Fréttatíminn - 27.07.2012, Blaðsíða 2
og Sumarjógúrtin frá MS.
Kræktu þér í ljúffenga Sumarjógúrt með
íslenskum krækiberjum. Tilvalin í útileguna,
sumarbústaðinn eða lautarferðina.
Sumarið er komið
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA
Gunnar Smári bingóstjóri
ArnArvArp Með lAkAstA Móti í ár
Varp misfórst hjá
meirihluta arnarpara
Kuldakast í maí átti væntanlega mestan þátt í því. Arnarvarp gekk ágætlega við Faxaflóa en
afleitlega við Breiðafjörð og á Vestfjörðum.
A rnarvarpið 2012 var með slakasta móti. Vitað er um 21 par með 28 unga sem verða fleygir eftir 2-3 vikur. Varp misfórst hjá meirihluta
þeirra 45 arnarpara sem urpu í vor og átti kulda-
kastið í maí væntanlega mestan þátt í því, að því er
fram kemur hjá Kristni Hauki Skarphéðinssyni,
fagsviðstjóra dýrarfræði hjá Náttúrufræðistofnun
Íslands. „Ernir verpa snemma eða um miðjan apríl
og verða ungarnir ekki fleygir fyrr en um miðjan
ágúst. Á fyrri hluta varptímans eru ernir viðkvæmir
fyrir hretum og eins truflunum af mannavöldum sem
því miður þekkist enn á vissum svæðum. Þá hefur
eitt helsta ferðaþjónustufyrirtækið við Breiðafjörð
siglt ólöglega að arnarhreiðrum og truflað fuglana
á viðkvæmum tíma snemma vors,“ segir Kristinn
Haukur.
Hann segir að arnarvarpið hafi reyndar gengið
ágætlega við Faxaflóa en afleitlega við Breiðafjörð
og á Vestfjörðum. „Til marks um það komst enginn
ungi á legg við norðanverðan Breiðafjörð og aðeins
einn ungi er að verða fleygur um þessar
mundir á Vestfjörðum,“ segir Kristinn
Haukur.
Allir arnarungar sem vitað er um hafa
verið merktir árlega undanfarin tíu ár og
frá 2004 hafa ungarnir verið litmerktir.
Upplýsingar um ferðir og afdrif fuglanna
hafa margfaldast síðan. „Nú er til dæmis
þekkt,“ segir Kristinn Haukur, „að ungir
fuglar af öllu varpsvæði arnarins fara á
síld í fjörðunum á norðanverðu Snæfells-
nesi á útmánuðum. Eins er vitað hvenær
sumir ernir helga sér óðal, hefja varp
og koma upp ungum og eins hvers langt
þeir flytja sig frá heimahögum. Yngsti
örninn sem komið hefur upp ungum var
fimm ára karlfugl sem varp um 12 kíló-
metra frá æskuóðalinu en sá fugl sem
lengst hefur farið fannst nú í sumar með
hreiður tæpa 100 kílómetra frá æsku-
óðalinu. Þá hefur komið í ljós að karl-
fuglarnir þurfa ekki að fara eins langt og
kvenfuglarnir til að ná sér í óðal til bú-
setu; þeir fara flestir aðeins fáeina tugi
km meðan kerlingar fara 50-100 kíló-
metra. Er þetta í samræmi við hegðun
hafarna erlendis og reyndar virðist þetta
vera eðlilslægt hjá mörgum tegundum
ránfugla,“ segir Kristinn Haukur.
Þrátt fyrir misbrest í varpi í vor eru
góðu fréttirnar þær að arnarstofninn
hefur vaxið lítið eitt miðað við undanfarin ár og telur
nú um 69 pör.
Samhliða merkingum arnarunga hefur sýnum ver-
ið safnað til erfðgreininga og er unnið að úrvinnslu
þeirra í samstarfi við Háskóla Íslands. Rannsóknir
og ítarleg vöktun á arnarstofninum byggist á sam-
vinnu nokkurra stofnana, þ.e. Náttúrufræðistofn-
unar og Náttúrustofanna í Stykkishólmi, Bolungar-
vík og Sandgerði en ekki síst á óeigingjörnu framlagi
áhugamanna, að sögn Kristins Hauks, einkum
þeirra Finns Loga Jóhannssonar sem meðal annars
hefur borið hitann og þungann af vöktun stofnsins
úr lofti og Hallgríms Gunnarssonar sem haldið hefur
utan um arnarstarfið við Faxaflóa.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Litmerktur arnarungi. Íslandsmerki er á hægra fæti, rautt að
hluta en ársmerkið er svart á vinstra fæti. Ljósmyndir Finnur Logi
Jóhannsson.
Þessir arnarungar eiga eftir að vera um fjórar vikur í hreiðrinu.
Um það bil sex vikna gamall arnarungi. Við hlið ungans er fúlegg.
Enginn
ungi
komst á
legg við
norðan-
verðan
Breiða-
fjörð og
aðeins
einn
ungi er
að verða
fleygur
á Vest-
fjörðum.
skAttAr Björgólfur thor 58 sinnuM ríkAri árið 2007 en ríkAsti íslendingurinn í dAg
Metinn á 433 milljarða en Skúli nú á 7,5
Árið 2007 var ríkasti Íslendingurinn metinn á 433
milljarða íslenskra króna, Björgólfur Thor Björg-
ólfsson, sem Forbes tímaritið raðaði í 249. sæti yfir
ríkustu menn heims. Í dag er ríkasti Íslendingurinn
metinn á 7,5 milljarða, Skúli Mogensen, samkvæmt
úttekt Viðskiptablaðsins.
Það er því ljóst að himinn og haf eru á milli ríki-
dæmis ríkra Íslendinga á árunum fyrir hrun og því
sem við sjáum í dag því Björgólfur Thor var hvorki
meira né minna en 58 sinnum ríkari árið 2007 en
ríkasti Íslendingurinn í dag.
Viðskiptablaðið reiknar út að alls eigi 98 Íslend-
ingar meira en 100 milljónir í hreinni eign og þar
af eigi 40 Íslendingar meira en milljarð. Eign allra
þessa 98 nemur um 127 milljörðum króna og var
Björgólfur Thor því tæplega fjórum sinnum ríkari
árið 2007 en 100 ríkustu Íslendingarnir nú um
stundir.
Næstríkasti Íslendingurinn er Guðbjörg Matthías-
dóttir, útgerðarkona og einn eigenda Morgunblaðs-
ins, sem metin er á 4,8 milljarða og fjórir aðrir eiga
eignir á bilinu 4-5 milljarðar, þar á meðal Bjarni Ár-
mannsson, fyrrum bankastjóri Glitnis.
Tveir alþingismenn komast á lista Viðskiptablaðs-
ins yfir 98 ríkustu menn landsins, þar á meðal er
einn sem á yfir milljarð, Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Framsóknarflokksins sem á
1140 milljónir. Hinn alþingismaðurinn á listanum á
nokkuð minni eign, Álfheiður Ingadóttir, þingmað-
ur Vinstri grænna, sem á 114 milljónir.
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
Fáir Ís-
lendingar
með easyJet
Þegar breska lággjalda-
flugfélagið easyJet hóf
flug hingað til lands í
vor sögðu talsmenn
þess að helmingur
pantana kæmi frá Ís-
landi. Fimm mánuðum
síðar er hlutfall farþega
félagsins, sem hefja
ferðalagið hér á landi,
komið niður í þriðjung,
samkvæmt upplýs-
ingum á ferðavefnum
túristi.is. Íslandsflugið
hefur gengið vel. -sda
Undirbúningur fyrir Edrúhátíðina, sem SÁÁ heldur
að Laugalandi í Holtum, stendur nú sem hæst og er
verið að skipuleggja dagskrá en þegar eru bókaðir
skemmtikraftarnir Örvar Kristjánsson, Mannakorn
og Krummi Björgvinsson auk þess sem Beggi
Morthens kennir hugleiðslu, spákonur mæta sem
og hláturjógakennari. Nýjasta atriði á dagskrá er úr
óvæntri átt, hinn óvægni þjóðfélagsrýnir Gunnar
Smári Egilsson, formaður SÁÁ, ætlar sýna á sér nýja
hlið og mun stýra stýra bingói strax á föstudagskvöld-
inu. Mikael Torfason, einn aðstandenda hátíðarinnar,
sagðist aðspurður hafa reynt að fá Smára til að fremja
töfrabrögð, klæðast trúðabúningi og gera dýr úr
blöðrum en þetta hafi verið niðurstaðan. -jbg
Kipptu Agli út af lista
Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason var fjarlægður af lista
Tekjublaðs Frjálsrar verslunar rétt fyrir prentun blaðsins
í fyrrakvöld. Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar,
sagði frá því í Morgunútvarpi Rásar 2 í gærmorgun að
„þekktur fjölmiðlamaður“ hefði verið fjarlægður af lista
Tekjublaðsins rétt fyrir prentun því hann hefði verið
skráður með 80 þúsund krónur á mánuði. Fram hefur
komið opinberlega að Egill er með tæpa milljón í laun á
mánuði. Jón sagði í samtali við Fréttatímann að ekki hefði
gefist tími til að sannreyna upphæðina sem Egill var sagður
með. Egill Helgason var á heimleið frá Grikklandi, staddur
í Berlín. Hann vissi ekkert af málinu. „Ég fól endurskoð-
anda mínum að skila skattaskýrslu minni og veit ekkert um
þetta. Ég myndi ekki svíkja undan skatti þótt ég gæti það
en get það ekki því ég er launamaður,“ segir Egill. -sda
2 fréttir Helgin 27.-29. júlí 2012