Fréttatíminn - 27.07.2012, Síða 20
S teranotkun og taka lyfja sem hafa blóðaukandi áhrif eru helstu orsakir þess að íþrótta-
menn falla á lyfjaprófi. „Yfirleitt nota
þeir [árangursbætandi lyf] og eru
skrefi á undan eftirlitinu; á undan
og eftir,“ segir Birgir Guðjónsson
læknir sem í áratugi vann við lyfja-
prófanir á íþróttamönnum og í tólf
ár á alþjóðavettvangi. Stera noti þeir
sem freistist til að byggja hratt upp
vöðvamassa á æfingatímabilinu en
blóðaukandi lyfin þeir sem séu í þol-
greinum.
„Það er erfitt að sjá við því,“ segir
Birgir og bendir á að hjólreiðarmenn
hafi helst verið í kastljósinu þegar
komi að slíkri notkun. Nú sé til að
mynda búið að kæra Lance Arms-
trong, einn þekktasta og dáðasta
hjólreiðarmann Bandaríkjanna fyrir
lyfjanotkun. Á vefnum USA Today
segir að verði hann fundinn sekur
missi hann alla verðlaunagripi í
frönsku hjólreiðarkeppninni, Tour
de France. Kæran hafi komið í veg
fyrir að hann keppti í ár.
Öflugt eftirlit
Gríðarleg vinna er sett í að fylgjast
með toppíþróttamönnum þegar þeir
æfa sig undir stórmót. Sigurbjörn
Árni Arngrímsson, íþróttalýsandi
og prófessor í íþróttafræðum við Há-
skóla Íslands, lýsir vandræðum Guð-
rúnar Arnardóttur einnar fremstu
íþróttakonu sem Ísland hefur átt,
þegar hún flutti degi fyrr en áætlað
var milli íbúða í Bandaríkjunum, og
varð meðleigjandi hans, og lyfjaeftir-
litið bankaði upp á.
„Það var bankað uppá hjá okkur
seint um kvöld: Pissa núna! Hún
hafði gefið upp með þriggja vikna
fyrirvara að hún ætlaði að flytja dag-
inn eftir, en þar sem við vorum búin
að flytja allt dótið ákvað hún að flytja
strax um kvöldið. Það skapaði mikil
vandræði, þegar lyfjaeftirlitið bank-
aði upp á í gömlu íbúðinni og hún var
ekki þar. Þeir höfðu svo upp á henni
með aðstoð þjálfara hennar,“ segir
Sigurbjörn.
„Ef íþróttamaður missir af svona
óvæntu lyfjaprófi er það sama og fall
á prófi og þeir dæmdir í bann.“
Ólympíuleikarnir verða settir í
dag og spennan eykst. Hafi einhver
íþróttamanna þeirra 204 þjóða sem
taka þátt á leikunum í ár freistast til
þess að nota árangursaukandi lyf
fyrir mót þurfa þeir að vera vissir
um að líkaminn sé „hreinn“ þegar á
mótið er komið. Ekki arða af sterum,
insúlíni, rítalíni eða astma-lyfjum má
renna um æðar þeirra – hvort sem
lyfin eru þeim lífsnauðsynleg eða
ekki.
„Það geta þeir ekki gert í keppn-
inni sjálfri,“ segir Birgir. „En ef að
menn þurfa að taka þessi lyf þarf það
að vera vottað áður. Eins og astma-
lyfin, það þarf að vera vel skilgreint
að menn þurfi á þeim að halda [á
undirbúningstímabilinu].“
Fall Marion Jones
Það sem helst vekur athygli í þessum
lyfjaheimi er þegar stórstjörnurnar
falla. Segja má að fall Marion Jones,
bandarísku frjálsíþróttakonunnar
sem landaði fimm verðlaunum á ól-
ympíuleikunum í Sydney 2000, sé
síðasta „alvöru“ stjörnuhrapið. Hún
varð að skila medalíunum þegar
upp komst um áralangt lyfjamisferli
hennar árið 2007.
Marion er frægasta stjarna svo-
kallaðs BALCO-skandals, sem upp
kom í Bandaríkjunum og kennt er við
fyrirtækið sem framleiddi árangurs-
bætandi lyf fyrir stjörnurnar. Tutt-
ugu framúrskarandi íþróttamenn
misstu þar keppnisrétt sinn, þar á
Stjörnufall lyfjaðra íþróttagarpa
Elskaður Kanadabúi varð hataður Jamaíkamaður á augabragði
vegna lyfjanotkunar. Ben Johnson er, eins og sprettstjarnan
Marion Jones, fallinn af frægðartindinum en þó ekki í gleymsku,
því steranotkun þeirra gleymist seint. Stórstjörnur íþróttanna
hafa margar hverjar orðið uppvísar að því að misnota lyf til
að bæta árangur sinn. Hér áður var algengt að stjörnurnar
„meiddust“ á síðustu æfingu fyrir mót, en nú mætir lyfjaeftir-
litið án viðvörunar þar sem stjörnurnar standa og heimta prufu.
Fréttatíminn fer yfir lyfjamisferli og meint brot með þeim Birgi
Guðjónssyni lækni og Sigurbirni Árna Arngrímssyni kappleikjarýni.
meðal fyrrum eiginmaður Jones,
sleggjukastarinn C. J. Hunter, sem
og barnsfaðir hennar Tim Montgo-
mery.
„Það sem gerðist í hennar tilfelli –
ef ég man rétt – er að hún skipti um
umboðsmann eða þjálfara og sá hinn
sami sendi sýni eða þetta lyf sem var
verið að nota á lyfjaeftirlitið: Þá gat
það farið að átta sig á því hvað væri í
gangi og prófa fyrir því. Þá kom í ljós
þessi BALCO fæðubótaframleiðandi
hafði framleitt þetta lyf í kringum
Marion Jones,“ segir Sigurbjörn.
Hann segir að sögusagnir um
lyfjanotkun hafi svifið kringum Mar-
ion Jones. Henni hafi vel fyrir tvítugt
boðist að keppa á ólympíuleikum en
afþakkað. „Og hún hvarf úr frjálsum
eftir þann árangur og spilaði körfu-
bolta allan sinn háskólaferil. Það var
ekki fyrr en hún lauk háskólanámi
sem nú sneri sér aftur að frjálsum,“
segir hann.
„Það voru sögusagnir um að hún
hefði einfaldlega verið sett á ís þarna
sem unglingur. Hún hafi fallið á lyfja-
prófi en bandaríska frjálsíþróttasam-
bandið ákveðið að gefa henni þann
sjens að ef hún hyrfi af sjónarsvið-
inu í nokkur ár yrði þessi niðurstaða
prófanna ekki gerð heyrinkunnug.
Hvort þetta er satt veit ég ekki og
vonlaust að fá staðfest. En svona lag-
að er ekki lengur hægt í dag,“ segir
Sigurbjörn og vísar til hertra reglna.
Nú séu lyfjaprófin ekki lengur í
höndum sambandanna sjálfra heldur
séu þau hjá alþjóðlegu lyfjaeftirliti.
Hér áður hurfu sýnin
„Hér áður, til dæmi værir þú á „kali-
beri“ [bandaríska spretthlauparans
og langstökkvarans] Carls Lewis gat
alveg verið að sýnin hyrfu eða að nið-
urstöðunum væri aðeins breytt. Það
var líka á árum áður dálítið algengt
að menn meiddust á síðustu æfingu
fyrir mót og kepptu ekki.“
Allra augu voru á hlaupadrottning-
unni Jones á ólympíuleikunum 2000,
enda hafði hún tilkynnt að hún ætl-
aði að vinna gull í öllum fimm keppn-
isgreinum sínum. Á sama tíma var
greint frá því að þáverandi eigin-
maður hennar hefði dreg-
ið sig úr keppni vegna
hnémeiðsla. Á meðan á
mótinu stóð var tilkynnt
að C. J. Hunter hefði fall-
ið á hvorki meira né minna
en fjórum lyfjaprófum fyrir
leikana. Allt vegna steranotk-
unar.
Þekktar eru sögurnar af
lyfjuðu austurblokkaríþrótta-
mönnunum. Sigurbjörn segir frá
austur-þýskum vini sínum sem
lengi hafi átt heimsmet ung-
linga í þrístökki; 17,51. „Hann
var af austur-þýska skólanum
og alinn upp á dópi. Hann sagði: Ég
gerði ekkert rangt. Ég keppti aldrei
óhreinn.“ Efnin hafi verið notuð
grimmt á æfingatímabilinu, svo hafi
þeir á ákveðnu tímabili hreinsað sig
út og keppt í kjölfarið.
„Núna eru fleiri lyf bönnuð en þá
var. Ennþá eru ekki gerðar athuga-
semdir við sum lyf á æfingu, en þau
má ekki nota í keppni. Til dæmis
koffín,“ segir hann.
Kollsteypa Bens Johnson
En eitt frægasta tilvik lyfjaíþrótta-
mannanna var hneisa hins kanadíska
Bens Johnson árið 1988. Hann hafði
unnið tvenn brons-verðlaun á ólymp-
íuleikunum í Atlanta 1984 og svo
gullið í Seoul 1988, en dópaði. Það
voru sterarnir Stanozolol sem felldu
hann. Ben flutti sextán ára frá Jama-
íka til Kanada og var dáður fyrir af-
rek sín – þar til sannleikurinn kom í
ljós. Birgir skrifaði margar greinar
um Ben Johnson á sínum tíma.
„Hann var dáður í Kanada þegar
hann stóð á verðlaunapalli en var orð-
inn fordæmdur Jamaíkamaður þegar
hann var tekinn,“ segir hann. „Það
sýnir öfgarnar í þessu.“
Justin Gatlin féll
Annað dæmi sem kemur upp í huga
Sigurbjörns, spurður um stórt
stjörnufall, er saga bandaríska
spretthlauparans Justins Gatlin,
sem keppi núna á leikunum í ár og á
þriðja besta 100 metra hlaupatíma í
sögu leikanna og gullverðlaunahafi
í 100 metra hlaupi í Aþenu 2004.
Hann fékk átta ára dóm árið 2006,
þegar sterar mældust í einu prófa
hans, sem var svo mildaður í fjögur
ár. Þjálfari Gatlin, Trevor Graham, er
sá sami og þjálfaði Marion Jones og
hefur einhverra hluta vegna þjálfað
átta íþróttamenn sem fallið hafa á
lyfjaprófi.
„En Gatlin hefur tvívegis fallið og
í fyrra skiptið var hann að taka lyf
við ADHD, ofvirki og athyglisbresti,
til að hjálpa sér við að halda einbeit-
ingu,“ segir Sigurbjörn. Vegna lyfja-
formsins hafi það ekki haft sömu
örvandi áhrif og önnur amfetamín-
skyld lyf. „Mér fannst ósanngjarnt
á sínum tíma að dæma hann þarna,
það er hafi þessi saga verið sönn, því
lyfið hafi ekki haft þessi árangurs-
bætandi áhrif.“
Og svo var það bandaríska sprett-
stjarnan Kelly White, sem sigraði
á heimsmeistaramótinu 2003 í 100
metra hlaupi sem þurfti að skila verð-
laununum 2004; enn og aftur vegna
BALCO-lyfjaskandalsins.
„Stórstjörnur frá vestrænum þjóð-
um, þar sem við viljum ekki viður-
kenna að haft sé rangt við, hafa því
fallið á lyfjaprófum,“ segir Sigur-
björn. „Það vekur meiri athygli þegar
Bandaríkjamenn, Bretar eða Kan-
adamenn falla en þótt Rússar falli í
sleggjukasti og þannig íþróttum. Þá
þykir einfaldlega áhugaverðara þeg-
ar spretthlaupararnir falla en skeggj-
aður, hárugur kastari.“
Já, það getur verið kalt á toppnum.
Meira að segja hlaupadrottningin
Merlene Ottey frá Jamaíka og Lin-
ford Christie frá Bretlandi hafa verið
dæmd fyrir steranotkun, en hún náði
sér þó aftur á strik og varð þriðja á
hlaupabrautinni í Sidney, þótt hún
gæti ekki tekið þátt í heimsmeistara-
mótinu 1999.
En svo eru það hinir, sem eru ekki
í dópinu fyrir árangurinn. Sund-
stjarnan Michael Phelps, sem vann
til átta gullverðlauna á ólympíuleik-
unum 2008 og hefur unnið til sextán
verðlauna á leikunum var af mörgum
úr leik þegar hann náðist á mynd við
að reykja maríhúana. Hann keppir
í sjö greinum í London, á leikunum
sem hefjast í lok mánaðarins.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Ben Johnson var ekki fremstur meðal jafningja þegar hann sigraði keppinautana í 100 metra hlaupi á ólympíuleikunum í Seoul.
Hann var sterum. Mynd/Nordic Photos/Gettyimages
Flo-Jo féll frá en
skilur eftir grun um
lyfjanotkun
Einn eftirminnilegasti spretthlaupari
íþróttasögunnar er hin litríka Florence
Griffith Joyner eða Flo-Jo. Hún lést 38
ára gömul úr flogaveiki. Hún er talin
hraðasta kona hlaupabrautanna sem
uppi hefur verið. Hún landaði þremur
gullverðlaunum í Seoul 1988 og keppti
ekkert eftir það.
„Hún féll aldrei á lyfjaprófum. Jæja,
í það minnsta ekki á þessum mótum,“
segir Sigurbjörn Árni Arngrímsson
lýsandi frjálsíþróttaleikja. „En sviplegt
dauðsfall hennar ýtti undir sögusagir
um lyfjamisnotkun.“ Þá hafi þótt grun-
samlegt að hún settist
í helgan stein eftir
ólympíuleikana;
á toppnum. „Það
fóru sögusagnir
um það að banda-
ríska frjálsíþrótta-
sambandið hafi
sett henni stólinn fyrir
dyrnar. Hún hafi verið stútfull
af dópi.“ Framfarir hennar
hafi verið miklar á
stuttum tíma. Hins
vegar hafi hún
aldrei fallið á lyfjaprófi.
Á Wikipediu eru ásakanir um
lyfjanotkun raktar og að ótrú-
legar framfarir hennar hafi vakið
grunsemdir. Þar er einnig sagt að hún
hafi ætlað sér að keppa aftur 1996 í 400
metra hlaupi, en hásin í hægri fæti hafi
bundið enda á þær vonir.
Árangur Marion Jones var þurrkaður út. Justin Gatlin var í banni en keppir nú.
Michael Pelphs var tekinn við maríhúana-reykingar en keppir nú. Myndir/Nordic
Photos/Gettyimages
20 úttekt Helgin 27.-29. júlí 2012