Fréttatíminn - 27.07.2012, Síða 10
H
ún talar hratt og hefur mikið að
segja. Það var búið að vara við því
að hún myndi ekki sitja kyrr á með-
an á viðtalinu stæði. Henni tekst
það nú samt. Iceland Express er
annað stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins og
því má segja að Þórunn sé ein áhrifamesta konan
innan ferðageirans á Íslandi þar sem hún hefur
starfað frá fermingu. Hún er framkvæmdastjóri
sölu- og markaðssviðs Iceland Express en hefur
komið víða við á þeim rúmlega þremur áratugum
sem hún hefur starfað í ferðaþjónustinni.
Þórunn kom til Iceland Express á miklum um-
brotatímum í lok síðasta sumars. Áætlunarkerfi
fyrirtækisins hafði aldrei verið flóknara með fjóra
áfangastaði í Bandaríkjunum og einn í Kanada og
fjölda áfangastaða í Evrópu og hafði í raun vaxið
sér yfir höfuð, að sögn Þórunnar. Félagið sætti
ámælum fyrir seinkanir og niðurfellingar á flugi
og umræðan um Iceland Express var vægast sagt
neikvæð í fjölmiðlum. Flugvélar Astareus, sem
þjónuðu Iceland Express, biluðu oft, sem jók enn
á erfiðleikana. Um haustið var Matthíasi Imsland
forstjóra sagt upp störfum og nýr forstjóri, Birgir
Jónsson, yfirgaf forstjórastólinn eftir tíu daga.
„Það blés því ekki byrlega fyrir Iceland Express
fyrstu mánuði mína hjá félaginu. En eftir að Birgir
fór tók Skarphéðinn Berg Steinarsson við félaginu
og undir forystu hans tók ný yfirstjórn að endur-
skipuleggja rekstur Iceland Express frá grunni,“
segir Þórunn. Nokkrir starfsmenn sættu sig ekki
við ný vinnubröð og fóru í kjölfarið en nokkrum
öðrum var sagt upp og nýir starfsmenn ráðnir í
þeirra stað.
Um miðjan nóvember í fyrra var Astraeus, sem
var í eigu Pálma Haraldssonar eins og Iceland
Express, sett í slitameðferð og ljóst að ef ekki yrði
gengið hratt til verka hefði Iceland Express engar
flugvélar. „Þá kom í ljós hversu ný yfirstjórn og
starfsfólk félagsins almennt voru megnug. Á einni
helgi var gerður samningur við nýtt flugfélag um
þjónustu við Iceland Express og á sunnudags-
morgni fóru síðustu flugvélar Astraeus með
farþega frá Keflavík og nýjar Airbus flugvélar
Holidays Czech Airlines fluttu farþega heim, án
þess að nokkur utan fyrirtækisins yrði þess var,“
segir Þórunn.
Við töluðum
okkur upp
áður – nú
tölum við
okkur niður
Þórunn
Reynisdóttir
er áhrifakona
í íslenskum
ferðaiðnaði sem
hefur fengið að
finna fyrir því
að hún er kona í
karlaheimi. Hún
segir að það hafi
verið hálfgert
menningarsjokk
að flytja aftur
til Íslands í lok
síðasta árs eftir
sex ára búsetu í
Bandaríkjunum.
Krafturinn
og jákvæðnin
í íslensku
samfélagi hafi
verið horfin.
Hún ræddi við
Sigríði Dögg
Auðunsdóttur
um sam-
keppnina í
fluggeiranum og
nauðsyn þess að
við hættum að
tala okkur niður.
„Um leið lagðist Ameríkuflug félagsins af og
starfsfólk Iceland Express var undir gífurlegu
álagi næstu vikurnar við að leysa úr málum
hundruða farþega. Hvernig leyst var úr öllum
þessum vandamálum sýnir hvað Iceland Ex-
press er sveigjanlegt félag í dag. Þar er nú
valinn maður í hverju rúmi og ég er þeirrar
skoðunar að okkur séu allir vegir færir,“ segir
Þórunn greinilega stolt af sínu fólki.
Iceland Express lækkar verð
Þórunn vill þó ekki meina að sú neikvæða
umræða sem ríkti um félagið síðasta sumar
og haust hafi náð að skaða það til frambúðar.
„Í dag erum við stundvísasta íslenska félagið
á Keflavíkurflugvelli og með yngsta flugvéla-
flotann. Íslendingar ættu að muna hvernig
verðlag á flugi var fyrir komu Iceland Express
á markaðinn fyrir tæpum tíu árum. Við höfum
gert almenningi kleift að ferðast í ríkari mæli
og um leið fjölgað erlendum ferðamönnum
sem hingað koma. En í dag höfum við flutt
um þrjár milljónir farþega. Iceland Express
lækkar verð og fjölgar ferðamönnum.“
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@ frettatiminn.is
„Samkeppnin hefur því komið öllum Ís-
lendingum til góða og er nauðsynleg. Keppi-
nautar okkar lækka verð á þá staði sem við
fljúgum á. En þegar þeir eru einir um hituna
hækkar verðið eins og sést á verði flugferða til
Ameríku eftir að við fórum af þeim markaði,“
segir Þórunn. „Það er mikilvægt að hér séu
fleiri en eitt félag í flugrekstri sem heldur úti
starfsemi allt árið. Flest erlendu félögin fljúga
bara hingað á sumrin. Fólk ætti að hafa þetta
í huga þegar ferð er bókuð þó svo að verð sé
alltaf það fyrsta sem fólk lítur til,“ segir hún.
En talandi um samkeppni. Nýr keppinautur
kom á flugmarkaðinn í vor, WOW air. Tals-
verður ófriður hefur ríkt milli hinna tveggja
Framhald á næstu opnu
Að mörgu
leyti var
ákveðið
menn-
ingarsjokk
að koma
til baka,
það er
svo mikil
neikvæðni
í gangi
Þórunn Reynisdóttir: „Íslendingar ættu að muna hvernig verðlag á flugi var fyrir komu Iceland Express á markaðinn fyrir
tæpum tíu árum.“ Ljósmynd/Teitur
10 fréttaviðtal Helgin 27.-29. júlí 2012