Fréttatíminn - 20.07.2012, Blaðsíða 39
Ytri Rangá að
stinga af
„Minnsti laxinn sem ég hef vigtað er
2,1 kíló og sá stærsti 7,9 kíló. Já, nú er
þetta allt í kílóum mælt. Meðalþyngd er
um 2,5 kíló,” segir Matthías Þorsteinsson
veiðivörður í Ytri Rangá.
Það bar til tíðinda í vikunni að Ytri
Rangá er komin í efsta sæti á lista Lands-
sambands veiðifélaga yfir aflahæstu ár
landsins. Þegar eru komnir rúmlega sex
hundruð laxar á land. Á hæla árinnar koma
svo Norðurá, Eystri Rangá og Elliðaárnar
eru rétt á hælum Ytri Rangár. Það gerist
svo árlega að Rangárnar stingi af á þessum
lista yfir aflahæstu árnar.
„Við höfum aldrei náð þessum ám svona
snemma. Aldrei náð Norðuránni til dæmis
svo snemma sem núna, en það er kannski
af því að þetta er frekar lélegt hjá þeim.
Þeir náðu ekki hundrað yfir vikuna. Sem
telst frekar lélegt. Þetta var ágætt hjá
okkur í dag (fimmtudag). Það komu 32
fyrir hádegi. Yfirleitt veiðist minna eftir
hádegi. Dagurinn í gær endaði í 48 löxum,”
segir Matthías.
Þeir eru því kátir á bökkum Ytri Rangár
þessa dagana. Að sögn Matta veiðivarðar
eru að koma stærri göngur í ána. „Við
erum aðeins lægri en 2008 í laxatölu,
sem var metár. Þá veiddust rúmlegar 14
þúsund laxar. Ég ætla rétt að vona að það
verði í kringum átta þúsund núna eftir
vertíðina. En það þarf ekkert að vera.
Aldrei á vísan að róa.“
Þessa dagana er farið að bera meira
á útlendingum meðal veiðimanna, sem
margir hverjir eru að fá sinn Maríu-lax.
„Þetta eru nú ekkert rosalega góðir veiði-
menn, margir hverjir,“ segir veiðvörðurinn.
Hann nefnir það að menn séu á höttunum
eftir stórum hrygnum í kistur sem finna
má víða um á, til kreistingar, en fyrir slíkan
feng fá veiðimenn góð, reykt laxaflök. Í Ytri
Rangá þarf hins vegar ekki að sleppa og
menn vilja gjarnan drepa bráðina. Oftast
er það svo að tveir eru um stöng og helstu
flugur þýsk snælda, francis og sunray.
Föstudaginn 24. júlí fylgir Fréttatímanum sérblað um nám og námskeið. Þar verða kynnt
námskeið sem heast á haustmánuðum og hvað skólar og fyrirtæki bjóða upp á slíkt fyrir
fróðleiksfúsa Íslendinga. Áhugasamir hað samband við oskarfreyr@frettatiminn.is
SÉRBLAÐ UM NÁMSKEIÐ
H E LGA R BL A Ð