12 - 16 - Sun. 13 - 16
Kauptúni 3 • 210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is
Sumarvaran er komin
Opið:
Má. - Fö. 12 - 18 - Lau. 12 - 16 - Sun. 13 - 16
Kauptúni 3 • 210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is
Garðapósturinn SÍMI 555 6101- 697 4020 - netfang: valdimar@gardaposturinn.is
Opið:
Má. - Fö. 12 - 18 - Lau. 12 - 16 - Su . 13 - 16
Kauptúni 3 • 210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is
Á mynd: Tetris sett
Útisófasett fyrir
íslenskar aðst ður
Nokkar gerðir og litir. Glæsileg og vönduð vara.
Útisófasett fyrir
íslenskar ðstæður
Opið:
Má. - Fö. 12 - 18 - Lau. 12 - 16 - Sun. 13 - 16
Kauptúni 3 • 210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is
Su arvaran er ko in
Opið:
Má. - Fö. 12 - 18 - Lau. 12 - 16 - Sun. 13 - 16
Kauptúni 3 • 210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is
ÚTSALA! ÚTSALA!
Allt að 60% afsláttur af glæsilegum
viðhaldsfríum útihúsgögnum
Njóttu gæðanna og bragðsins og kældu þig niður í leiðinni með hollustu.
Joger - hollur og góður og fæst víða.. Prófuaðu bara!
Undirbúðu fæturna fyrir ferðalagið
Þú færð Heelen fóta-og húðvörurnar í apótekum
www.portfarma.is
lystisemdir Vala matt Á Veitingastöðum
Þ ótt nokkuð sé frá því að Vala Matt hvarf af skjánum hefur
hún ekki kvatt fjölmiðlun.
Hún hefur sett saman
vegvísi að öllum flottu veit-
ingastöðum landsins, Sæl-
keraleiðarvísi um Ísland,
svo ferðamenn þurfi ekki
að skrölta á milli sjoppa á
landshornaflakki sínu. Og
þar sem Vala er ekki þekkt
fyrir hálfkák setti hún
einnig upp vefinn Iceland
Local Food Guide. Þar
má sjá kynningar á ensku
um nokkra veitingastaði
hringinn í kringum landið
sem Íslendingar geta verið
stoltir af – og er Vala að
fara annan rúnt til að búa
til fleiri innslög.
„Það kom mér svo á
óvart að hvergi væru til
upplýsingar um alla þessa
litlu, sætu veitingastaði
niður við höfnina; í þorp-
unum úti á landi. Og ekki
má gleyma því að margir
veitingastaðir á höfuðborg-
arsvæðinu eru á heims-
mælikvarða,“ segir Vala
spurð hvað hafi drifið hana
áfram. „Svo finnst mér
þetta bara svo ofboðslega
skemmtilegt.“
Spurð hvaða staður komi
fyrst upp í hugann ætti
hún að nefna einn þeirra
sem hún heimsótti á ferð
sinni um landið nefnir
hún Malarkaffi á Drangs-
nesi á Ströndum. „Það var
ævintýri lífs míns. Þar er
lítil fjölskylda. Pabbinn
fer út á morgnana veiðir fiskinn og verkar
spriklandi ferskan. Svo fer hann beint á
pönnuna,“ lýsir Vala. „Maturinn þarna var
jafngóður og maturinn sem maður fær á
flottu veitingastöðunum í París, London,
New York, Ítalíu.“
Og hvað ertu svo annars að gera Vala?
„Þetta!“ hrópar hún upp og hlær. „Að
undanförnu er ég búin að vera með vél
sjálf, farið og tekið upp efni. Það finnst
mér svo spennandi – ekki aðeins að standa
fyrir framan vélina heldur að bæta við mig,
vera bak við vélina og mynda því það er
skapandi og skemmtilegt.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Ævintýri lífs míns að
borða á Drangsnesi
Staðalbúnaður
Það eru fimm hlutir sem ég verð
alltaf að hafa með mér; sími, veski,
húslyklar, bíllyklar og tyggjó. Ég
er mjög gjafmildur á tyggjó og er
stundum með tvo pakka á mér. Ef
ég væri ekki svona gjafmildur á
tyggjó væri ég ríkur maður. Þegar
ég bjó í Boston var uppáhaldsbúðin
mín American Apparel. Núna
versla ég í Samsøe Samsøe og
Nudie þegar ég ferðast um Norður-
löndin. Hér heima fer ég alltaf til
Sindra félaga míns sem er versl-
unarstjóri í Sautján. Fatastíllinn
minn er mjög „kasúal“, ég er yfir-
leitt í gallabuxum og stuttermabol.
Svona Bruce Springsteen minnar
kynslóðar.
Hugbúnaður
Ég fer stundum á Súfistann í Hafnar-
firði enda er voða kósí fílingur í
miðbænum í Hafnarfirði. Ég er hins
vegar svo lélegur að slaka á, ég
gúffa alltaf öllu í mig svo það er ekki
gaman að fara með mér á kaffihús.
Þar að auki drekk ég hvorki kaffi
né áfengi svo þetta er hálf vonlaust
dæmi. Ég keypti hjól fyrir mig og
kærustuna í vor og aðalsportið í
sumar hefur verið að hjóla úr Garða-
bænum og inn í Nauthólsvík. Ég
hafði ekki hugmynd um hvað það
eru góðir hjólastígar þarna. Ég á
voða fínt sjónvarp en horfi ekki
mikið á það. Ég reyni samt alltaf
að fylgjast með ís-
lensku efni. Það er
hins vegar alltaf
hlegið að mér
því ég fer mikið
út á vídeóleigu
og leigi DVD.
Þar þarf ég
oft að blikka
stelpurn-
ar því ég
er frekar
lélegur að
skila.
Vélbún-
aður
Ég smitaðist
af Mac-bakt-
eríunni og
ráðlegg öllum
að kaupa Mac-
vörur. Ég á 3.683
vini á Facebook
og fylgist sæmi-
lega með þar, sér-
staklega tveimur
systrum og vinum
mínum sem búa
erlendis. Ég er frekar lélegur að
svara skilaboðum þar. Ég er aftur
á móti alltaf að skoða Instagram
og Twitter. Nýjasta appið í iPhone-
inum mínum er Monsters Ate My
Condo sem er leikur sem maður
festist alveg í.
Aukabúnaður
Eins og aðrir íþrótta-
menn reynir maður
að borða hollt. Ég
borða mikinn kjúk-
ling en grjónagrautur
og slátur eru í miklu
uppáhaldi. Ég bý svo vel
að kærastan mín, mamma
og tengdamamma eru
allar meistarakokkar
en þegar ég fer á
skyndbitastaði eru
það S-in þrjú sem er
úr að velja: Serrano,
Subway eða Saffran.
Ég keyri um á Toyota
Yaris 2012 sem er
með bakkmyndavél
og öllum græjum.
Uppáhaldsstaðir
mínir í heiminum eru
Boston þar sem ég
bjó í þrjú ár, New York
þar sem eldri systir
mín býr og Montec-
horo í Portúgal þar sem
við FH-ingar förum
alltaf í æfingaferð á
vorin. Þegar ég fer á
bar panta ég mér oft
Kristal með límónu
út í svo ég lendi ekki
í að fullt fólk segi við
mig: „Hva, er kjell-
inn ekki að fá sér?“
í takt Við tímann Jón ragnar Jónsson
Blikkar stelpurnar
á vídeóleigunni
Jón Ragnar Jónsson er 26 ára Hafnfirðingur sem spilar fótbolta
með FH og ritstýrir tímaritinu Monitor á milli þess sem hann
treður upp á tónleikum sem Jón Jónsson. Í sumar uppgötvaði
hann ágæti hjólreiðastíga höfuðborgarsvæðisins.
Vala Matt er sú fyrsta sem tekur
saman og setur á einn stað upp-
lýsingar um alla flottu veitingastaði
landsins. Þær má sjá í Sælkera-
leiðarvísinum um Ísland sem verður
dreift ókeypis. Hún vinnur
nú að innslögum um
veitingastaðina fyrir
heimasíðuna sína Ice-
land Local Food Guide.
Slóðin er: icelandlo-
calfoodguide.is
44 dægurmál Helgin 20.-22. júlí 2012