Fréttatíminn - 27.07.2012, Qupperneq 22
Það er
bara svo
stutt síðan
við vorum
nýlenda og
það hefur
mikið að
segja hvern-
ig hugarfar
er við lýði
hér í dag.
ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ
NÝ
JUN
G!
Við kynnum nýjan hvítmygluost frá Mjólkursamsölunni
undir nafninu Dala-Auður. Osturinn er einstaklega
mjúkur og bragðgóður og er sá mýksti úr flóru
mygluosta frá MS.
Dala-Auður er 170 g og er unnin úr nýmjólk.
Nafn ostsins er vísun í Auði djúpúðgu sem var
landnámskona í Dölunum og ættmóðir Laxdæla.
MJÚKUR OG LJÚFFENGUR
HVÍTMYGLUOSTUR ÚR DÖLUNUM
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
2–
06
31
Þetta er fjórða greinin í greinaflokki Sigríðar Daggar Auðunsdóttur um endurreisn grænlensks samfélags sem nú hillir undir að geti orðið að
veruleika. Sigríður Dögg fór til Grænlands og kynnti sér þá þróun sem orðið hefur á samfélaginu á undanförnum árum og þá hugarfarsbreytingu sem
ungu kynslóðinni á Grænlandi er að takast að innleiða. Hugarfarsbreytingin felst í aukinni sjálfstæðisvitund og ábyrgð sem er jafnframt nauðsynleg
til þess að Grænlendingum takist að skapa sér það heilbrigða samfélag sem þeir kjósa að búa í.
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@ frettatiminn.is4
G
rænlensk börn telja að foreldrarnir eigi
og beri mesta ábyrgð á því að börnum
sé tryggt gott líf og nauðsynlegt sé að
bregðast við þeim félagslega vanda sem
grænlenskt samfélag á við að stríða, sér-
staklega misnotkun áfengis og vímuefna, jafnt meðal
foreldra sem ungmenna. Þetta kom fram á ungmenna-
þingi sem haldið var í Grænlandi í október í fyrra og
ungmenni víðs vegar að af Grænlandi tóku þátt í.
Undanfarin ár hefur verið mikil áhersla lögð á það
í Grænlandi að efla ábyrgð í því skyni að takast á við
þann mikla félagslega vanda sem hrjáir samfélagið; of-
drykkju, ofbeldi, fátækt, vanrækslu barna og kynferð-
islega misnotkun – djúpstæður vandi sem fjallað hefur
verið um í Fréttatímanum undanfarnar vikur.
Eitt af því sem stjórnvöld hafa lagt áherslu á er að ná
til ungu kynslóðarinnar í því skyni að stuðla að nauð-
synlegri viðhorfsbreytingu meðal almennings. Því var
sett á stofn barnaþing í lok síðasta árs sem er fjögurra
ára tilraunaverkefni undir heitinu NAKUUSA, sem
þýðir „Verum sterk“. Niðurstöður úr ungmennaþinginu
voru birtar í apríl síðastliðnum og voru afhentar Mimi
Karlsen, ráðherra fjölskyldumála, sem ber ábyrgð á
því að koma tillögunum áfram til þeirra sem hafa með
þá málaflokka að gera sem fjallað var um.
Að sögn Mimi hefur þegar verið brugðist við nokkr-
um af þeim tillögum sem börnin lögðu fram. „Börnin
vildu að foreldrar tækju meiri ábyrgð og við brugðumst
strax við og buðum upp á námskeið fyrir foreldra um
hvernig þau geti axlað meiri ábyrgð,“ segir Mimi.
Ábyrgð leiðarstef í samfélagsumræðunni
Aukin ábyrgð einstaklingsins á sjálfum sér og samfé-
laginu er leiðarstef í samfélagsumræðunni í Grænlandi
um þessar mundir.
Aaja Chemnitz Larsen, talsmaður barna, segir að
Grænlendingar séu sem þjóð ekki góð í að axla ábyrgð.
„Það hefur eflaust eitthvað með það að gera að við
vorum nýlenda og vöndumst því að aðrir tóku ábyrgð
á okkur. Við erum hins vegar á ákveðnum krísutímum
núna og því er mikilvægt fyrir okkur að standa saman
og komast að niðurstöðu um það hvað sé mikilvægt
fyrir okkur sem þjóð og taka sjálf ábyrgð á að koma því
í framkvæmd,“ segir Aaja.
Inga Dóra Guðmundsdóttir, fyrrum ritstjóri Ser-
mitsiaq, annars stærsta dagblaðs Grænlands, tekur
undir þetta: „Það sem er að gerast núna í Grænlandi
er mjög spennandi. Við erum á tímabili þar sem við
erum aðeins byrjuð að krafsa í jörðina og undir niðri
ólgar allt. Við erum á ákveðnu tímabili í svokölluðum
póst-nýlenduhugsunarhætti þar sem við erum farin
að dýrka það sem var áður en við urðum nýlenda og
horfum mikið til baka til þess tíma áður en Danirnir
Áskorun grænlenskra barna til foreldra sinna
Djúpstæður vandi steðjar að grænlensku
samfélagi; áfengis- og vímuefnaneysla,
ofbeldi, vanræksla barna, kynferðisleg
misnotkun og fátækt. Efnt var til sérstaks
barnaþings á Grænlandi og skilaboðin þaðan
eru ótvíræð: Að foreldrar og grænlenskt
samfélag axli almennt meiri ábyrgð sjálft.
komu. Við erum að skoða ræturnar og hvernig við
getum nýtt það í dag sem við áttum þá. Það er bara
svo stutt síðan við vorum nýlenda og það hefur
mikið að segja hvernig hugarfar er við lýði hér í
dag. Ég vil sjá það breytast,“ segir Inga Dóra, og
heldur áfram: „Ég vil sjá Grænlendinga læra að
taka ábyrgð á sjálfum sér, bæði sem einstaklingar
og sem þjóð. Við eigum ekki að kenna fortíðinni
um hvernig við erum í dag. Við getum ekki alltaf
bent á nýlendupólitíkina og kennt henni um, það
gerir okkur ekkert gott. Við verðum að líta til for-
tíðar og viðurkenna þau mistök sem þá voru gerð,
læra af þeim og halda svo áfram.“
Börnin hafa rödd
Mimi, ráðherra fjölskyldumála, segir að þetta sé að
takast. „Að mínu mati hefur okkur tekist að fá fólk
til að taka ábyrgð á því sem er að gerast í sam-
félaginu og það er mikil breyting. Í stað þess að
fólk segi: „Við eigum við þetta vandamál að stríða
– nú verður einhver að gera eitthvað í því!“, þá er
fólk farið að segja: „VIÐ verðum að gera eitthvað í
því!“,“ segir Mimi.
„Við þurfum að halda áfram að hvetja fólk til
að taka ábyrgð á því hvað það vill – hvers konar
líf og hvernig menntun,“ segir Mimi. „Ég vænti
þess að það muni gerast, vegna þess að við höfum
gert ýmislegt mjög jákvætt til að stuðla að því. Við
höfum til að mynda sett á fót barnaþing og höfum
börn og ungmenni núna með í ráðum um hvað
þarf að bæta, hvað fullorðnir þurfi að gera til þess
að börn eigi gott líf,“ segir Mimi.
„Það er mjög jákvætt fyrir okkur að heyra í
unga fólkinu en það er líka jákvætt að börn skynji
að þau hafi rödd og að þau geti haft áhrif og að
það sé hlustað á þau. Einnig, að ef þau vilja koma
á framfæri óskum sínum betra samfélag, þá geta
þau lagt sitt af mörkum við að breyta því,“ segir
hún.
Fimm ára verkefni
NAKUUSA er fimm ára samstarfsverkefni ráðu-
neytis fjölskyldumála og UNICEF í Danmörku.
Það hófst í janúar 2011 og lýkur í árslok 2014.
Markmið með NAKUUSA er að bæta skilyrði
barna í Grænlandi og tryggja að réttindi þeirra
séu virt. Þetta verður gert með ýmsum leiðum en
fyrsta verkefnið var ungmennaþingið sem haldið
var í október. Alls tóku 38 börn á aldrinum 13-15
ára þátt í ungmennaþinginu.
Að mati ungmennanna sjálfra er stærsta félags-
lega vandamálið í Grænlandi tengt því hve börn
og ungmenni byrja ung að neyta áfengis og
vímuefna. Einnig telja þau það mikið vandamál
hve mörg börn eiga í vanda vegna áfengis- og
vímuefnaneyslu foreldra. Í lokaskýrslu ung-
Framhald á næstu opnu
Hópur barna sem tók þátt í ungmennaþingi í Grænlandi í lok síðasta árs. Þar kom fram að börn vilja að foreldrar axli meiri ábyrgð á uppeldi barna
sinna. Þau töldu jafnframt að áfengis- og vímuefnaneysla foreldra og barna væri eitt stærsta mein grænlensks samfélags. Ljósmynd/Ulrik Bang/bang.gl
22 úttekt Helgin 27.-29. júlí 2012