Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.07.2012, Blaðsíða 62

Fréttatíminn - 27.07.2012, Blaðsíða 62
 Eiríkur Jónsson Bíður Eftir svari frá stöð 2 og ara Edwald Þráir gömlu sjónvarpsþættina sína Blaðamaðurinn Eiríkur Jónsson hefur komið víða við á löngum ferli og átti til dæmis marga eftirminnilega spretti í viðtalsþáttum sínum Eiríkur á Stöð 2 á árunum 1992 til 1997. Hann veit til þess að Stöð 2 á í fórum sínum ein- hverja tugi þátta og hefur reynt að fá þá hjá sjónvarpsstöðinni án árangurs. „Þátturinn gekk í fimm ár. Á hverjum degi yfir vetrartímann og ég held að ég hafi gert 998 þætti á þessum árum,“ segir Eiríkur. „Ég held að það séu enn til 67 þættir, frekar en 76. Þeir eru alla vega innan við hundrað sem Stöð 2 á ennþá. Hinum var eytt. Þetta var á Beta-spólum og tók of mikið pláss. Ég hef séð hvar þetta var geymt uppi á Lynghálsi en veit ekkert hvar þetta er núna.“ Eiríkur vill endilega komast yfir þá þætti sem hafa varðveist til að gera þá aðgengilega á fréttavefnum www. eirikurjonsson.is þar sem hann segir fréttir af fólki eins og honum einum er lagið. „Ég hef rætt þetta við vin minn Pálma Guðmundsson, sjónvarpsstjóra Stöðvar 2, og sendi í framhaldinu tölvupóst á Ara Edwald forstjóra. Þeir svöruðu mér báðir á sama veg. Sögðu að það þyrfti að fjalla um þetta og taka ákvörðun í framhaldinu en síðan er liðinn ansi langur tími,“ segir Eiríkur sem gerir sér þó enn góðar vonir um að fá þættina enda eftirspurnin eftir þeim töluverð. „Ég er spurður um þessa þætti í það minnsta vikulega þannig að það eru greinilega margir sem muna eftir þátt- unum og vilja sjá þá aftur. Þeir voru margir sérstakir eða þóttu þá og ég hefði gaman að því að sjá þetta. Og mig langar náttúrlega að setja þetta sem til er á vefinn minn. Það er nú þess vegna sem ég er að biðja um þetta.“ -þþ Eiríkur fékk til sín fólk úr öllum áttum, kynlega kvisti, háa sem lága og spurði spjörunum úr með sínu lagi þannig að oft varð frábært sjónvarps- efni. Meðal gesta sem Eiríkur man eftir eru Sverrir Stormsker sem Eiríkur afkynnti með að lofa að gera þetta aldrei aftur. Og Bjarni Þórarins- son, sjónháttafræðingur, sem Eiríki gekk illa að stöðva þegar hann var kominn á flug. n ýjasta verkefnið okkar er heimasíðan www.4ever-arts.com. Það er verið að setja hana upp í þessum töluðu orð- um en það er samt hægt að senda okkur póst í gegnum síðuna,“ segir Katla. „Hugmyndin er að þreifa á ýmsum listgreinum, hvort sem um er að ræða stuttmyndir, gjörninga, dansmyndir, tónlist og tónlistar- myndbönd og svo framvegis. Við völdum síðunni alþjóðlegt nafn og vonumst til þess að í framtíðinni verði hún vettvangur og miðill fyrir listafólk sem vill prófa nýja hluti, starfa saman og koma verkum sínum á framfæri. Við sjáum fyrir okkur að síðan verði alþjóðleg og fólk frá öllum heimshornum sæki hana og geti bæði myndað sam- bönd og tjáð sig um verkin í at- hugasemdakerfinu.“ Katla bætir við að þær stöllur vilji endilega opna síðuna með stuttmynd eða dansatriði og hvetur áhugasama til þess að hafa sam- band við þær í gegnum síðuna. „Fólk situr bara svo oft heima hjá sér með góðar hugmyndir og við vonumst til þess að heyra frá slíku fólki og við gætum þá kannski komið þeim í verk.“ Katla segir allar listgreinar heilla þær vinkonur en í ljósi náms- ins sem þær hafa klárað sé leikur fyrir framan tökuvélar efstur á baugi hjá þeim. „Við útskrifuðumst 2011 og erum búnar að vera að í um það bil tvö ár og vorum komnar með einhver verkefni áður en við lukum námi. “ Katla og Anna hafa leikið í fjölda auglýsinga, sjónvarpsþátta og stuttmynda. Þær hafa komið fram í tónlistarmyndum með Tilbury og Retro Stefson og eru að gera sig gildandi í kvikmyndum í fullri lengd. „Katla lék þjónustustúlku sem færði Þorvaldi Davíð Krist- jánssyni og Damon Younger dóp í Svartur á leik. Hún leikur einnig í myndunum XL og Einn sem á eft- ir að frumsýna. „Einhvers staðar verður maður að byrja og ég er búin að fá þessi þrjú hlutverk og Anna er að fara að leika í Vonar- stræti eftir Baldvin Z. Þar leikur hún vinkonu Heru Hilmarsdóttur sem er í einu aðalhlutverkanna. Draumurinn er bara að fá að leika sem mest.“ Þegar Katla er spurð út í hvern- ig var að leika í Svartur á leik seg- ir hún. „Það var alveg ótrúlega skemmtilegt. Maður lærði náttúr- lega gríðarlega mikið bara með því að fylgjast með öllu ferlinu. Ég hafði mjög gaman að því að fylgj- ast með Þorvaldi Davíð og hvernig hann undirbjó sig fyrir senurnar. Ég tók mest frá honum. Þetta var alveg æðislegt.“ Vinkonurnar leika saman í gam- anþáttunum Punkturinn sem verð- ur sýndur á Skjá einum. Katla segir þetta vera gamanþætti í anda Fóst- bræðra og byggi á stuttum innslög- um sem eigi að sýna húmor sinnar kynslóðar og hvað rétt rúmlega tvítugt fólk er að fást við í þeim efnum. „Þetta verður bara vonandi mjög skemmtilegt.“ Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is  katla og anna kvikmyndalEikkonur í sókn Ég hafði mjög gaman að því að fylgjast með Þorvaldi Davíð og hvernig hann undirbjó sig fyrir senurnar. Lærdómsríkt að fylgj- ast með Þorvaldi Davíð Katla og Anna voru í hópi um tíu leikkvenna sem léku í Matarleikhúsinu Völuspá í Norræna húsinu. Sýningarnar fengu tvær tilnefningar til Grímuverðlaunanna, fyrir sviðsmynd og til Sprotans – viðurkenningar fyrir nýbreytni og frumleika. „Meðbyrinn sem þetta fékk hérna varð til þess að við erum að fara með verkið til Kaupmannahafnar og sýnum það í október og nóvember.“ Vinkonurnar Katla Rut Pétursdóttir og Anna Hafþórsdóttir hafa ekki setið auðum höndum frá því þær útskrifuðust í leiklist frá Kvikmyndaskóla Íslands í fyrra. Katla lék meðal annars í Svartur á leik og Anna fer með hlutverk í Vonarstræti, næstu mynd Baldvins Z. Þær verða saman í gamanþættinum Punkturinn á Skjá einum í vetur og eru að opna heimasíðu til þess að vekja frekari athygli á sér. Og heimurinn allur er undir. Stóra stórlaxamálið Nýjustu fréttir af stórlöxum, svo sem einum 111 sentímetra hæng sem Lars Svendsen dró úr Höfðahyl í Laxá í Aðaldal, og annað tröll sem Árni Baldursson veiddi hafa kallað á nokkra ólgu innan stangveiðiheimsins íslenska. „Veiða-og- sleppa“ kallar á það að menn slá á lengd fisksins, taka mynd og svo taka við bollaleggingar um hversu mörg pund skepnan var. Bubbi Morthens er einn þeirra sem hefur látið málið til sín taka í netheimum og efast stórlega um, eftir að hafa barið myndirnar augum að fullyrðingar um þyngd, í samanburði við stórlaxa sögunnar, eigi við rök að styðjast – hann þolir ekki fúsk. Vigtaðir fiskar eru vigtaðir fiskar en myndir geti logið, þannig geti veiðimenn verið smávaxnir og með litlar hendur sem gerir fiskinn stærri. Veiðigúrúið Hilmar Hansson skvetti olíu á eldinn í gær með Fb-status: „Djöfulls rugl er þetta að verða með þá sem veiða stóra og fallega fiska, er allur veiðiheimurinn orðinn kol ruglaður úr afbrýðisemi út í þessa menn...“ og nú er þetta stóra stórlaxamál rætt í þaula. Skottúr til Eyja Tryggvi Már Sæmundsson, fram- kvæmdastjóri ÍBV og félagar hans í þjóðhátíðarnefnd, ætla um verslunar- mannahelgina að bjóða upp á þá nýbreytni að fólk geti skotist í Herjólfsdal, fram og til baka, á sunnudeginum. Með þessu móti getur fólk náð nokkrum hápunktum Þjóðhátíðar eins og til dæmis hinum rómaða Brekkusöng án þess að þurfa að hafa áhyggjur af gistingu og öðru sem fylgir næturdvöl á Þjóðhátíð. Þeir tónlistar- menn sem troða upp á sunnudeginum í dalnum eru sjarmörinn Ronan Keating, Ingó veðurguð, Páll Óskar og Botnleðja. Siglt er til baka frá Eyjum klukkan 2 og 4 eftir miðnætti. Baltasar frumsýnir í Toronto Biðin eftir Djúpinu, bíómynd Baltasars Kormáks, styttist óðum og nú hefur spurst út að leikstjórinn ætli að frumsýna myndina á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto í byrjun september. Djúpið var valið á hátíðina í flokkinn Special Presenta- tions og verður sýnd ásamt áhugaverðum myndum og Baltasar að sama skapi í hópi flottra leikstjóra. Baltasar byggir Djúpið lauslega á samnefndum einleik Jóns Atla Jónassonar sem sótti svo aftur inn- blástur í afrek Guðlaugs Friðþórssonar að synda rúma fimm kílómetra í land eftir að Hellisey VE-503 fórst við Vestmanna- eyjar árið 1984. Djúpið verður frumsýnd á Íslandi þann 21.september. 58 dægurmál Helgin 27.-29. júlí 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.