Fréttatíminn - 20.07.2012, Blaðsíða 28
,,Jú, jú, ef þú miðar við vinsældarlista rásar tvö þá er það
kannski rétt,” segir Guðmundur Geir Jónsson um þá
fullyrðingu að þeir séu vinsælasta hljómsveitin á Íslandi í
dag en hann og hinir fimm félagar hans í Kiriyama Family
munu troða upp á Kaffi, kökum og rokki & róli á Edrúhá-
tíðinni að Laugalandi um Verslunarmannahelgina.
Kiriyama Family gáfu út samnefnda plötu fyrr á árinu
og hún hefur heldur betur slegið í gegn. Lagið Weekend
hefur verið á toppi vinsældarlista rásar 2 síðustu vikur en
sveitin ku vera það besta, tónlistarlega séð, sem hefur
komið frá selfossi. Gummi hlær reyndar að þeirri fullyrð-
ingu og segist vera sá eini frá selfossi. Hinir eru nær-
sveitamenn.
Battle royal
En hvaðan kemur þetta nafn? Eða er það eitthvað sem er
alltaf verið að spyrja ykkur að í viðtölum?
,,reyndar ekki. Þetta úr japönsku skáldsögunni Battle
royal.”
Já, eruð þið kannski fyrsta World of Warcraft bandið?
,,nei, við völdum snemma að gera eitthvað viturlegra
við tímann okkar og höfum flestir verið spila á hljóðfæri
síðan við vorum smápollar. sumir okkar hafa verið
hljómsveitum síðan við vorum tólf ára,” svarar Gummi
skilmerkilega en strákarnir þekkja hvern annan úr
Fjölbrautarskóla suðurlands. Þeir byrjuðu samt ekki að
spila saman sem Kiriyama Family fyrr en eftir útskrift – í
bílskúr á selfossi fyrir tveimur árum.
mússík sem þeir fíla
Og verðiði þéttir um verslunarmannahelgina?
,,Við erum búnir að spila um hverja helgi í allt sumar og
þéttumst með hverri helginni,” útskýrir Gummi og segist
aðspurður ánægður með að fólk sé að fíla tónlistina þeirra.
Hann þakkar fyrir það en upplegg hljómsveitarinnar er að
búa til mússík sem þeir sjálfir myndu hlusta á.
kaffi, kökur
og rokk & ról
Í vetur sló fyrirbærið kaffi, kökur og rokk & ról heldur betur í gegn
í Von, Efstaleiti 7, en um er að ræða magnaða tónleikaröð í þessum
góða sal sÁÁ. Þar hafa allar helstu og bestu hljómsveitir Íslands
spilað við mikinn fögnuð. um Verslunarmannahelgina verður
sannkölluð uppskeruhátíð fyrir þetta fyrirbæri að Laugalandi í
Holtum en í vetur heldur þessi tónleikaröð áfram í Von.
Hvað: Kaffi, kökur og rokk & ról Hvenær: Föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld Klukkan: Frá kl. 20 hvert kvöld
Hvað: Tónleikar Hvenær: Laugardagskvöld Klukkan: 23.00
Natali Gunnarsdóttir verður ein
af plötusnúðum hátíðarinnar:
sundlaugapartí
á miðnætti
Kiriyama Family spila á laugardagskvöldinu:
vinsælasta bandið á íslandi í dag
Krummi Björgvinsson:
Legend í Laugalandi
natali gunnarsdóttir
„Þema tónlistarinnar er gleði,“
segir Natali.
Hvað: Sundlaugapartí
Hvenær: Laugardagskvöld
Klukkan: 00.00
natali Gunnarsdóttir verður ein af
plötusnúðum helgarinnar. Hún ætlar
meðal annars að sjá um að spila í
sundlaugapartíi sem verður á miðnætti
á laugardagskvöldinu og svo spilar hún
ásamt terror Disco á dansiböllum sem
húrrað verður upp í íþróttarsalnum að
Laugalandi öll kvöld helgarinnar.
„Við eigum tvö að bera hitann og
þungan af böllunum og sundlaugapartí-
inu og ég get sagt fyrir mitt leyti að
þetta verður ekkert annað en dansiball
með skemmtilegri danstónlist og diskói.
Þarna verða líka hljómsveitir en við
ætlum að sjá til þess að allir aldurshóp-
ar geti skemmt sér og koma líka til
móts við þá sem eru ekki endilega fyrir
live bönd. Við ætlum að brúa það bil og
spila danstónlist fyrir gesti og gang-
andi. Þema tónlistarinnar er gleði,“
segir natali.
Ylja stefnir að breiðskífu í haust:
kassagítar og raddir
Hvað: Tónleikar Hvenær: Laugardagskvöld Klukkan: 22.00Hljómsveitin Ylja varð til árið 2007
þegar leiðir Bjarteyjar sveinsdóttur
og Guðnýjar Gígju skjaldardóttur
lágu saman. Með sameiginlegan
áhuga á kassagítarleik og rödduðum
söng að vopni lögðu þær upp í
tónlistarlegt ævintýri sem hefur
sífellt tekið á sig nýjar myndir.
Fyrstu árin voru þær stöllur iðnar við
að koma fram víðs vegar um landið
og bættu í reynslubankann með
hverjum mánuðinum. Ylja kom meðal
annars fram á Bræðslunni á síðasta
ári og hitaði einnig upp fyrir írska
tónlistarmanninn Glen Hansard.
Bjartey og Guðný Gígja fengu
síðan liðsauka þegar slide-gítarleikar-
inn smári tarfur Jósepsson bættist í
hópinn á síðasta ári. Ylja vinnur nú
að sinni fyrstu breiðskífu en tvö lög
af henni, Konan með sjalið og Á
rauðum sandi, hafa ómað á öldum
ljósvakans síðustu mánuði. Frum-
burður hljómsveitarinnar mun koma
út í haust en áhugasamir geta farið á
Youtube og hlustað á lög þeirra
(meðal annars sköpun mannsins en
það er ljóð eftir Örn arnarson).
ylja
Spila kl. 22 á föstudagskvöldinu.
Krumma Björgvinsson tónlistarmann þarf vart að kynna fyrir
íslenskum tónlistarunnendum. Í rúman áratug hefur Krummi
verið í framvarðarsveit íslenskra rokkara og meðlimur
frábærra banda á borð við Mínus og Esju. nýjasta ævintýrið
hans er Legend og mun það fyrirbæri trylla lýðinn á föstudags-
kvöldinu.
krummi
Tekur yfir strax á föstudagskvöldinu.
Hvað: Tónleikar Hvenær: Föstudagskvöld Klukkan: 23.00
Þétt hljómsveit
Kiriyama Family skipa þeir Guðmundur Geir Jónsson, Karl
Magnús Bjarnarson, Víðir Björnsson, Jóhann Vignir Vilbergsson
og Bassi Ólafsson.
4 Edrú VErsLunarMannaHELGina 3.- 6. ÁGúst