Fréttatíminn - 20.07.2012, Blaðsíða 31
Á sunnudagskvöldinu ætlar séra anna
sigríður Pálsdóttir að húrra upp einni
æðruleysismessu á Edrúhátíðinni að
Laugalandi í Holtum ásamt orgelleikaranum
Herði Bragasyni en þau tvö, ásamt séra
Karli Matthíassyni, bera hitann og þungann
af æðruleysismessunum í Dómkirkjunni
þriðja sunnudag í mánuði á veturna.
,,Þessar kvöldmessur okkar, æðruleysis-
messur, hafa verið vel sóttar,” segir anna
sigríður en um er að ræða sænska hugmynd
frá presti sem hafði starfað mikið með
óvirkum alkóhólistum og komist að því að
þeir ættu oft í erfiðleikum með kirkjuna.
,,Við Jóna Lísa Þorsteins á akureyri
byrjuðum á þessu, reyndar hélt hún fyrstu messuna og svo
við aðra hér í reykjavík viku síðar.” anna
lofar léttri og skemmtilegri messu þar sem
mikið er laggt upp úr söng og tónlist. ,,Þetta
eru mjög einfaldar messur og það er mikið
sungið. Það stígur óvirkur alkóhólisti í pontu
og segir frá bata sínum og svo er bæði
hugleiðsla og bæn.”
Þau sem koma að æðruleysismessunum
eru tólf sporafólk og sjálf starfaði anna lengi
sem ráðgjafi hjá sÁÁ og er enn virk í að
halda meðvirknisnámskeið og bera út
fagnaðarerindi prógramsins.
Hvað: Æðruleysismessa
Hvenær: Sunnudagskvöld Klukkan: 20.00
Sigurborg verður með
5 rytma dans um helgina:
Dansa sig
í gegnum
tilfinningarnar
Leikarinn Gunnar Eyjólfsson
kynnir Qi gong:
Qi gong er
lífskraftur
Það er létt yfir æðruleysismessunum:
söngur, hugleiðsla og bæn
Verði fyrir stólanudd verður stillt í hóf:
stólanudd um
verslunarmannahelgi
Hvað: 5 rytma dans
Hvenær: Laugardagur
Klukkan: 17-19
Hvað: Brekkusöngur
Hvenær: Sunnudagskvöld
Klukkan: 21.00
Hvað: Qi gong
Hvenær: Sunnudagur
Klukkan: 10.30
Hvað: Kirtan
Hvenær: Laugardag og sunnudag
Klukkan: 15 (lau) og 13 (sun)
sigurborg Kr. Hannesdóttir verður með
5 rytma dans á Laugalandi á laugardeg-
inum en hún kennir fólki að nota
einfaldar aðferðir til að finna rytmann
innra með sér: „allir geta dansað þetta
og fengið ofsalega
mikla og góða
útrás,“ útskýrir
sigurborg en í
fyrra sló
dansinn öll
aðsóknarmet
og ungir sem
aldnir tóku
þátt og
skemmtu sér
konunglega.
rytmarnir fimm
heita flæði, staccato,
kaos, lyrik og kyrrð. sigurborg segir að
dansinn fari mjúkt af stað, aukist svo að
krafti, fari út í eld, síðan í kaos þar sem
dansararnir losi um. Í lyrikinni lyftist
dansarinn og líður um eins og á vængj-
um og í kyrrðinni finnst honum eins og
hann sé að koma heim.
„Þetta er eins og alda. Við byrjum í
mýktinni og endum í kyrrðinni og
útrásin kemur þar á milli. Þó að dansinn
henti öllum aldurshópum þá förum við
inn í mismikla dýpt eftir hvað hópunum
hentar,“ segir hún og útskýrir að líklega
verði aldurshópurinn breiður á Lauga-
landi eins og í fyrra og því megi búast
við að dansararnir fái góða útrás í
kraftinum, þetta verði skemmtilegt og
leikandi.
„Þegar farið er inn í meiri dýpt er
magnað að finna til dæmis tengingu við
tólf sporin. Þannig getur staccato verið
ákvörðunin sem er í öðru sporinu og það
að gefa alveg eftir og treysta alveg er
svipað því sem við gerum í kaos-hlutan-
um í dansinum. síðan er léttleikinn sem
kemur eftir uppgjörið eins og lyrikin.
Kyrrðin er svo tengingin við æðri mátt.
Þannig að 5 rytmarnir geta hæglega
verið tólf sporin. Þetta er í rauninni eins
og ástundun sporanna,“ segir hún.
Dansað verður við allskonar tónlist,
dúndrandi afríska tónlist, klassík og
nýjustu teknó-tónlistina. „tíminn líður
hratt. Fólk verður í sínum dansi,
stundum með félaga, stundum eitt,
stundum í hópi. Þegar við erum komin í
gegnum alla fimm rytmana þá er maður
búinn að dansa sig í gegnum tilfinning-
arnar og er endurnærður. Þetta er
næring bæði fyrir líkama og sál.“
Gunnar Eyjólfsson leikari hefur stundað
Qi gong svo árum skiptir og í fyrra nutu
margir leiðsagnar hans á Edrúhátið
sÁÁ. Í ár kemur Gunnar aftur og leiðir
okkur í sannleikan um þessa árþúsunda-
gömlu kínversku lífsorkuæfingar. Hann
hefur lýst Qi gong á þá leið að þetta sé
aðferð mannsins til öflunar, varðveislu
og dreifingar orku um líkama sinn. Á
íslensku er Qi gong best lýst með orðinu
ræktun. Á veturna hefur aflinn – félag
iðgenda Qi gong á Íslandi – haft aðstöðu
í Von, Efstaleiti 7, húsnæði sÁÁ.
Örninn Össi leiðir Kirtan:
kærleikurinn
er allt sem er
stólanudd
Þvílíkur unaður verður á Laugalandi
um Verslunarmannahelgina.
Hvað: Nudd
Hvenær: Laugardagur
Klukkan: Um miðjan dag
gunnar eyjólfsson
samkvæmt Gunnari er Qi gong aðferð
mannsins til öflunar, varðveislu og
dreifingar orku um líkama sinn.
,,Við verðum þarna tvö,” segir
unnar Laugi smárason en hann og
Olga Fenger ætla að bjóða gestum á
Edrúhátíðinni í Laugalandi upp á
stólanudd um verslunarmannahelg-
ina. ,,Þetta verða 5-10 mínútur og
verðinu verður stillt í hóf,” segir
hann en þau Olga eru færir nuddar-
ar sem vinna bæði á nordica.
Edrú VErsLunarMannaHELGina 3.- 6. ÁGúst 7
Sérstakt hugleiðsluherbergi
Á Laugalandi í Holtum er öll aðstaða til
mikillar fyrirmyndar. Þarna er á veturna
stór skóli og hefur Edrúhátíðin gott
aðgengi að þessum flottum mannvirkj-
um. Þetta munum við meðal annars
nýta til að vera með sérstakt
hugleiðsluherbergi sem verður
öllum opið alla helgina.
,,Kirtan er möntrudans,” segir
Örninn Össi sem mun leiða
okkur í allan sannleikan um
Kirtan um helgina. Þá verður
dansað og kyrjað möntru sem
myndi útleggjast á íslensku
svo: Kærleikurinn er allt sem
þarf.
Þetta er rosa gaman og
mikil innlifun. Þegar við erum
mörg komin saman myndast
ótrúlegur kraftur og eftir að
dansinum líkur setjumst við
niður og hugleiðum.”
Össi segir alla gesti Edrúhá-
tíðarinnar velkomna til að taka
þátt og býður sérstaklega
velkomið fólk sem aldrei
hefur prófað þetta áður.
Örninn Össi
Allir velkomnir með í Kirtan.
valgeir með brekkusönginn
Valgeir stjórnar brekkusöngnum í ár.
séra anna sigríður
Það er tólf spora fólk, svokallað,
sem stendur að æðruleysis-
messunni.
Valgeir skagfjörð tónlistarmaður verður
með brekkusönginn á útihátíðinni á
Laugalandi í Holtum í ár, rétt eins og í
fyrra. Hann segir að öllum verði hóað
saman í brekkunni og þar verði varðeldur
og sungin dæmigerð íslensk útilegu- og
fjallasönglög. Gítarinn verður að sjálf-
sögðu með í för og sömuleiðis lítill magnari
og svo taka allir lagið saman.
„Þetta er kallað brekkusöngur því að
þetta er svipað því sem Árni Johnsen gerir í
Vestmannaeyjum,“ segir Valgeir og hvetur
fólk sem er edrú, hefur farið í gegnum
meðferð og sótt tólf spora fundi til að mæta
á útihátíðina. „Þetta er hugsað sem
fjölskylduútilega fyrir fólk sem vill
skemmta sér án áfengis og hafa það
huggulegt,“ segir hann og rifjar upp að
ýmislegt hafi verið á dagskrá hátíðar-
innar í fyrra, allskonar listamenn hafi
komið fram og skemmt.
Lofar dæmigerðum útilegu- og fjallasöngvum
Tjaldsvæðið Laugalandi
auðvelt er að rata að
tjaldsvæðinu. Þú keyrir
áleiðis að Hellu, framhjá
selfossi og yfir Þjórsárbrú
en beygir til vinstri (ef þú
kemur frá reykjavík) við
afleggjara Galtalækjar. Þá
eru aðeins örfáir
kílómetrar að
tjaldstæðinu
sem er vel
merkt.
Sober Riders
Eins og nafnið sober riders gefur til
kynna er þetta edrú mótorhjólagengi og
heilbrigðið uppmálað. Þeir munu mæta
kl. 14 á sunnudeginum og sýna
hjólin sín og kannski rúnta um
með þá krakka sem eru nógu
stórir. um að gera að kynna
sér starfsemi þeirra og sjá
flottu mótorhjólin þeirra.
sló í gegn í fyrra
5 rytma dansinn sló í gegn í fyrra og verður
aftur í ár. Hér eru frændsystkinin Tryggvi
Geir Torfason og Kristín Una Mikaelsdóttir í
góðum fíling.